Saga - 1951, Page 20
194
manna. Bjarni Sturluson mun vera fæddur um
1530—1540 og kemur því mjög vel heim, að
hann sé föðurfaðir þeirra Steingrímssona, sem
munu fæddir nálægt 1610—1620.
Ég hef séð haft eftir sira Jóni Helgasyni
í Hofsþingum, að Guðrún Þorsteinsdóttir, kona
sira Egils á Tjörn Ólafssonar, hafi verið móð-
urmóðursystir Steins biskups og 3 systra á
Ljótsstöðum á Höfðaströnd, nefnilega 2 Guð-
rúna og Kristínar. Nú segir Steingrímur biskup
það í ættartölum sínum, og virðist kunna á
því glögg skil, að Guðrún, sem var síðari kona
sira Egils, hafi verið móðir sira Ólafs á Brúar-
landi. sem kvæntur var Sólveigu Þorsteinsdótt-
ur bróðurdóttur Guðrúnar móður Steins bisk-
ups. Ættartölur rekja ætt Sólveigar fullum
fetum og engin ástæða er til að efast um, að
þær skýri rétt frá. Samkvæmt þessu hefðu
þau átt að vera að 2. og 3., sira Ólafur og kona
hans, en konungsleyfi þurfti í þá daga til
þess, að svo skyldir mættu eigast. Ekki er nú
kunnugt um, að þetta leyfi hafi verið veitt, en
ekki er að marka það, og það sem sira Jón
Helgason segir, er með þeim líkindum, að ekki
má hafna því, þótt honum eða þeim, sem eftir
honum ritaði, að vísu verði það á að telja
systurnar á Ljótsstöðum dótturdætur í stað
sonardótturdætur Guðlaugar, ömmu Steins
biskups, og verður komið að því síðar.
Synir Guðrúnar Þorsteinsdóttur og sira
Egils voru Sveinn bóndi á Grund í Svarfaðar-
dal, faðir Þuríðar. sem fyrst var síðasta kona
sira Jóns í Stærraárskógi Einarssonar, en síð-
ar átti Nikulás á Ytra-Hvarfi í Svarfaðardal