Fréttablaðið - 12.11.2011, Side 24
24 12. nóvember 2011 LAUGARDAGUR
Nú liggur fyrir frumvarp stjórnlagaráðs til stjórnar-
skipunarlaga og felur það í sér
töluverðar breytingar á stjórnskip-
un Íslands. Margar af tillögum
stjórnlagaráðs fela í sér umbætur
sem eiga rétt á sér og fela meðal
annars í sér að stjórnarskráin
verður auðskiljanlegri. Frum-
varpið inniheldur einnig mörg góð
nýmæli, eins og ákvæði um nátt-
úruauðlindir, og eftirlitshlutverk
þingsins með framkvæmdarvald-
inu er betur skilgreint. Þrátt fyrir
að það sé vissulega margt gott að
finna í frumvarpi stjórnlagaráðs
er ekki þar með sagt að frumvarp-
ið þarfnist ekki frekari skoðunar.
Nokkur ákvæði í frumvarpi
stjórnlagaráðs hafa ef til vill ekki
verið hugsuð til enda og má þá
helst nefna 113. gr. sem fjallar
um breytingar á stjórnarskrá.
Samkvæmt fyrri málsgrein 113.
gr. skal frumvarp til breytinga á
stjórnskipunarlögum, sem sam-
þykkt hefur verið af Alþingi, borið
undir atkvæði allra kosninga-
bærra manna. Þetta ákvæði felur
í sér mikla aðkomu almennings af
stjórnarskrárbreytingum og er til
mikilla bóta frá því sem nú er.
Hinsvegar sígur á ógæfuhliðina
í síðari málsgreininni. Samkvæmt
2. mgr. 113. gr. getur Alþingi fellt
niður þjóðaratkvæðagreiðslu
vegna stjórnskipunarlaga með
samþykki 5/6 hluta alþingismanna.
Þetta ákvæði felur þar af leiðandi
í sér að Alþingi geti í krafti auk-
ins meirihluta breytt stjórnar-
skránni án aðkomu þjóðar innar.
Vissulega er hér um að ræða stór-
an hluta alþingismanna, en þegar
fyrri breytingar á núgildandi
stjórnarskrá eru skoðaðar er ljóst
að slíkur meirihluti þarf ekki að
vera fyrirstaða. Mikil hefð er fyrir
þver pólitískri samstöðu á Alþingi
þegar stjórnlagabreytingar eiga í
hlut og eru slík frumvörp gjarnan
flutt sameiginlega af formönnum
allra þingflokka. Frumvörp um
breytingar á stjórnarskrá hafa
jafnvel farið í gegnum Alþingi án
þess að nokkur þingmaður greiði
atkvæði gegn því, sbr. lög nr.
97/1995.
Í skýringum stjórnlagaráðs við
113. gr. frumvarpsins segir að til-
gangur 5/6 reglunar sé, ef „gera
[þurfi] smávægilegar breytingar
á stjórnarskrá, t.d. vegna minni
háttar þjóðréttarsamninga“.
Tvennt þarf að hafa í huga þegar
að skýringin við 113 gr. er lesin.
Í fyrsta lagi þarf að íhuga hvað
Alþingi myndi telja „smávægi-
legar breytingar … vegna minni
háttar þjóðréttarsamninga“. Það er
nánast ómögulegt að svara þeirri
spurningu öðruvísi en
það færi eftir pólitísku
mati Alþingis. Þá má
spyrja hvort þjóðréttar-
samningar sem krefj-
ast breytinga á stjórn-
arskrá geti í raun talist
vera „minniháttar“? Ef
til vill væri réttara að
telja alla þá þjóðréttar-
samninga meiriháttar
sem fela í sér þörf fyrir
slíkar breytingar.
Í öðru lagi þarf að
hafa í huga að þessa
ábendingu er aðeins að
finna í skýringum við
ákvæðið, ekki er lagt
til að þetta komi fram í
stjórnarskrárákvæðinu
sjálfu. Skýringar hafa
ekki lagagildi og því getur þessi
texti aðeins haft leiðbeiningar
gildi fyrir Alþingi en bindur ekki
hendur þess ólíkt sjálfum texta
stjórnarskrárinnar. Í áliti forsætis-
ráðuneytisins 18. júlí 2011 kemur
fram „að [stjórnarskrárbreyting-
ar] þurfi að samþykkja í þjóðar-
atkvæðagreiðslu nema 5/6 þing-
manna hafi greitt þeim atkvæði
sitt“. Hér virðist ráðuneytið leggja
þann skilning í ákvæðið að spurn-
ingin sé einfaldlega hvort nægur
meirihluti náist og er í raun ekkert
því til fyrirstöðu.
Samkvæmt núgildandi stjórnar-
skrá þarf að rjúfa þing og boða til
kosninga ef Alþingi samþykkir
breytingu á stjórnarskrá og þarf
hið nýkjörna þing að samþykkja
breytingarnar óbreyttar. Vissu-
lega er hægt að deila um hvort
þessar alþingiskosningar snúist í
raun um stjórnarskrárbreyting-
arnar líkt og stjórnlagaráð bendir
réttilega á. Aftur á móti er ekki
hægt að deila um að þjóðin fái
að minnsta kosti tækifæri til að
segja sitt álit á öllum stjórnlaga-
breytingum með núgildandi fyrir-
komulagi, ólíkt því sem 2. mgr.
113. gr. frumvarps stjórnlagaráðs
gerir ráð fyrir.
Nú liggur fyrir tillaga til þings-
ályktunar um meðferð frumvarps
stjórnlagaráðs á Alþingi. Sam-
kvæmt tillögunni er því haldið
opnu að breyta megi frumvarpi
stjórnlagaráðs ef ástæða þykir til,
en stjórnlagaráð verði
þó haft með í ráðum. Í
raun væri ekki verið að
grípa fram fyrir hendur
stjórnlagaráðs ef ráð-
ist væri í breytingar
á frumvarpinu, vegna
þess að hlutverk stjórn-
lagaráðs var að gera
tillögur um breytingar
á stjórnarskrá í frum-
varpsformi. Jafnvel
þótt einhverjar breyt-
ingar verði gerðar á
frumvarpinu er ekki
þar með sagt að stjórn-
lagaráð hafi ekki lagt
mikið af mörkum, með
þeim grunni sem frum-
varpið felur í sér.
Þessi pistill er ekki
skrifaður með það í huga að
verja núgildandi stjórnarskrá.
Ég vil aðeins benda á að frum-
varp stjórnlagaráðs í núverandi
mynd er ef til vill ekki besti
kostur inn fyrir framtíðar stjórn-
skipan landsins. Þarf þá sérstak-
lega að skoða síðari málsgrein
113. greinar frumvarpsins. Með
ákvæði sem gefur Alþingi vald
til að breyta stjórnarskránni án
aðkomu þjóðarinnar, er að mínu
mati vegið að sjálfsákvörðunar-
rétti þjóðarinnar og skiptir þá
engu hvort Alþingi þurfi til þess
aukinn meirihluta. Ef Alþingi
verður gefið þetta vald og þar
af leiðandi forræði á stjórnar-
skránni, getum við ekki lengur
sagt að valdið spretti frá þjóðinni.
Nokkur
ákvæði í
frumvarpi
stjórnlaga-
ráðs hafa ef
til vill ekki
verið hugsuð
til enda ...
Samtök iðnaðarins bjóða félagsmönnum sínum, starfsfólki þeirra
og samstarfsaðilum til Uppskeruhátíðar á Ári nýsköpunar.
Staður : Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu
Stund: Miðvikudagur 16. nóvember, kl. 17.00 – 19.30
Dagskrá :
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI
Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi
Sköpun, nýsköpun, innblástur og eftirfylgni
Léttar veitingar
Allir velkomnir
Uppskeruhátíð
Ár nýsköpunar - við erum rétt að byrja ...
Hvort sprettur valdið frá þjóð
eða þingi?
Sól skein skært við Skagfirð-ingum og gestum þeirra
þegar Fjölbrautaskólinn á
Sauðárkróki tók í notkun nýtt
Hátæknimenntasetur á dögun-
um. Þar með var staðfest merki-
legt samstarf iðnfyrirtækja á
svæðinu, sveitarstjórna, skólans
og HAAS Automation í Belgíu en
það opinberast í nýjum og tækni-
lega fullkomnum CNC stýrðum
vélum sem kennt verður á í fram-
tíðinni í skólanum. Hér er um
mikla fjárfestingu að ræða sem
ber vott um stórhug skólans og
atvinnulífsins í Skagafirði.
Framtakið lýsir jafnframt
sannfæringu fyrir því að með því
að bjóða slíkt nám innan málm-
og véltæknigreinarinnar gef-
ast ný og áður óþekkt tækifæri
í héraðinu til að efla tæknigrein
sem aðrar þjóðir hafa byggt vel-
ferð sína á. Undirstaða alls þessa
er þó að skólinn geti kennt verð-
andi iðnaðarmönnum hina nýju
og heillandi tækni. Til þess þarf
réttu tækin og kunnáttu kenn-
ara. Síðan er það fyrirtækjanna
að nýta þá þekkingu til að færa
út starfsemi sína með hönnun og
framleiðslu verðmætra og eftir-
sóttra vara eða íhluta í stærri
heildir.
Fordæmi Finna
Það, sem gerir þessa atburðarás
athyglisverða, er hið uppbyggi-
lega samstarf sem tekist hefur
milli skóla og atvinnulífsins á
Sauðárkróki og hefur víða boðað
nýja tíma eins og best sést í Finn-
landi. Eftir hrunið þar upp úr
1990 varð Finnum ljóst að beina
þurfti sjónum strax að skóla-
kerfinu og stuðla að víðtækri
samvinnu þess við atvinnu lífið
og sveitar- og svæðisstjórnir
um allt land. Á hverju svæði var
mótuð stefna um hvaða atvinnu-
greinar skyldi efla sérstaklega.
Lykillinn var skýr framtíðar-
sýn í verk- og tæknimenntun og
samvinna atvinnulífs, skóla og
svæðisstjórna. Í kjölfarið voru
styrktir einskonar fjöltækni-
skólar sem síðan hafa veitt hag-
nýta menntun og starfsþjálfun í
samræmi við markaða atvinnu-
stefnu á svæðinu. Afrakstur
þessarar aðferðar Finna er veru-
legur og ekki þarf að efast um að
þetta framtak Skagfirðinga mun
á sama hátt færa þeim farsæld í
framtíðinni.
Að bíða eftir öðrum
Ekki er vitað til að í aðdraganda
þessa merka framtaks á Sauðár-
króki hafi verið leitað „suður“
til að koma setrinu á fót. Hve oft
er sá steinn klappaður að ekki
sé nægur skilningur hjá þeim
„fyrir sunnan“ á því að koma
nauðsynlegum framfaramálum
í framkvæmd? Einlægt er beðið
eftir að þingmenn, ráðherrar eða
eitthvert annað galdrafólk komi
færandi hendi og bregði töfra-
sprota sínum á loft til að efla
atvinnulífið. Þegar slík undur
gerast ekki þá kvarta menn
gjarnan sáran um skilningsleysi
og jafnvel andúð fyrrnefndra á
viðkomandi byggðarlagi. Verða
af þessu öllu oft hin mestu leið-
indi.
En Skagfirðingar létu ekki
deigan síga í þessum efnum
frekar en öðrum. Þess í stað tóku
fyrirtæki á svæðinu, skólinn og
sveitarfélagið saman höndum og
leituðu út í hinn víða heim með
góðra manna hjálp og úr varð
tæknivætt hámenntasetur sem
á eftir að lyfta verkmenntun í
hérað inu á hærra stig.
Málinu fylgt eftir
Til að leggja áherslu á vilja sinn
og staðfestu afhentu samtök
stuðningsaðila, sem kalla sig Sátt-
mála til sóknar, skólanum eina
milljón króna við vígslu athöfnina
til að markaðssetja hann. Það er
vissulega gott fordæmi og til
marks um að full alvara fylgir
því að efla veg og virðingu málm-
og véltæknigreinarinnar. Sú við-
leitni verður áreiðanlega mikið
gæfuspor fyrir þróun atvinnulífs
í Skagafirði, hefur víðtæk áhrif
og verður öðrum gott fordæmi.
Ekki er vanþörf á þegar leitað er
logandi ljósi um allt land að arð-
bærum og áhugaverðum störfum.
Framtak til fyrirmyndar
Ný stjórnarskrá
Ölvir
Karlsson
laganemi
Menntamál
Ingólfur
Sverrisson
forstöðumaður málm-
og véltæknisviðs
Samtaka iðnaðarins