Fréttablaðið - 12.11.2011, Blaðsíða 126
12. nóvember 2011 LAUGARDAGUR78
Ensímin hjálpa við að brjóta
niður og melta fæðuna,
eykur næringarupptöku.
Lagar uppþembu og
vanlíðan eftir máltíðir.
Virkar vel við candida
sveppasýkingu. Kemur á
jafnvægi í maga og ristli.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Krónunni.
Meltingarensím úr grænmeti og ávöxtum
Meðmæli:
Þægileg inn
taka
ekkert bragð
,
fljótvirkt
• HUSK trefjar
• 5 sérvaldir acidofilus gerlar
• Inulin FOS næring fyrir
acidofilus gerlanna
lifestream™
nature’s richest superfoods
www.celsus.is
VIÐ ERUM FLUTT!
Fótaaðgerðastofan á Heilsuhvoli
aðsetur sitt í Álfheima 74, 2.hæð, Glæsibæ.
Guðbjörg Hafsteinsdóttir löggiltur
fótaaðgerðafræðingur, sjúkraliði
og svæðanuddari.
Tímapantanir í síma 821 2627 eða 511 1000
omgh@isl.is – www.heilsuhvoll.is
PERSÓNAN
Á samskiptavefnum Facebook er
þýskur nafni fyrrverandi forsætis-
ráðherra Íslands, Geirs Haarde.
Pilturinn er þýskur námsmaður
sem kaus sér nafnið sem notanda-
nafn á Facebook en í raun heitir
hann sjálfur Alex Mannan.
Facebook hélt innreið sína til
Þýskalands síðar en á Íslandi,
þar sem þýskir námsmenn notuðu
heldur samskiptavef sem nefn-
ist StudiVZ. Alex segir að þegar
hann skráði sig loks sem not-
anda á Facebook hafi honum þótt
sumar spurningarnar sem spurð-
ar voru heldur persónulegar og því
ákveðið að finna sér sérstakt not-
andanafn. „Ég valdi nafnið Geir
Haarde þegar ég skráði mig sem
Facebook-notanda árið 2008, þá
var kreppan þegar komin á fullt.
Ég hafði ekki heyrt fyrrverandi
forsætisráðherra ykkar nefnd-
an á nafn fyrr en íslenskir fjöl-
miðlar fóru að fjalla um krepp-
una og var því meðvitaður um
hver Geir Haarde var og að hann
væri umdeild persóna í íslensku
samfélagi en vissi að prófílmynd-
in mundi koma í veg fyrir að fólk
færi mannavillt,“ útskýrir Alex.
Hann stundar nám í norrænum
fræðum með áherslu á sænsku og
íslensku við Háskólann í Tübingen.
Hann þekkti þegar nokkuð vel til
Svíþjóðar en lítið til Íslands og
ákvað því að koma í skiptinám
hingað til lands haustið 2008. „Það
er mikið samstarf milli háskólans
míns og Háskóla Íslands og hingað
koma oft íslenskir skiptinemar. Ég
hafði kynnst nokkrum Íslending-
um sem stunduðu nám í Tübingen
og þeir voru allir svo indælir að ég
ákvað að fara heldur í skiptinám
til Íslands en Svíþjóðar.“
Alex segir dvölina á Íslandi hafa
farið fram úr öllum hans vonum en
að það hafi komið honum töluvert
ALEX MANNAN: ÞAÐ VANTAR FROÐU Á BJÓRINN Á ÍSLANDI
Þýskur nafni Geirs Haarde
NAFNAR
Alex Mannan tók sér not-
endanafnið Geir Haarde á
Facebook því honum þótti
margar spurningarnar of
persónulegar.
„Mér líst rosalega vel á myndina, handritið er
æðislegt og þetta er virkilega vel skrifuð og fal-
leg saga hjá honum,“ segir Nína Dögg Filippus-
dóttir, sem hefur verið ráðin til að leika listakon-
una Nínu Tryggvadóttur í stórmynd Jóns Óttars
Ragnarssonar, Kill the Poet. Eins og komið hefur
fram í fjölmiðlum munu þau Nick Stahl og Anita
Briem leika ljóðskáldið Stein Steinarr og mynd-
listarkonuna Louisu Matthíasdóttur.
Nína segir það vera mikinn heiður að fá tæki-
færi til að leika þessa miklu listakonu Íslendinga.
„Ég hef ekki áður verið í hlutverki sögulegrar
manneskju og undirbúningurinn verður örugg-
lega allt öðruvísi. En maður verður samt að passa
sig á að verða ekki eftirherma, þetta er ekki
heimildarmynd,“ segir Nína. Hún á von á barni
eftir viku og hafði því ekki gefið sér mikinn tíma
til að kynna sér lífshlaup listakonunnar.
Nína hyggst hins vegar nýta tímann vel á
meðan hún liggur við hlið nýja fjölskyldumeð-
limsins. „Þetta er mjög spennandi hlutverk og
auðvitað er ég líka pínulítið smeyk við að
leika svona goðsagnakennda konu. En þetta
er fyrst og fremst áskorun og þau hafa
verið yndisleg, Margrét [Hrafnsdóttir] og
Jón Óttar,“ segir leikkonan. Eiginmaður
hennar, Gísli Örn Garðarsson, hefur einn-
ig samþykkt að leika í myndinni. Ekki
hefur þó verið ákveðið hvaða hlutverk
hann fer með þar sem ekki liggur fyrir
hversu mikinn tíma Gísli hefur vegna
anna á öðrum vígstöðum. Samkvæmt
upplýsingum frá Margréti er ráðgert
að tökur hefjist í Kanada í janúar á
næsta ári en þeim verður síðan fram-
haldið í mars hér á landi. - fgg
Nína Dögg ráðin til að leika Nínu Tryggva
„Nú setjum við bara framkvæmdina í gang og byrj-
um að undirbúa viðburðinn,“ segir Sigurjón Einars-
son kvikmyndagerðarmaður.
Sigurjón fékk nýlega vilyrði frá ríkisstjórn
Íslands um þriggja milljóna króna styrk til að undir-
búa stórtónleika á vegum samtaka Nelson Mandela,
46664, hér á landi á næsta ári.
Sigurjón fer fyrir íslenskum hópi sem undirbýr
viðburðinn og var að vonum ánægður með niður-
stöðuna. Áður hafði Reykjavíkurborg ákveðið að
styrkja tónleikaframkvæmdina um tvær milljón-
ir króna. „Við vorum auðvitað háð því að fá bæði
þennan pólitíska stuðning sem og almennan stuðn-
ing, því verkefnið er stórt, alþjóðlegt og hefur
vissulega pólitíska anga. Fyrstu skrefin eru svo að
stilla okkur saman við ýmsa aðila eins og ferðaþjón-
ustuna, Hörpu og Laugardalshöll.“
Eins og Fréttablaðið hefur sagt frá voru það
mannúðarsamtök Mandela, 46664, sem föluðust
eftir Íslandi sem staðsetningu fyrir næstu alþjóð-
lega stórtónleika sína. „Það er mikill vilji innan
samtakanna að Ísland verði í brennidepli á næsta
ári. Dagskráin verður þannig líklega svolítið dreifð,
einhver viðburður um vorið, mögulega um sumarið
en aðaltónleikarnir verða í september.“
Sigurjón segist ánægður með að sjónum heims-
ins verði beint að stuðningi Íslands við mannúðar-
mál. „Ég held að við ættum ekki að týna okkur
í umræðunni um hversu mikið við græðum á
þessu. Fyrst og fremst er um að ræða alþjóðlegan
mannúðar viðburð á risastórum skala sem verið er
að setja upp á Íslandi. Það stærsta í þessu er auð-
vitað að geta hjálpað til við að varpa ljósi á það sem
Nelson Mandela hefur barist fyrir í þau 93 ár sem
hann hefur lifað.“ - bb
Grænt ljós á Mandela-tónleika
BARÁTTUMAÐUR Mannúðarsamtökin 46664 draga nafn sitt af
fanganúmeri Nelsons Mandela frá Robben-eyju, þar sem hann
dvaldi í 18 af þeim 27 árum sem hann var lokaður inni.
NÍNA OG NÍNA Nína Dögg leikur
nöfnu sína og listakonuna Nínu
Tryggvadóttur í stórmyndinni Kill the
Poet eftir Jón Óttar Ragnarsson.
Kvikmyndaleikstjórinn Kevin Smith er staddur hér á
landi og svaraði spurningum aðdáenda sinna í
Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi ásamt því að flytja
uppistand. Smith hyggst lyfta sér upp á ferðalaginu
og pantaði sér borð á Austri í gær og í kvöld.
Smith hyggst ásamt fylgdarliði sletta ærlega
úr klaufunum, enda er miðborg Reykjavíkur
ekki þekkt fyrir annað en að taka vel á móti
þeim sem finnst gaman að skemmta sér.
- afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Elísabet Olka Guðmundsdóttir
Aldur: 32 ára.
Starf: Mynd-
listarkona.
Fjölskylda:
Sambýlismaður
og tvö börn.
Foreldrar:
Gunnhildur
Heiða Axels-
dóttir, stjórnar-
formaður
Vinunar, og
Guðmundur
Sigurfreyr Jóns-
son rithöfundur.
Stjörnumerki: Steingeit.
Elísabet Olka opnaði fyrstu myndlistar-
sýningu sína í Kaupmannahöfn á
dögunum.
á óvart hversu fullt af andstæðum
landið var. „Þið eruð fá en samt er
svo mikill stórborgarbragur yfir
bæjunum, það rignir stanslaust en
þrátt fyrir það er landið lítið gróið
og mikið um eyðimerkur. En ég
naut næturlífsins, námsins við HÍ,
fisksins og bjórsins Kalda.“
Inntur eftir því hvort honum hafi
þótt eitthvað neikvætt við land og
þjóð nefnir Alex hátt verðlag á
matvöru og froðuleysi á bjórn-
um. „Það vantar froðuna á bjór-
inn ykkar, án hennar smakkast
bjórinn einfaldlega ekki jafn vel.
Einu sinni hellti barstúlka í glas
fyrir mig og þar sat svolítil froðu-
kolla efst en hún mokaði henni úr
og bætti bjór í glasið, hjartað í mér
brast,“ segir hann glettnislega að
lokum.
sara@frettabladid.is