Fréttablaðið - 12.11.2011, Blaðsíða 98

Fréttablaðið - 12.11.2011, Blaðsíða 98
12. nóvember 2011 LAUGARDAGUR50 Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gyðríður Þorsteinsdóttir áður á Hlíðarbraut 8, Hafnarfirði, sem lést laugardaginn 5. nóvember, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 14. nóvember kl. 13.00. Þórir Ingvarsson Edda Jónasdóttir Hjördís Edda Ingvarsdóttir Jón Vignir Karlsson Sigríður Ólöf Ingvarsdóttir Þuríður Guðný Ingvarsdóttir Árni Pálsson Ingveldur Ingvarsdóttir Benedikt Jónasson barnabörn og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Svanhildur Snæbjarnardóttir Áður til heimilis Hellu, Hellissandi, lést á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 10. nóvem- ber. Útför hennar fer fram frá Ingjaldshólskirkju laugardaginn 19. nóvember kl. 14.00. Gunnar Már Kristófersson Auður Jónsdóttir Steinunn J. Kristófersdóttir Lúðvík Lúðvíksson Sigurjón Kristófersson Sigurlaug Hauksdóttir Snæbjörn Kristófersson Kristín S. Karlsdóttir Svanur K. Kristófersson Anna Bára Gunnarsdóttir Þröstur Kristófersson Sigurbjörg E. Þráinsdóttir Kristinn Valur Kristófersson Guðríður A. Ingólfsdóttir ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 551 3485/896 8284 (24 tíma vakt) Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri - S. 892 8947 Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Bryndísar Sveinsdóttur Sunnuvegi 9, Selfossi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Fossheima fyrir góða umönnun. Ingvar Jónsson Þórdís Kristjánsdóttir Þórir Jónsson Pálmi Jónsson Guðrún Elíasdóttir Guðmundur Jónsson Áslaug Pálsdóttir Haukur Jónsson Aldís Anna Nielsen barnabörn og barnabarnabörn. ÞÓRBERGUR ÞÓRÐARSON (1888-1974) rithöfundur lést þennan dag. „Ég er eins sannfærður um líf eftir dauðann eins og lífið fyrir dauðann.“ Síðustu tíu íbúarnir í Flatey á Skjálfanda fluttu úr eyjunni þennan dag fyrir 44 árum. Hundrað manns manns höfðu búið í Flatey fáum árum áður en þegar fólki fór að fækka þar fjaraði fljótt undan byggðinni af ýmsum ástæðum. Misserin áður en síðustu íbúarnir yfir- gáfu eyjuna má segja að straumurinn lægi upp á land. Flestir fyrrverandi íbúar eyjarinnar settust að á Húsavík. Þrátt fyrir fólksflóttann úr Flatey hafði verið unnið þar að hafnarbótum fram á síðasta dag og því var verkamönnum við þá iðju haldið samsæti á Akureyri þennan sama dag og síðustu íbúarnir yfirgáfu eyjuna. Þrátt fyrir að heilsársbúseta í Flatey heyrði sögunni til frá þessum degi héldu margir Flatey- ingar áfram að nota eyna sem sumardvalarstað og vera þar með báta sína. ÞETTA GERÐIST: 12. NÓVEMBER 1967 Flatey á Skjálfanda fer í eyði Merkisatburðir 1905 Ný kirkja er vígð á Grund í Eyjafirði. 1905 Stækkun Fríkirkjunnar í Reykjavík er vígð. 1906 Blaðamannaávarpið er sett fram af ritstjórum sex helstu dagblaða á Íslandi. 1944 Þúsund manns farast þegar þýska skipið Tirpitz sekkur utan við Tromsø í Noregi. 1965 Hvassaleitisskóli er settur í fyrsta skipti. 1991 Íslenska stálfélagið hf. er tekið til gjaldþrotaskipta. 1994 Guðmundur Árni Stefánsson biðst lausnar sem félags- málaráðherra og við tekur Rannveig Guðmundsdóttir. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, Grétar Guðjónsson áður til heimilis að Melabraut 26, Seltjarnarnesi, lést á heimili sínu, Hrafnistu, Hafnarfirði, miðviku- daginn 9. nóvember. Útför auglýst síðar. Guðjón Grétarsson Gauti Grétarsson Hildigunnur Hilmarsdóttir Sigrún María B. Guðjónsdóttir Hildur B. Guðjónsdóttir Robert J. Riley Arnold B. Cruz Erin Y. Cruz Aron Gauti Gautason Kristina Nilssen Tinna Laxdal Gautadóttir Hjalti Friðriksson Daði Laxdal Gautason langafabörn. Það liggur nærri að panta verði við- talstíma hjá hinni 87 ára Kristjönu Þórðar dóttur, fyrrverandi matráðs- konu hjá Skeljungi, svo mikið er um að vera hjá henni í félagslífinu. Nýlega opnaði hún sína fyrstu málverka- sýningu í félagsmiðstöðinni að Hæð- argarði 31 í Reykjavík. „Já, ég veit ekki hvað ég er að gera, svona gamal- menni, að vera að halda sýningu,“ segir hún hlæjandi. „Ég er nýflutt á dvalar heimili aldraðra í Seljahlíð og finnst þetta ekki alveg ríma saman.“ Viðurkennir samt að auðvitað sé þetta gaman. „Ég hef alltaf haft svo mikla ánægju af allri handavinnu og list- iðnaði, þó ég hafi ekki getað sinnt því af alvöru fyrr en ég hætti að vinna utan heimilis. Ég byrjaði til dæmis ekki að mála með olíu litum fyrr en fyrir fimm árum, þegar ég var áttatíu og tveggja ára. Áður málaði ég mikið á postulín.“ Allt eru það olíumálverk sem Kristjana sýnir. Hún kveðst hafa málað þau í félagsmiðstöðinni að Hæðar garði með yndislegum leið- beinanda, Selmu Jónsdóttur og í frá- bærum hópi. „Annars hefði ég ekki haft svona gaman af þessu og enst svona lengi,“ segir hún. En þurfti ekki hugrekki til að fara að meðhöndla olíu- liti á níræðisaldri? „Nei, það kom svo- lítið af sjálfu sér. Ég var farin að titra aðeins og það hentaði ekki í postulín- inu en í olíu málun eru lengri strokur og ekki alveg eins mikil nákvæmni.“ Kristjana átti heima í Viðey fram yfir fermingu en flutti þaðan árið 1939. „Afi minn og amma fluttu til Viðeyjar 1916 og foreldrar mínir og þeirra börn voru þau síðustu af þeirra fjölskyldu til að búa þar,“ segir hún og kemur með smá söguskýringu. „Það var svo mikil atvinnustarfsemi í Viðey á fyrri hluta síðustu aldar, stór útgerðarstöð og pabbi vann við bensínafgreiðslu því engin höfn var í Reykjavík og dönsk olíuskip skipuðu upp olíu í Viðey sem svo var sett á tunnur og flutt í land.“ Spurð um aðsókn á sýninguna svarar Kristjana: „Það var mjög góð aðsókn þegar hún var opnuð, 74 skrif- uðu sig þá í gestabókina og þó vissi ég um marga sem ekki gátu komið þann dag.“ Þegar hún er beðin um að stilla sér upp á mynd í sýningarsalnum segir hún. „Æ, það er búið að taka svo margar. Ég er ekki vön svona athygli og finnst þetta frekar óraunverulegt. Auðvitað er ég samt ánægð með þess- ar góðu viðtökur við sýningunni.“ Nú heyrist kallað: „Bingó klukkan hálf tvö,“ fyrir aftan Kristjönu. „Já, það er alltaf hægt að hafa fullt að gera og auðvitað er ekki sjálfgefið að hafa heilsu til að sinna því á þessum aldri,“ eru lokaorð hennar í spjallinu. gun@frettabladid.is KRISTJANA ÞÓRÐARDÓTTIR: 87 ÁRA MEÐ FYRSTU MÁLVERKASÝNINGUNA Fór að mála fyrir fimm árum LISTAKONAN Í SÝNINGARSALNUM Í HÆÐARGARÐI 31 „Það er alltaf hægt að hafa fullt að gera og ekki sjálfgefið að hafa heilsu til að sinna því á þessum aldri,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.