Morgunblaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 56
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 352. DAGUR ÁRSINS 2009                              ostur.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 – 2 3 8 6 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM» Heimild: Seðlabanki Íslands DOLLARI STERLINGSPUND KANADADOLLARI DÖNSK KRÓNA NORSK KRÓNA SÆNSK KRÓNA SVISSN. FRANKI JAPANSKT JEN SDR EVRA MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 127,46 205,2 118,83 24,542 21,728 17,501 121,27 1,4158 199,94 182,66 Gengisskráning 17. desember 2009 127,76 205,7 119,18 24,614 21,792 17,552 121,61 1,4199 200,54 183,17 237,0144 MiðKaup Sala 128,06 206,2 119,53 24,686 21,856 17,603 121,95 1,424 201,14 183,68 Heitast 0°C | Kaldast 10°C  Hæg vestlæg eða breytileg átt, léttskýjað og frost víðast hvar. Gengur í vaxandi norð- anátt í kvöld, él NA-til. » 10 Lesandinn ferðast með Kristjáni Inga Einarssyni ljós- myndara um byggð- ir og óbyggðir lands- ins. »50 AF LISTUM» Djúphugul hylling TÓNLIST» Bubbi, Örlygur Smári og Sjonni Brink í slag. »52 Bjarni Bjarnason segir bók sína; Leit- ina að Audrey Hep- burn, vera um mann sem er eiginlega ut- an við kerfið. »47 BÓKMENNTIR» Bjarni leitar að Hepburn ÍSLENSKUR AÐALL » Skellinn, stríðinn, góður, gjafmildur, klúr. »48 TÓNLIST» múm er orðin alveg hrikalega þétt. »48 Menning VEÐUR» 1. Háhyrningar murkuðu lífið úr … 2. Fannst um borð í bátnum 3. Af hverju ætti læknir að vinna …? 4. „Baldur staðinn að ósannindum“  Íslenska krónan hélst óbreytt »MEST LESIÐ Á mbl.is  Arnór Guðjohn- sen, faðir Eiðs Smára og umboðs- maður, vísar þeim fréttum á bug að Eiður vilji yfirgefa Mónakó og snúa aftur í ensku úr- valsdeildina. ,,Nei, ég hef ekki heyrt neitt um að Eiður sé á förum. Það er ekkert að gerast í hans málum hvað þetta varðar og það eina sem Eiður er að gera er að reyna að aðlagast franska boltanum sem er nýr fót- boltaheimur fyrir hann,“ sagði Arnór í viðtali við fréttavef Sky Sport. Án Eiðs Smára vann Mónakó sinn fyrsta leik af sex leikjum í fyrrakvöld þegar liðið lagði Rennes, 1:0, en næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn Lyon á sunnudaginn. FÓTBOLTI Arnór segir að Eiður Smári sé ekki á förum frá Mónakó  Eilífðartöffarinn Helgi Björns hef- ur haldið uppi reffi- legri stemningu undanfarnar helg- ar í Þjóðleik- húskjallaranum ásamt sveit sinni Kokkteilpinnunum. Síðasta „giggið“ að sinni verður haldið nú á laug- ardaginn og verður blásið til helj- arinnar veislu af tilefninu og óvæntir gestir af myndarlegum stærðar- gráðum ætla að láta sjá sig. Helgi flýgur til landsins gagngert frá Berl- ín vegna þessa en til grundvallar í efnisskránni eru lög af nýrri plötu, Kampavín, sem inniheldur „kol- svartan rytmablús, blandaðan djassi og rokki“. TÓNLIST Helgi Björns hellir í síðasta kokkteilinn að sinni Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Á AÐFANGADAG mun Fjóla Dögg Helgadóttir paufast upp hlíðar Kilimanjaro, hæsta fjalls Afr- íku. Á meðan flestir Íslendingar borða jólamatinn og kíkja í jólapakka mun Fjóla Dögg takast á við súrefnisskort sem fylgir svo mikilli hæð og ekki er ólíklegt að hún þjáist af magakveisu á leiðinni. Með Fjólu Dögg verður kærasti hennar Neil Yager. „Á Þorláksmessu verðum við vakin um klukkan eitt um nóttina og svo verðum við að labba allan aðfangadag upp á topp,“ segir hún. Á toppinn fyrir þrítugt Þau kaupa ferðina af afrískri ferðaskrifstofu og er allur matur innifalinn, þó hvorki hamborgar- hryggur né smákökur. Aðspurð um tildrög fjall- göngunnar segist Fjóla Dögg hafa sett sér ýmis markmið sem hún ætli að ná fyrir þrítugsafmælið hinn 5. apríl næstkomandi, s.s. að hlaupa maraþon undir fjórum tímum, ljúka doktorsritgerð í sál- fræði og klífa Kilimanjaro. Hún hljóp Sydney-maraþonið á 3:54 í septem- ber, stefnir á að klára doktorsritgerðina 1. apríl og standa á tindi Kilimanjaro á aðfangadag. Á hinn bóginn hefur dregist að læra ítölsku og kór- esku. „En það verður bara gert fyrir 35 ára af- mælið,“ segir hún. Á Kilimanjaro um jólin  Vakin klukkan eitt um nóttina á Þorláksmessu og gengur upp á aðfangadag  Rannsakar tengsl hjátrúar og sálfræðilegra þátta og hverju hrunið hafi breytt Tókst Fjóla Dögg náði markmiði sínu í Sydney. „ÞAÐ er gaman að ná þessu meti og ekki verra að vera með þetta í ferilskránni. Leikirnir hrann- ast upp hjá manni og árin líka og þetta er sú deild sem maður fylgdist mest með þegar maður var gutti og sú deild sem ég vildi helst spila í. Mig óraði ekki fyrir því þegar ég spilaði fyrsta leikinn að ég ætti eftir að spila á fjórða hundrað leiki í ensku úrvals- deildinni,“ sagði Hermann Hreið- arsson í gær en hann náði þeim áfanga í leiknum gegn Chelsea í fyrrakvöld að verða leikjahæsti Norðurlandabúinn í deildinni frá upphafi með 319 leiki. Varnar- jaxlinn er fimmti yfir leikjahæstu erlendu leikmennina. | Íþróttir „Leikirnir hrannast upp“ Hermann Hreiðarsson ÞAÐ var líf og fjör á skíðasvæði Akureyringa í Hlíðar- fjalli síðdegis í gær þegar blaðamaður Morgunblaðsins kom þar við, og töluverður fjöldi fólks á skíðum. Akur- eyringar hafa verið iðnir við að mæta í brekkurnar síð- an svæðið var opnað fyrir skemmstu og þar hefur líka verið ungviði annars staðar að af landinu við æfingar. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson FJÖR Í FJALLINU Liður í framhaldsnámi Fjólu Daggar sem hún vinnur undir leiðsögn hjá Háskólanum í Sydney er að rannsaka hjátrú á Íslandi og hvernig ýmsir sálfræðilegir þættir hafa áhrif á hana. Árið 2007 lagði hún fyrir könnun á netinu þar sem Íslendingar voru beðnir að svara ýmsum spurningum sem að þessu lúta. Margt hefur breyst síðan og nú vill hún kanna hvort hrunið hafi haft áhrif á rannsóknarefnið. Könnunin er gerð undir nafnleynd og því óskar Fjóla Dögg eftir að fólk sem tók þátt í rannsókn- inni árið 2007 svari könnuninni aftur sem og aðr- ir sem hafa áhuga á því að taka þátt í henni í ár. Þeir sem svara fá þátttökunúmer sem þeir geta notað til að sjá hvernig þeir standa miðað við niðurstöðurnar þegar þær liggja fyrir. Könnunin er á vefnum: www.fjola.com.au. Tengsl sálfræði og hjátrúar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.