Fréttablaðið - 12.11.2011, Blaðsíða 16
16 12. nóvember 2011 LAUGARDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
MEÐ BÚNAÐI, MIÐSVÆÐIS Í REYKJAVÍK.
MJÖG HAGSTÆÐ KJÖR FYRIR RÉTTA AÐILA.
GOTT TÆKIFÆRI FYRIR FAGFÓLK AÐ TAKA SAMAN
HÖNDUM OG HEFJA EIGIN REKSTUR.
OPIÐ HÚS 18:00 - 20:00 Í DAG FIMMTUDAGINN 23.JÚNÍ
TIL LEIGU
HÁRGREIÐSLUSTOFA
Vinsamlega sendið fyrirspurnir á netfangið
furugerdi3@gmail.com eða í síma 693-8310
KL. 16-17 SUNNUDAGINN 13. NÓVEMBER
S
amþykkt stjórnar Samtaka atvinnulífsins, þar sem hvatt
er til að aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði
lokið og aðildarsamningur borinn undir þjóðaratkvæði,
sætir nokkrum tíðindum.
Til þessa hafa Samtök atvinnulífsins sem slík ekki beitt
sér fyrir aðildarumsókninni þótt meirihluti aðildarsamtakanna
hafi lýst stuðningi við hana. Það er ólíkt því sem gerzt hefur í nán-
ast öllum öðrum Evrópulöndum sem sótt hafa um aðild að ESB.
Þar hafa heildarsamtök atvinnulífsins verið einn helzti bakhjarl
aðildarumsóknar og talað fyrir
henni á opinberum vettvangi.
Þegar SA hafði uppi tilburði
í sömu átt í árslok 2008 hótaði
Landssamband íslenzkra útvegs-
manna að segja sig úr samtök-
unum og í nafni samstöðu ákvað
meirihluti aðildarsamtaka SA,
sem var fylgjandi því að sækja
um aðild að ESB, að láta kyrrt liggja.
Síðan hefur það gerzt að Alþingi ákvað að sækja um aðild að
Evrópusambandinu og aðildarviðræðurnar eru komnar á rekspöl.
Undanfarið hafa háværar raddir talað fyrir því að viðræðunum
verði hætt og aðildarumsóknin dregin til baka. Meirihlutinn
í stjórn Samtaka atvinnulífsins, fulltrúar fyrirtækja í iðnaði,
ferðaþjónustu, fjármálastarfsemi, verzlun og þjónustu, telur nú
greinilega tímabært að samtökin láti í sér heyra til að svara þeim
röddum. Nú liggur fyrir að stærstu heildarsamtök launafólks í
landinu, Alþýðusambandið, og heildarsamtök atvinnurekenda tala
bæði fyrir því að aðildarviðræðurnar verði til lykta leiddar.
Á átakafundi í stjórn SA, þar sem ályktunin var samþykkt, var
þeim möguleika meðal annars velt upp að bíða með hana þar til
eftir landsfund Sjálfstæðisflokksins. Um þær hugmyndir sagði
Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verzlunar og þjón-
ustu, í Fréttablaðinu í gær: „Samtök atvinnulífsins eiga ekki að
hafa skoðun eða álykta með og á móti eftir því hvenær stjórn-
málaöfl í landinu halda landsfundi. Við erum ekki deild í einum
flokki, við erum bara að vinna að hagsmunum atvinnulífsins.“
Þetta er rétt hjá Margréti en þó dyljast engum tengslin á milli
forystu Samtaka atvinnulífsins og Sjálfstæðisflokksins. Sjálf-
stæðisflokkurinn gefur sig enda út fyrir að vera flokkur sem vill
búa öflugu atvinnulífi samkeppnishæf rekstrarskilyrði og hefur
lengst af staðið undir nafni sem slíkur.
Ekki er líklegt að ályktun stjórnar SA hafi mikil áhrif á afstöðu
landsfundar Sjálfstæðisflokksins til aðildarumsóknarinnar. Þó
blasir við, þegar hún liggur fyrir, að sá frambjóðandi sem vinnur
formannsslaginn á landsfundinum mun þurfa að leggja talsvert
á sig til að sannfæra forystufólk í atvinnulífinu um að sú stefna
að draga aðildarumsóknina til baka sé rétt. Þessi stefna er eitt af
því fjölmarga sem Bjarni Benediktsson og Hanna Birna Kristjáns-
dóttir eru sammála um – en um leið blasir við að stór hluti atvinnu-
lífsins og þar með baklands flokksins er þeim ósammála.
Í ljósi breytinga á markmiði um nafnvöxt útgjalda gætu endanleg fjárlög falið í sér meiri útgjöld en felast í frum-
varpinu eða að verr muni ganga
að ná markmiði frumvarpsins
um aðhald í rekstri. Hver endan-
leg afkoma verður og hvaða áhrif
hún mun hafa á skuldsetningu
hins opinbera er því háð tölu-
verðri óvissu. Verði slakinn í ríkis-
fjármálum meiri en felst í grunn-
spánni gæti innlend eftirspurn
orðið eitthvað sterkari til skemmri
tíma en nú er spáð. Á móti er hætt
við að aukinn halli geti þrýst upp
innlendu vaxtastigi og þannig
rutt í burtu fjárfestingar áformum
einkaaðila . Fjármögnunar-
kostnaður hins opinbera yrði jafn-
f ramt meir i ,
sérstaklega ef
áhættu álag á
skuldbindingar
ríkissjóðs færi
að hækka á ný.
Þrýstingur á
gengi krónunn-
ar gæti því auk-
ist og þar með
hætta á meiri
verðbólgu sem
myndi að öðru óbreyttu kalla á
meira peningalegt aðhald. Efna-
hagsbatinn gæti því orðið hægari
sem að öðru óbreyttu myndi grafa
undan forsendunni fyrir sjálfbærni
opinberra skulda.“
Þetta er ekki tilvitnun í odd-
vita stjórnarandstöðunnar í fjár-
laganefnd. Kaflinn er heldur ekki
úr ræðu forseta ASÍ eða textum
talsmanna Samtaka atvinnulífs-
ins. Hér er á ferðinni rúmlega
vikugömul aðvörun bankastjóra
Seðlabankans í ritinu Peninga-
málum. Hennar hefur að litlu
verið getið þó að efni hafi staðið
til annars.
Þegar Jóhannes Nordal lét álit
sitt í ljós á viðsjárverðum tímum
var því bæði í kerskni og alvöru
jafnað við erkibiskups boðskap.
Engum gat þá dulist að bregðast
þurfti við. Á stuttum ferli hefur
núverandi seðlabankastjóri skilj-
anlega ekki náð viðlíka áhrifum.
En ríkisstjórnin hefur þó ekki
ástæðu til að ætla að hann mæli
af óheilindum í hennar garð.
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
SPOTTIÐ
ÞORSTEINN
PÁLSSON
AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR
Boðskapur erkibiskups
Seðlabankinn rifjar upp að á síðasta ári setti ríkisstjórnin sérstaka fjármálareglu. Til-gangur hennar var að setja
þak á nafnvöxt ríkisútgjalda. Þetta
var merkileg og ábyrg ákvörðun. En
nú aðeins ári síðar er ríkisstjórnin
sprungin á ætlunarverkinu. Seðla-
bankastjóra hefur því þótt rétt að
senda út sterka viðvörun.
Aðvörunin er að sönnu ekki spá.
En af henni verður þó ekki dreg-
in önnur ályktun en að hætta sé á
að illa geti farið að öllu óbreyttu.
Vænleg framtíð þjóðarinnar bygg-
ist hins vegar á því að menn hugsi
sinn gang og velji nýja leið framhjá
hættusvæðinu.
Boðskapurinn úr Seðlabankan-
um segir að þjóðarbúskapurinn sé
nærri því að sogast inn í gamal-
kunnan vítahring. Hringrásin er
þessi: Veruleg hætta er á of mikl-
um halla á ríkissjóði. Það kallar á
hækkun vaxta. Fari svo minnka
möguleikar atvinnufyrirtækjanna
til að auka fjárfestingu. Lántöku-
kostnaður ríkisins vex. Gengi krón-
unnar lætur undan síga þrátt fyrir
höftin.
Sú hlið sem snýr að almenningi er
þessi: Nýju atvinnutækifærin koma
ekki. Velferðin skerðist. Verðbólg-
an étur upp launin. Húsnæðislána-
vandinn vex. Með öðrum orðum:
Efnahagsbatinn verður hægari en
vera þyrfti. Það grefur undan mögu-
leikum Íslands til að standa undir
erlendum skuldum.
Fjármálareglan sprungin
Það merkilega er að þessi hvassa aðvörun hefur engin áhrif haft á stjórn-málaumræðuna sem í vax-
andi mæli einkennist af ótrúlegri
sjálfumgleði. Annars vegar láta
menn eins og Ísland hafi gert allt
rétt meðan aðrir gerðu allt vitlaust.
Hins vegar hlakkar í mönnum
vegna skuldavanda nokkurra ríkja
sem nú skekur efnahagslíf Evrópu.
Myndin sem dregin er upp sýnir
Ísland í skjóli meðan önnur ríki
Evrópu brenna. Það er falsmynd.
Veruleikinn er sá að hér voru
gerð alvarleg mistök, sérstaklega
í stjórn peningamála, rétt eins og
í Grikklandi, á Írlandi og Ítalíu.
Verðbólgan á Íslandi frá 2006 er
áttföld á við Írland. Mánuðina
fyrir hrun komu seðlabankamenn
bónleiðir og ráðalausir til búðar
eftir fundi austan hafs og vestan.
Þeim tókst ekki að bjarga krón-
unni. Eftir hrunið fékkst aðstoð
nokkurra Evrópusambandsríkja
á vegum AGS með ströngum skil-
yrðum um aðhald í ríkisfjármálum
og peningamálum.
Við höfum því hvorki efni á að
hneykslast á þeim ríkjum sem
biðja um hjálp né hinum sem
aðstoð veita og binda hana skil-
yrðum.
Neyðarlögin og samstarfið við
AGS voru rétt viðbrögð sem skil-
uðu árangri, en þó ekki þeim sem
að var stefnt af því að þeim var
ekki nægjanlega vel fylgt eftir.
Það eru því hrapalleg mistök að
gefa tauminn lausan á ný. Þeir
sem það gera loka augunum fyrir
því hvar Ísland er statt. Hinir
sem fyllast sjálfumgleði og vand-
lætingu gagnvart samstarfi þeirra
þjóða sem nú glíma við sama
vanda eru líka meðvitundarlausir
um stöðu Íslands.
Skuldakreppan í heiminum verð-
ur aðeins leyst með alþjóðlegu
samstarfi.
Sjálfumgleði
Stuðningur stjórnar SA við aðildarviðræður við
Evrópusambandið sætir tíðindum.
Atvinnulífið vill
klára málið