Morgunn - 01.12.1997, Qupperneq 13
Ritstjórarabb
mín fyrstu orði í heim efnisins í gegnum talfæri annars.“
Þetta sagði sem sagt Silfur-Birkir um upphaf síns starfs
í gegnum miðil. Ekki verður annað skilið en að hann hafi
haft allt frumkvæði og stjórn á framgangi þeirrar þróunar,
sem styður þá kenningu mína að þróun þessara mála sé í
miklu meiri mæli í hendi aðalhöfunda þeirrar áætlunar
sem spíritisminn er, en þeirra sem valist hafa til fram-
kvæmda fyrir þá og stefnu þeirra hér á jörðu.
Mér virðist að þeir, eða þau, hafi þetta nokkuð í hendi
sér og væri í lófa lagið, sýndist þeim svo, að gefa spírit-
ismanum ærlegt trukk í afturendann, teldu þau það honum
til frekari framdráttar þessa stundina.
Og stundum hefur einmitt verið bent á það að handan,
t.d. í sambandi við hringasetu, að oft þegar þátttakendum
finnst lítið eða ekkert vera að eiga sér stað í hringnum
þeirra, þá sé gjarnan einmitt mest í gangi hinum megin frá
varðandi tengingar, þróun o.fl.
Og finnist einhverjum að lítið sé um framgang og þróun
í spíritismanum á einhverju tíniaskeiði hans, þá er þeim
hinum sama hollt að hafa þetta í huga. Eilífðin hefur næg-
an tíma og hraði þróunarinnar fer ekki alltaf eftir okkar
óskum. Barninu finnst stundum tíminn lengi að líða en
þeim fullorðna hann helst til stuttur.
Og Tutu (frb. tætí), aðalstjórnandi transmiðilsins Gladys
Fieldhouse, sagði m.a. á fundi með þáverandi stjórn
S.R.F.Í., 4. maí 1987:
„Alltof margir laðast að FYRIRBÆRUM þessarar
heimspeki, sem þið kallið spíritisma. Þeir laðast að ljóm-
anum en ekki raunveruleika hans. Heimsspeki spírit-
ismans er ákaflega yndisleg, því hún kennir þolinmæði
gagnvart öðrum, meiri skilning á jörðinni.“
Þessir meistarar virðast sem sagt ekki leggja mikið upp
MORGUNN 11