Morgunblaðið - 19.04.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
G
era má ráð fyrir að það kosti a.m.k.
um 200 milljónir króna að halda al-
þingiskosningarnar sem fram fara
nk. laugardag. Að sögn Hjalta Zóp-
hóníassonar, skrifstofustjóra í
dómsmálaráðuneytinu, var með lögum um fjár-
mál stjórnmálaflokkanna árið 2006 kveðið á um
það að kostnaður sveitarfélaganna í landinu við
alþingiskosningar skyldi greiddur af ríkinu.
Fyrst reyndi á þetta í alþingiskosningunum árið
2007, en þá var kostnaður sveitarfélaganna um
100 milljónir, en stærstur hluti kostnaðarins var
vegna launa.
Að sögn Hjalta var í framhaldinu búin til
reikniregla í dómsmálaráðuneytinu sem kvað á
um að greiddar væru til hvers sveitarfélags 300
þúsund krónur fyrir hvern kjörstað og 430 krón-
ur fyrir hvern kjósanda á kjörskrá. Tekur hann
fram að ekki sé búið að taka ákvörðun um það
hvort og þá hve mikið þessar tölur hækki í sam-
ræmi við hækkun verðlags.
Liggur á að prenta kjörseðlana
Hjalti segir kostnað vegna m.a. yfirkjör-
stjórnar, auglýsinga vegna kosninganna, umslög
og prentun kjörseðla hátt í 100 milljónir í þing-
kosningunum 2007. Þetta árið verða alls prent-
aðir 251 þúsund kjörseðlar, en lögum samkvæmt
skal prenta 10% fleiri kjörseðla en skráðir kjós-
endur eru á kjörskrá. Til samanburðar má þess
geta að á kjörskrá í alþingiskosningunum 2007
voru ríflega 221 þúsund manns og þá var kjör-
sókn 83,6%. Þegar blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við Hjalta nú undir vikulok sagði hann
síðustu forvöð að prenta kjörseðlana og vonaðist
hann til þess að þeir yrðu prentaðir í gær.
Það hversu seint kjörseðlarnir eru prentaðir
helgast m.a. af því að ekki skýrðist fyrr en nú í
vikulokin hversu margir framboðslistar verða í
kjördæmum landsins þar sem Lýðræðishreyf-
ingin fékk frest til þess að laga ágalla á fram-
boðslistum sínum í öllum kjördæmum. Sagði
Hjalti ljóst að menn væru að brenna inni á tíma
með prentunina þar sem starfsmönnum yf-
irkjörstjórna landsins veitti ekki af allri næstu
viku til þess að koma kjörseðlum á alla kjör-
staði.
Hundruð starfsmanna
Alls eru 132 kjörstaðir á Íslandi sem dreifast
á kjördæmin sex, Reykjavíkurkjördæmi suður
og norður, Suðvesturkjördæmi, Suðurkjördæmi,
Norðausturkjördæmi og Norðvesturkjördæmi.
Á sumum stöðum eru fleiri en ein kjördeild á
viðkomandi kjörstað, þannig að í allt eru kjör-
deildirnar 269. Spurður hversu margir starfs-
menn vinni við kosningarnar segist Hjalti ekki
hafa slíkt heildaryfirlit þar sem framkvæmd
kosninga, hvort heldur eru alþingiskosningar,
sveitarstjórnarkosningar eða forsetakosningar,
sé í höndum sveitarfélaganna í landinu. Þannig
sjá sveitarfélögin um að koma upp kjörstöðum
og manna þá. Þannig eru alltaf að lágmarki þrír
starfsmenn í hverri kjördeild auk kjörstjórnar á
hverjum kjörstað og dyraverðir svo fáeinir
starfsmenn séu nefndir. Bara sá fjöldi er rúm-
lega þúsund manns. Þess utan er um tuttugu
manna hópur teljara í hverju kjördæmi, en taln-
ing atkvæða er á ábyrgð yfirkjörstjórnar í við-
komandi kjördæmi.
Prentarar og bankamenn bestu teljararnir
Aðspurður segir Hjalti það oft vera sama fólk-
ið sem vinni að framkvæmd kosninga ár eftir ár,
enda gott að hafa vant fólk. Segir hann starfs-
menn í kjördeildum oft vera kennara og lög-
fræðinga, en bestu teljarar atkvæða komi oftast
nær úr röðum prentara og bankamanna þar sem
þeir séu vanir því að handleika pappír og seðla.
Alls eru til í landinu um 500 kjörkassar, en
kassarnir eru af tveimur stærðum. Að sögn
Hjalta er það í höndum sveitarfélaganna að
geyma kassana milli kosninga, en auk þess eru
nokkrir kassar til vara í vörslu dómsmálaráðu-
neytisins. Að minnsta kosti einn kassi er í hverri
kjördeild í landinu auk þeirra kassa sem notaðir
eru við utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Flutn-
ingur á kjörkössum með kjörgögnum er ýmist í
höndum starfsfólks úr kjördeildunum og yf-
irkjörstjórn eða lögreglunnar. Spurður hvort
enn séu í notkun kjörkassar sem notaðir hafi
verið frá stofnun lýðveldisins segir Hjalti að það
geti vel verið á kjörstöðum úti á landi.
Morgunblaðið/Ómar
Prenta 251 þúsund seðla
Á kjörskrá við komandi alþingiskosningar eru um 228 þúsund einstaklingar
Kjördeildir eru alls 269 talsins og í hverri kjördeild starfa að lágmarki þrír starfsmenn
Morgunblaðið/Ómar
Auð sætin bíða Spennandi verður að sjá hverjir
taka sæti á þingi að loknum kosningum.
Kjörsókn Í Alþingiskosning-
unum 2007 var kjörsóknin
83,6%. Í kosningunum sem
fram fara á laugardag eru alls
228 þúsund manns á kjörskrá.
„Það er öllum hollt að láta kíkja á
kosningaframkvæmdina hjá sér,
enda ekkert land og ekkert kerfi
hafið yfir gagnrýni,“ segir Urður
Gunnarsdóttir sem um árabil starf-
aði sem blaðafulltrúi ÖSE (Örygg-
is- og samvinnustofnunar Evrópu)
áður en hún tók við starfi fjöl-
miðlafulltrúa utanríkisráðuneyt-
isins. Bendir hún á að ekki sé til
ein rétt leið til að framkvæma
kosningar. Hins vegar sé lykilatriði
að traust ríki á framkvæmdinni og
að öll grundvallaratriði í lýðræð-
islegum kosningum séu virt, s.s. að
allir geti kosið, hafi kjörgengi og
geti komið skoðun sinni á framfæri
án utanaðkomandi þrýstings.
Eins og frá hefur verið greint eru
tíu sérfræðingar á vegum kosn-
ingaeftirlits ÖSE komnir til lands-
ins til að kynna sér undirbúning og
framkvæmd komandi þingkosn-
inga, en þetta er í fyrsta sinn sem
ÖSE er með kosningaeftirlit á Ís-
landi. Í hópnum eru bæði lögfræð-
ingar, fjölmiðlafræðingar, sérfræð-
ingar í kosningakerfum og
stjórnmálafræðingar, en a.m.k.
tveir í hópnum hafa setið í lands-
kjörstjórn í heimalöndum sínum.
Aðspurð segir Urður starfs-
menn kosningaeftirlits ÖSE aldrei
tjá sig um kosningar fyrr en að
þeim loknum. Tekur hún fram að
hafi eftirlitsmenn einhverjar at-
hugasemdir séu þær alltaf settar
fram sem uppbyggileg gagnrýni,
enda markmiðið með eftirlitinu að
stuðla að úrbótum.
„Ekkert kerfi hafið yfir gagnrýni“
SKOÐUN
Urður Gunnarsdóttir
Urður Gunnarsdóttir er upplýs-
ingafulltrúi utanríkisráðuneytis
Ekki er hægt að telja utankjör-
fundaratkvæði fyrr en kjörstöðum
hefur verið lokað. Ástæðan er sú
að þeir sem kjósa utan kjörfundar
hafa möguleika á að kjósa aftur í
sjálfum kosningunum og ógilda
við það fyrra atkvæði sitt.
Alls eru 228.000 Íslendingar á
kjörskrá fyrir komandi alþing-
iskosningar, sem fram fara laug-
ardaginn 25. apríl. Í gegnum tíð-
ina hefur verið áætlað að um 10%
atkvæða í kosningum á hverjum
tíma séu utankjörfundaratkvæði.
Hérlendis geta menn kosið utan-
kjörfundar hjá sýslumanni eða
hreppstjórum allt fram á kjördag,
erlendis fer atkvæðagreiðslan m.a.
fram í sendiráðum eða hjá ræð-
ismanni en atkvæðið er síðan sent
í ábyrgðarpósti til Íslands.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hjalta Zóphóníassyni, skrif-
stofustjóra í dómsmálaráðuneyt-
inu, stefnir allt í það að færri ut-
ankjörfundaratkvæði verði í
kosningum þetta árið. Segir hann
það m.a. skýrast af því að fólk sé
minna á ferðinni vegna krepp-
unnar.
Utankjörfundaratkvæði
líklega færri í ár en áður
Stjórnmálaflokkunum er sam-
kvæmt lögum um alþingiskosn-
ingar gert að skila inn meðmæl-
endum með framboðslistum sínum.
Lögin kveða á um að fjöldi með-
mælenda skuli vera margfeldi af
þingsætatölu kjördæmisins og taln-
anna 30 að lágmarki og 40 að há-
marki. Það þýðir að í Norðvest-
urkjördæmi, þar sem þingsætin eru
9, þarf á bilinu 270-360 meðmæl-
endur. Í Norðausturkjördæmi og
Suðurkjördæmi, þar sem þingsætin
eru 10, þarf 300-400 meðmælendur.
Í Reykjavíkurkjördæmunum tveim-
ur, sem hvort um sig eru með 11
þingsæti, þarf 330-400 meðmæl-
endur, en í Suðvesturkjördæmi, þar
sem þingsætin eru 12, þarf 360-480
meðmælendur. Meðmælendur eru
því alls á bilinu 1890-2520.
Fjöldi meðmælenda 300-
400 í hverju kjördæmi
Í lögum um
kosningar til Al-
þingis kemur
fram að á fram-
boðslistum skuli
vera vera nöfn
tvöfalt fleiri
frambjóðenda en
nemur þingsæt-
um í kjördæm-
inu, hvorki fleiri né færri.
Það þýðir að ef sex listar verða í
framboði verða alls 756 ein-
staklingar í framboði fyrir kosning-
arnar, en verði framboðslistarnir
sjö verða frambjóðendur alls 882.
Alls í kringum 800 fram-
bjóðendur í kosningum
Stattu vörð um viðbótarlífeyrissparnaðinn þinn.
Kynningarfundur mánudaginn 20. apríl kl 17:15
í fundarsal Maður lifandi, Borgartúni 24.
Auður Capital kynnir
585-6500 audur.is
Allir velkomnir