Morgunblaðið - 18.12.2009, Side 46

Morgunblaðið - 18.12.2009, Side 46
46 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2009 Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, opin vinnustofa kl. 9-16.30, útskurður kl. 13, bingó kl. 13.30. Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, opin smíðastofa kl. 9-16.30. Jólabingó verður 11. des. kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Helgistund með sr. Hansi Markúsi kl. 10. Kertanámskeið, al- menn handavinna. Jólatrésskemmtun mánudaginn 21. des. Dalbraut 27 | Opin handavinnustofa kl. 8-16, botsía kl. 10.45, spilað kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30 og 13, jóga kl. 10.50 og félagsvist kl. 20.30. Skráning er hafin í skötuveisl- una á Þorláksmessu. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn- aður kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, leikfimi kl.10.30, bingó kl. 13.30. Að- ventukaffi verður 8. des. kl. 14, kór Snæ- landsskóla syngur, Vilborg Davíðsdóttir les úr bók sinni og feðgarnir Jónas Þórir og Jónas Þ. Dagbjartsson leika nokkur þekkt lög. Hátíðarhlaðborð. Jón Björg- vinsson verður m/ skreytingar kl. 13-16. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Opnar vinnustofur í Jónshúsi kl. 9.30- 15.30, matur, kaffi, aðventustemmning. Síðasti söludagur í Þorláksmessuskötu, ekki er tekið við greiðslukortum. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30. Prjónakaffi kl. 10. Stafaganga kl. 10.30. Spilasalur opinn frá hádegi. Gerðubergskór í heimsókn í Maríuhús kl. 13.30. Félagsstarfið er opið nk. mánud. þriðjud. og miðvikud. kl. 9- 16.30. Opið milli jóla og nýárs, virka daga kl. 9-16.30., s 575-7720. Furugerði 1, félagsstarf | Hátíð- armessa í dag kl. 14, prestur sr. Ólafur Jóhannsson, Furugerðiskórinn leiðir söng undir stjórn Ingunnar Guðmunds- dóttur. Kaffi. Hraunsel | Rabb kl. 9, leikfimi kl. 11.30, brids kl. 12. www.febh.is Hvassaleiti 56-58 | Vinnustofa opin frá kl. 9, postulínsmálun. Námskeið í mynd- list kl. 13, bíó kl. 13.30, kaffisala. Hár- snyrting. Hæðargarður 31 | Fastir liðir í hverjum hópi fyrir sig. Jólaball með Leikskólanum Jörfa í dag. Móeiður Anna leikur á víólu, Pétur Bjarnason leikur á harmónikku, Svavar Knútur kíkir inn og von er á jóla- sveininum í heimsókn, sími 411-2790 Íþróttafélagið Glóð | Botsía í Gjábakka kl. 13. Uppl. í síma 564-1490 og á www.glod.is Norðurbrún 1 | Útskurður og myndlist 9-12, leikfimi með Sólveigu kl. 13. Jóla- guðsþjónusta kl. 14 með sr. Sigurði Jónssyni og sparikaffi. Vesturgata 7 | Skartgripagerð/ kortagerð og glerbræðsla kl. 9.15-12, spænska kl. 11, tölvukennsla kl. 13.30, sungið v/flygilinn kl. 14.30, veitingar og dansað í aðalsal. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leir- mótun, handavinnustofan opin, morg- unstund, leikfimi, bingó kl. 13.30. Þórðarsveigur 3 | Jólabingó í Þórð- arsveig föstudaginn 18. des kl. 14. Víkingasveitin var kölluð útvegna meindýraeyðis sem var á ferli með vasaljós. Davíð Hjálmar Haraldsson orti: Yrki ég stundum undir rós, eitt skal hér sýna dæmi: Slæmt er að vera vasaljós ef víkingasveitin kæmi. Þá Hjálmar Freysteinsson: Happi þessu hrósa má, hersins styrkur nægði. Vasaljósavánni frá Víkingasveitin bægði. Loks Friðrik Steingrímsson: Að fáviska geti flani valdið, á fréttum þeim yrði ég lítið hissa, og karlarnir sjálfsagt hafa haldið að hér væri á ferðinni rafmagnsbyssa. Jón Gissurarson orti um það leyti sem fór að frjósa í haust: Falla élin okkur á allan kelur þróttinn. Fram í Seli feyskir strá fyrsta hélunóttin. Guðríður Bryndís Jónsdóttir mál- aði mynd af brimlendingu í Vík í Mýrdal, þar sem Jón Þor- steinsson afi hennar var formaður í mörg ár. Og þá kom henni í hug: Komnir heim úr háskaför með hlaðinn bát af fiski Í víkina þá færist fjör með fisk á hverjum diski. Þannig styrktu hvers manns hag hetjur fyrri tíða, menningu skópu, bættu brag, bægðu frá sulti og kvíða. Vísnahorn pebl@mbl.is Af vasaljósi og sérsveit Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand VERTU ALLTAF GÓÐUR VIÐ AÐRA EN EF ÞÚ GETUR ÞAÐ EKKI... VERTU FLJÓTUR HEYRÐU! ÞREYTTIR FERÐALANGAR GETA HVÍLT SIG HJÁ MÉR MÁNAÐARLEGUR FUNDUR LYGARAFÉLAGSINS ER HÉR MEÐ SETTUR ERU ALLIR BÚNIR AÐ BORGA FÉLAGSGJÖLDIN? HMMM...JÁ! JÁ! JÁ! JÁ! JÁ! JÁ! JÁ! JÁ! JÁ! JÁ! JÁ! HANN NÆR EKKI Í BLAÐIÐ FYRIR MIG FYRR EN HANN ER BÚINN AÐ FÁ KAFFIÐ SITT TAKK, SÖMULEIÐIS MÉR LEIST MJÖG VEL Á AUGLÝSINGUNA YKKAR MÉR LÍKA. VIÐ EIGUM ÓTRÚLEGA MARGT SAMEIGINLEGT AF HVERJU GETUM VIÐ ÞÁ EKKI FUNDIÐ NEITT AÐ TALA UM ÞESSI DÚKUR ER ANSI FÍNN, FINNST YKKUR EKKI? SOLLA OG LÚÐVÍK... GAMAN AÐ KYNNAST YKKUR ÉG VERÐ AÐ KOMA MÉR Á FÆTUR KEMUR EKKI TIL GREINA, PETER! ÞÚ ERT ENNÞÁ MEÐ FLENSUNA ÞÚ FÆRÐ AÐ MINNSTA KOSTI MAT Í RÚMIÐ EN ÞAÐ ER EINN GALLI ÞAR Á... BLAÐIÐ HANS JAMESON FYLGIR MEÐ VINNUR KÓNGULÓAR- MAÐURINN MEÐ VULTURE? Svarti listinn og hvíta bókin Mótmæli almennings virðast lítið hreyfa við musteri Mammons. Núna snýst málið um að stofna gagnaver og binda stjórnvöld vonir sínar við, að er- lent fjármagn streymi inn í landið. En það er einn hængur á: Stór hluthafi innborðs er sá hinn sami og kom al- menningi í skuldasúpu – Icesave skuldasúpu. Fréttamaður RÚV spurði nokkra alþing- ismenn og iðnaðarráðherra um af- stöðu þeirra vegna þessarar teng- ingar. Birgitta Jónsdóttir sá réttæti í því, að ef Novator hefði aðgang að lánsfjármagni, þá væri réttast að nýta það í að greiða Icesave klúðrið – sammála! Sigmundur Ernir gerði athugasemd við þessa samsetningu en vildi skoða málið betur. Ragn- heiður Elín Árnadóttir sá atvinnu- ástand Suðurnesjabúa allt að því leysast með þessu gagnaveri, enda er henni án efa hugleikið að koma sínum gömlu æskustöðvum á réttan kjöl. En síðan staldraði ég við orð iðnaðarráðherra, Katrínar Júlíus- dóttur. Iðnaðarráðherra sá ekkert athugavert við þetta þar sem erlend- ir aðilar myndu ráða yfir 60% hlut og bætti síðan við e-ð á þá leið, að það þjónaði engum tilgangi að vera að horfa í for- sögu þeirra aðila sem ættu hin 40 prósentin. Þetta er alveg stór- merkilegt! Þeir sem hafa komið almenningi í þá klemmu sem við blasir, þeir einfaldlega fara í hvítu bókina. Al- menningur hins vegar lendir á svarta listan- um, lista sem mun fylgja þeim eins og illa reið eiginkona sem á erfitt með að fyrirgefa ektamanni sínum feil- spor í hjúskap. Reiða eiginkonan, í þessu til- felli lánastofnanir og bankar, sífellt minnir á hjúskaparbrotið og fyrir vikið mun tilvist svarta listans fylgja sem skugginn og standa í vegi fyrir ,,fyrirgefningu“ og hinn seki, þ.e.a.s. hinn skuldsetti almenningur, mætir alls staðar lokuðum dyrum sökum þessa svarta lista og getur ekki einu sinni fengið fyrirframgreitt kred- itkort – tala ég um raunverulegt dæmi í þessu sambandi. Þetta er hróplegt óréttlæti og skýlaust brot á jafnræðisreglu stjórnarskrár lýð- veldisins. Vér mótmælum allir! Magnea Ólafsdóttir. Ást er… … eins og vindur sem leikur um hárið. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.