Fréttablaðið - 12.11.2011, Síða 2

Fréttablaðið - 12.11.2011, Síða 2
12. nóvember 2011 LAUGARDAGUR2 STJÓRNMÁL Bæjarstjórn Kópavogs felldi á þriðjudag tillögu um að veita Kára Steini Karlssyni maraþon- hlaupara eina milljón króna í styrk til að undirbúa sig fyrir Ólympíu- leikana í London á næsta ári. Það var hvorki Kári Steinn sjálf- ur né félag hans Breiðablik sem sóttu um styrkinn heldur lögðu fjórir bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokks fram tillögu um styrk- veitinguna. Þeir fjórir greiddu atkvæði með styrknum en fimm voru á móti. Ólafur Þór Gunnars- son úr VG vék af fundi vegna fjölskyldutengsla við íþrótta- manninn og Ómar Stefánsson úr Framsóknarflokki sat hjá. Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar og formaður bæjarráðs, seg- ist harma að sjálfstæðismenn reyni að slá sér upp á afreksmann- inum Kára Steini. Styrkveitingar eigi ekki að vera geðþóttaákvörð- un stjórnmála- manna, jafnvel þótt þeim gangi gott eitt til. „Það er for- dæmalaust að stjórnmálaflokk- ur eða einstaka bæjarfulltrúar leggi fram til- lögu um að styrkja einstaklinga. Styrkbeiðnir koma annað hvort frá félagasamtökum eða einstak- lingum og eru teknar til málefna- legrar umfjöllunar af viðkomandi embættis manni sem færir fyrir því rök hvort viðkomandi er styrkt- ur eða ekki og bæjarráð og bæjar- stjórn taka afstöðu út frá því,“ segir Guðríður. Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna, bendir á það fordæmi að Rúnar Alexandersson úr Gerplu og Jón Arnar Magnús- son úr Breiðabliki hafi báðir feng- ið styrk frá bænum til að undirbúa sig fyrir Ólympíuleika. „Íþróttamenn sem taka þátt í Ólympíuleikunum fyrir hönd Íslands eru mjög góðar fyrir- myndir. Því viljum við stuðla að því að þeir nái sem best- um árangri því það mun skila sér margfalt inn í forvarna- og íþróttastarf bæjarins,“ segir Ármann, sem gefur lítið fyrir fullyrðingar um að sjálfstæðismenn noti málið í póli- tískum tilgangi. „Öll erum við hér í pólitík og þarna meðal annars má sjá pólitískar áherslur Sjálfstæðis- flokksins.“ Kári Steinn kveðst aldrei hafa heyrt af áðurnefndri tillögu. „Ég hef ekkert heyrt af þessu, sem er kannski hálf furðulegt,“ segir hann. Aðspurður segir Kári Steinn fjár- mögnun undirbúningsins að öðru leyti ganga vel. Verið sé að leggja lokahönd á styrktarsamninga við tvö stórfyrirtæki. gar@frettabladid.is Deila í Kópavogi um styrk til Ólympíufara Tillaga sjálfstæðismanna um einnar milljónar króna styrk til maraþonhlaupara á leið á Ólympíuleikana var felld í bæjarstjórn Kópavogs. Formaður bæjarráðs segir að styrkveitingar eigi ekki að vera geðþóttaákvörðun stjórnmálamanna. GUÐRÍÐUR ARNARDÓTTIR ÁRMANN KR. ÓLAFSSON Ég hef ekkert heyrt af þessu, sem er kannski hálf furðulegt. KÁRI STEINN KARLSSON MARAÞONHLAUPARI Í BREIÐABLIKI KÁRI STEINN KARLSSON Langhlaupar- inn úr Breiða- bliki ætlar að verða fyrstur Íslendinga til að keppa í maraþonhlaupi á Ólympíuleikum. Sótt var um fjárstyrk Kári Steini til handa úr bæjarsjóði Kópavogs án hans vitneskju. Jens, er hann Randver ekki við hestaheilsu? „Jú, en maður er alltaf að leita hófanna eftir fleiri gæðingum.“ Hestabóndinn Jens Pétur Högnason frestaði því að lóga hrossinu Randveri eftir að hann fékk hlutverk í þáttunum Game of Thrones. NOREGUR Norðmenn fengu nýjan dómsmálaráðherra í gær þegar Grete Faremo varnarmálaráð- herra tók við embætti Knuts Storberget sem sagði af sér. Faremo hefur áður verið dómsmála- ráðherra, árin 1992 til 1996. Storberget hefur sætt gagnrýni undan farið, meðal annars vegna viðbragða við hryðjuverkunum í júlí síðastliðnum og hrinu nauðg- ana sem gengið hefur yfir í Ósló. Jens Stoltenberg forsætisráð- herra segir Storberget hafa beðið um að fá að hætta fyrir mörgum mánuðum. -ibs Ráðherraskipti í Noregi: Dómsmálaráð- herra hættir KNUT STORBERGET STJÓRNSÝSLA Hagstofa Íslands hætti nýlega að halda saman upplýsing- um um sölu og neyslu áfengis með jafn ítarlegum hætti og hefur verið undanfarin ár. Ástæðan er niður- skurður hjá hinu opinbera. Ólafur Hjálmarsson hagstofu- stjóri segir að Hagstofan hafi að undanförnu þurft að draga veru- lega úr útgjöldum. „Einhvers stað- ar verður að gefa eftir, eins og hjá öðrum stofnunum, og þá kemur það fyrst til greina sem ekki er lög- bundið,“ segir Ólafur. Starfsmönn- um Hagstofunnar hefur fækkað um tólf prósent en útgjöld hafa verið skorin niður um rúmlega 20 prósent frá hruni. Siv Friðleifsdóttir alþingismaður lagði fram fyrirspurn til Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um málið í vikunni. Vill hún fá svör ráð- herra við því hvort honum þyki það mikilvægt að hið opinbera fylgist með þróun á sölu og neyslu áfengis. Eins hvort hann telji að slíkar upplýsingar séu mikil- vægar í tilliti til forvarna. Tölur um áfengisneyslu eru til frá árinu 1881. Fram til 1935 styðjast áætlanir við inn- flutningsskýrslur, en frá 1935 til 1995 er byggt á sölutölum Áfengis- og tóbaks verslunar ríkisins. Eftir það er byggt á upplýsingum frá leyfishöfum um innflutn- ing, heildsölu eða framleiðslu á áfengi, svo og sölutölum ÁTVR. - shá Hagstofa Íslands hefur þurft að draga úr upplýsingaöflun vegna niðurskurðar: Áfengisneysla ekki lengur skráð GOTT ÚRVAL Vegna fjárskorts er ekki lengur hægt að halda saman nákvæm- um upplýsingum um sölu og neyslu áfengis. ÍÞRÓTTIR Hjörvar Steinn Grétars- son náði tvöföldum stórmeist- araáfanga í gær þegar Evrópumóti landsliða í skák lauk í Grikklandi. Hjörvar þarf því aðeins einn stórmeistaraáfanga til viðbótar til að verða stórmeistari. Hann tryggði sér alþjóðlegan meistara- titil með árangri sínum. Ísland lenti í 26. sæti á mótinu, af 38 liðum. Helgi Ólafsson, liðs- stjóri og varamaður sveitar Íslands, náði hæstu vinningshlut- falli allra keppenda á mótinu, en hann fékk 4,5 vinninga úr fimm skákum. Þýskaland varð Evrópu- meistari á mótinu. - þeb Tryggði sér alþjóðlegan titil: Náði tvöföldum áfanga á EM LÖGREGLUMÁL Leitin að Svíanum sem talinn er týndur á Sólheimajökli hafði enn engan árangur borið þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöld. Þá voru liðnir réttir tveir sólarhringar frá því Daniel Hoij hringdi eftir hjálp. Síðan hefur ekkert í honum heyrst. Nærri tvö hundruð björgunarsveitarmenn fín- kembdu leitarsvæðið á Sólheimajökli fram á nótt í gær. Leitað var úr lofti og með aðstoð hunda. Spor fundust sem talin voru geta verið eftir Hoij og sömu- leiðis hanski sem hann kann að eiga. Fækka átti leit- armönnum í nótt til að hvíla mannskapinn en halda svo áfram af fullum krafti í dag. Bróðir Hoijs kom hingað til lands í gær og kom við í Samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð áður en hann var fluttur að Sólheimajökli til að vera við leitina. Þótt vonin til þess að finna Svíann á lífi minnki vissulega eftir því sem tíminn líður rifja menn upp söguna af Þjóðverjanum sem villtist við Eyjafjalla- jökul í janúar. Hann hringdi einnig á hjálp og fannst eftir tveggja sólarhringa leit þar sem hann hafði leit- að skjóls í sprungu. Búist var við strekkingsvindi á leitarsvæðinu á gærkvöld en hægari í dag og fram á kvöld. - gar Leitin að Svíanum sem talinn er vera á Sólheimajökli stóð fram á nótt í gær: Björgunarsveitir halda ótrauðar áfram LEITARMENN Tæplega tvö hundruð björgunarsveitarmenn leituðu í gær að hinum 25 ára gamla Daniel Hoij á Sólheima- jökli. MYND/SLYSAVARNAFÉLAGIÐ LANDSBJÖRG NÍGERÍA, AP Nýfæddu barni í Níg- eríu var bætt á launaskrá ríkis- ins og hefur fengið 150 dollara á mánuði síðustu þrjú árin. Sak- sóknari hefur greint frá þessu. Launþeginn er skráður sem mánaðargamalt barn, en sak- sóknari segir að faðir barnsins hafi byrjað að innheimta laun þess frá því áður en það fædd- ist. Barnið er eitt af mörgum svokölluðum draugastarfsmönn- um í kerfinu, sem fá laun án þess að vinna. Opinberir starfsmenn skálda störf fyrir fjölskyldumeð- limi til að drýgja eigin tekjur. Saksóknari segir að ríkið sé að reyna að snúa þessari þróun við. - þeb Faðirinn fékk peninga í þrjú ár: Smábarn á launum hjá ríki LANDBÚNAÐUR Tjón á girðingum og ræktarlandi af völdum hrein- dýra hjá bændum í Flatey á Mýrum á þessu ári nemur um 8,5 milljónum króna. Frá því er greint í Bændablaðinu að hrein- dýr hafi valdið miklu tjóni hjá bændum á Mýrum í Hornafirði undanfarin ár. Grétar Már Þorkelsson, ráðu- nautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands, segir í blaðinu að sú umræða að hreindýr hafi flækst í girðingum og það sé bændum að kenna sé einhliða og bændum sé að ósekju kennt um. Grétar tók sjálfur út tjón af völdum dýranna og samkvæmt úttektinni ollu þau tjóni upp á hálfa milljón á girðingum en afgangurinn var á kornrækt, hveitirækt og túnum. - sv Segir hreindýr skaðvalda: Hreindýr valda milljónatjóni Fullur á hjóli Karlmaður á þrítugsaldri féll af reið- hjóli í Hafnarfirði um helgina. Hann fékk skurð á höfuðið og var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Óhappið má skrifa á ástand mannsins, en hann var ölvaður. Hjólið reyndist vera stolið og var það flutt á lögreglustöð. LÖGREGLUFRÉTTIR STJÓRNSÝSLA Bankasýsla ríkisins auglýsir eftir nýjum forstjóra í Fréttablaðinu í dag. Páll Magnússon var ráðinn for- stjóri stofnunarinnar í lok sept- ember en hætti við að taka við starfinu hinn 25. október, degi eftir að stjórn stofnunarinnar hafði beðist lausnar vegna gagn- rýni á ráðningu hans. Elín Jónsdóttir hefur gegnt starfi forstjóra frá því að banka- sýslan hóf störf í ársbyrjun 2010. Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember. - þeb Bankasýsla ríkisins: Auglýst eftir nýjum forstjóra SPURNING DAGSINS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.