Fréttablaðið - 12.11.2011, Page 58

Fréttablaðið - 12.11.2011, Page 58
12. NÓVEMBER 2011 LAUGARDAGUR2 ● góð ráð fyrir græn jól ● Veljið pappír sem hægt er að endurvinna, t.d. pappír sem er merktur þannig eða einfaldan maskínupappír. ● Búið til gjafaöskjur úr endur- vinnanlegum pappír, t.d. skókassa, sem hægt er að skreyta á persónu- legan hátt ● Dagblöð, tímarit eða plaköt geta komið vel út sem gjafapappír og útkoman getur orðið mjög frum- legur jólapakki ● Útbúið gjafapoka úr efnisafgöng- um sem síðan er hægt að nota áfram til annarra hluta þegar búið er að taka utan af pakkanum. ● Endurnýtið gjafapappír sem er heill og endurnýtanlegur ● Stilltu notkun gjafaborða í hóf. Hægt er að nota garn í staðinn eða skreyta pakkann á annan máta. Notaðu hugmyndaflugið! Hægt er að flétta garn úr ýmsum litum. ● Það er góð hugmynd er að setja tvær gjafir saman í eina með því að nota sjálfa gjöfina í innpökk- unina, t.d. tauinnkaupapoka, trefla, sjöl og dúka. Margar frábærar innpökkunaraðferðir er hægt að nálgast á veraldarvefnum, eins og t.d. á www.recyclenow.com og www.furoshiki.com. Þar eru tillögurað flottum lausnum sem eru skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnum jólapökkum. Það er ekkert kjánalegt eða asnalegt að nota síðan taudúkinn bara aftur til innpökk- unar fyrir næsta gjafapakka; bara smart hugsun og gaman að fylgjast með ferðalagi dúksins næstu jólin. Umhverfisstofnun vinnur að velferð almennings með því að beita sér fyrir heilnæmu umhverfi, öruggum neysluvörum og verndun og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Stofnunin sinnir stjórnsýslu, eftirliti, fræðslu og þjónustu við fyrirtæki og almenning. Kristín Linda Árnadóttir er forstjóri Umhverfisstofnunar. Nú eru jólin á næsta leiti og inn- kaup jólagjafa fram undan. Á sama tíma berast reglulega frétt- ir af skaðlegum efnum í alls kyns vörum. Hvernig stendur á því að það eru varasöm efni í neytenda- vörum? Mörg efni eru notuð við fram- leiðslu á vörum og stundum kemur í ljós síðar að efni sem í upphafi var talið í lagi er það ekki eða að þegar blandað er saman ákveðn- um efnum þá geta hin svokölluðu kokteiláhrif gert efni varasöm. Á hverju ári eru búin til mörg ný efni sem langflest eru til gagns en sum geta verið varasöm og þá sérstak- lega fyrir þá sem eru viðkvæmir, eins og börn og fólk með ofnæmi eða óþol. Hvaðan koma þessi hættulegu efni og hvar enda þau? Fáar vörur sem fást á Íslandi eru framleiddar hér. Eins og um- búðirnar bera með sér eru þær oft framleiddar í til dæmis Kína eða öðrum fjarlægum löndum sem ekki hafa jafn stranga löggjöf og við hér. Mikilvægt er að athuga hvort vara sé CE merkt sem þýðir að hún er framleidd í samræmi við evr- ópska staðla og uppfylli þær kröf- ur sem við gerum. Að velja um- hverfisvottað er líka auðveld leið fyrir neytendur sem vilja velja betri kostinn fyrir heilsu og um- hverfi. Neytendur þurfa hins vegar að vara sig sérstaklega á fölsuðum vörum þar sem þá er algjör óvissa fyrir því hvaða efni eru í vörunni. Þegar við ræðum um hvar efnin enda er mikilvægast að huga að sorpflokkun. Í mínum huga er ljóst að það sem endar í urðun mun hafa í för með sér mengun en það sem er flokkað felur í sér verðmæta- sköpun. Af hverju geta yfirvöld ekki fjar- lægt allar vörur með hættulegum efnum af markaðnum? Yfirvöld hafa eftirlit með merk- ingum vara sem fluttar eru inn og seldar í verslunum. Erfitt er að skoða innihaldsefni í hlutum því það kallar á dýrar rannsóknir. Þar höfum við þó tekið þátt í sam- evrópskum verkefnum eins og til dæmis greiningu innihaldsefna í flugeldum. Annars leggjum við áherslu á að fylgjast vel með nið- urstöðum rannsókna frá nágranna- þjóðum okkar. En það eru ýmsar leiðir til að flytja vörur inn til landsins og jafnframt kaupa marg- ir vörur erlendis frá, sumir jafnvel beint í gegnum veraldarvefinn. Því tel ég mikilvægt að koma upplýs- ingum á framfæri til almennings, eins og til dæmis með www.grænn. is, svo að allir hafi næga vitneskju til að geta tekið upplýstar ákvarð- anir um kaup á vörum. Þannig getur hver og einn verndað sig og sína fjölskyldu fyrir varasömum efnum. Jafnframt verður að hafa í huga að efni sem fullorðnir þola mjög vel geta verið varasöm fyrir börn. Þetta á til dæmis við horm- ónaraskandi efni. 4. Hvað er verið að gera til að bæta ástandið, bæði á Íslandi og á alþjóðavísu? Efni berast með veðri og haf- straumum á milli heimsálfa og virða ekki landamæri. Efni sem eru þrávirk og brotna ekki niður ná síðan að safnast fyrir í fæðu- keðjum náttúrunnar. Því er mik- ilvægt að vinna að þessum mála- flokki á alþjóðlegum vettvangi. Þar er markmiðið að tryggja að efni sem eru hættuleg séu ekki sett á markað eða tekin af mark- aði ef rannsóknir leiða í ljós að efni eru varasöm. Við höfum innleitt svokallaða REACH löggjöf sem nær til allrar Evrópu og miðar að því að láta framleiðendur efna sýna fram á að þau séu ekki hættu- leg áður en þau eru sett á mark- að í stað þess, eins og verið hefur, að það sé á ábyrgð stjórnvalda að sýna fram á að efni séu hættuleg. Ábyrgðin á að sjálfsögðu að vera hjá þeim sem framleiðir efnið. Mikilvægt að allir geti tekið upplýstar ákvarðanir Á hverju ári eru búin til mörg ný efni sem langflest eru til gagns en sum geta verið varasöm og þá sérstaklega fyrir þá sem eru við- kvæmir,” segir Kristín Lind Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar. 1. VELDU GÆÐI FREKAR EN MAGN Forðumst óvandaðar eftirlíking- ar sem bila oftast fljótt og enda í staðinn í ruslinu. 2. LEITAÐU AÐ SVANI! Svansmerktar vörur fást í öllum helstu verslunum og úrval þeirra fer stöðugt vaxandi. Svanurinn klikkar ekki. 3. GERÐU KRÖFUR SEM NEYTANDI Það má spyrja í búðum. Máttur neytandans er mikill því hann getur aukið eftirspurn eftir um- hverfisvænni vörum og þá mun markaðurinn auka framboðið. 4. VERTU UPPLÝSTUR NEYTANDI Skoðaðu www.grænn.is. Góð ráð fyrir græn jólainnkaup Jólunum fylgja mikil innkaup og þá er um að gera að velja rétt. Hefðbundinn jóla- og gjafapappír er ekki endurvinnanlegur vegna efnainnihalds í litum og annarrar sérmeðhöndlunar við framleiðslu. Ef marka má tölur frá nágrannaþjóðum okkar fara fleiri tonn af jólapappír í ruslið um jólahátíðarnar sem leiðir til mengunar og mikils álags á um- hverfið. Ýmsir valkostir eru í stöðunni sem geta dregið úr mengun þegar pakka á inn jólagjöfum: Notum hugmyndaflugið við innpökkunina! ● HVAÐ LEYNIST UNDIR RÚM INU? Nýlega var unnin rannsókn sem fólst í því að efnagreina ryk undir rúmi í tólf löndum um allan heim. Fjöldi skað- legra efna fannst í rykinu eins og t.d. blý, kadmíum og þalöt sem eru plast-mýk- ingarefni. Þau lönd sem tóku þátt í rann- sókninni voru Svíþjóð, Belgía, Ítalía, Tékk- land, Þýskaland, Ungverjaland, Filippseyj- ar, Kenía, Malasía, Suður-Afríka, Tansanía og Úganda og kom ekkert land betur út en annað. Útgefandi: Umhverfisstofnun | Heimilisfang: Suðurlandsbraut 24 | Ritstjóri: Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir | Ábyrgðarmaður: Kristín Linda Árnadóttir | Forsíðu- og opnumynd: Edda Hrönn Kristinsdóttir | Vefsíða: www.ust.is | Sími: 591 2000
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.