Saga - 1951, Blaðsíða 56
230
lagsins lengi verið ljóst, að nauðsyn bæri til að
hefja útgáfu algerlega sagnfræðilegs tímarits
og eðlilegast væri, að Sögufélagið beitti sér fyrir
henni. Var útgáfa slíks tímarits ráðin á stjórn-
arfundi 15. apríl 1950, og skyldi það nefnast
Saga, tímarit Sögufélagsins. Kom fyrsta heftið
út sama ár, þótt það teljist til ársins 1949, og
ritaði forseti félagsins það einn. Þetta er fyrsta
tilraun til útgáfu sagnfræðilegs tímarits hér á
landi, því að Tímarit Jóns Péturssonar (Rv.
1869-1873) var eingöngu ættfræðilegs efnis.
Geta má þess hér, að Sögufélagið gaf út skrá
um Sögufélagsmenn 1906-1914 og síðan Skýrslu
Sögufélagsins. I skýrslunni eru m. a. birtar
gerðir aðalfunda og reikningar félagsins.
Allar þessar bækur hafa félagsmenn auðvit-
að fengið, en auk þeirra hefur Sögufélagið keypt
handa þeim eintök af sex ritum, er aðrir gáfu
út. Þau eru: Skrá Landsskjalasafnsins I—III
(Rv. 1903—1910), Ríkisréttindi fslands (Rv.
1908), Ævisaga Jóns Þorkelssonar Skálholts-
rektors I—II (Rv. 1910), Niðjatal síra Þorvalds
Böðvarssonar og síra Björns Jónssonar (Rv.
1913), Söguþættir eftir Gísla Konráðsson (Rv.
1913-1915) og Ævisaga Magnúsar Ketilssonar
(Rv. 1935).
Við því er ekki að búast, að Sögufélagið hafi
sinnt að ráði öðru en útgáfustörfum, en þó átti
það frumkvæði að því eftir tillögu Hannesar
Þorsteinssonar, að Landsbókasafnið keypti
handritasafn dr. Jóns Þorkelssonar landsskjala-
varðar 1904.
Það eru engir smámunir, sem Sögufélagið
hefur afrekað á þessari hálfu öld, er það hefur