Fréttablaðið - 12.11.2011, Page 120

Fréttablaðið - 12.11.2011, Page 120
12. nóvember 2011 LAUGARDAGUR72 sport@frettabladid.is Opið laugard. kl. 10-14 RAGNA INGÓLFSDÓTTIR er eina íslenska konan sem komst í átta manna úrslit á Iceland International í badminton sem fram fer í TBR-húsinu um helgina. Kári Gunnarsson og Magnús Ingi Helgason komust áfram hjá körlunum. Ragna mætir Helenu Cable frá Englandi í dag en þá spilar Kári við Tony Stephenson frá Írlandi og Magnús Ingi mætir hinum sterka Mathias Borg frá Svíþjóð. Ragna er sigurstranglegust í einliðaleik kvenna, en hún hefur unnið Iceland International fjórum sinnum, árin 2006, 2007, 2009 og 2010. Iceland Express karla í körfu Stjarnan-Snæfell 90-89 (52-56) Stig Stjörnunnar: Keith Cothran 34, Marvin Valdimarsson 28 (10 frák.), Fannar Freyr Helgason 13 (8 fráköst/5 stoðsendingar), Justin Shouse 7 (10 stoðs.), Sigurjón Örn Lárusson 3, Dagur Kár Jónsson 3, Guðjón Lárusson 2. Stig Snæfells: Jón Ólafur Jónsson 23, Quincy Hankins-Cole 16 (12 fráköst), Pálmi Freyr Sigurgeirsson 14 (7 stoðs.), Marquis Sheldon Hall 13 (6 frák./6 stoðs.), Sveinn Arnar Davidsson 11, Ólafur Torfason 7, Hafþór Ingi Gunnarsson 5. Grindavík-Haukar 98-74 (48-37) Stig Grindavíkur: Giordan Watson 27, Ólafur Ólafsson 15, J’Nathan Bullock 15, Þorleifur Ólafsson 14, Páll Axel Vilbergsson 11, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 8, Ármann Vilbergsson 3, Björn Brynjólfsson 3, Jóhann Árni Ólafsson 2. Stig Hauka: Jovanni Shuler 18, Chris Smith 15, Sævar Ingi Haraldsson 12, Örn Sigurðarson 11, Haukur Óskarsson 10, Davíð Páll Hermannsson 4, Óskar Ingi Magnússon 2, Helgi Einarsson 2. ÍR-Njarðvík 95-99 (50-38) Stig ÍR: Nemanja Sovic 31, James Bartolotta 31, Kristinn Jónasson 18, Eiríkur Önundarson 6, Níels Dungal 6 (6 frák./5 stoðs.), Ellert Arnarson 3. Stig Njarðvíkur: Travis Holmes 33 (15 frák.), Cameron Echols 28 (10 frák.), Elvar Már Friðriksson 12 (5 stoðs.), Ólafur Helgi Jónsson 10, Maciej Stanislav Baginski 10, Styrmir Gauti Fjeldsted 4, Rúnar Ingi Erlingsson 2. STAÐAN Í DEILDINNI Grindavík 6 6 0 534-441 12 Stjarnan 6 5 1 553-496 10 KR 6 4 2 529-523 8 Keflavík 6 4 2 528-486 8 Þór Þ. 6 3 3 538-530 6 ÍR 6 3 3 535-538 6 Snæfell 6 3 3 550-516 6 Njarðvík 6 3 3 514-513 6 Fjölnir 6 3 3 528-544 6 Tindastóll 6 1 5 482-537 2 Haukar 6 1 5 476-545 2 Valur 6 0 6 453-551 0 Sænski körfuboltinn LF Basket - 08 Stockholm HR 89-80 Helgi Már Magnússon skoraði 17 stig fyrir 08. Jämtland Basket - Norrköping 89-98 Brynjar Þór Björnsson skoraði 11 stig. ecoÖrebro - Sundsvall Dragons 79-92 Jakob Örn Sigurðarson skoraði 22 stig og Pavel Ermolinskij var með 20 stig. Hlynur Bæringsson lék ekki vegna meiðsla í baki. ÚRSLITIN Í GÆR KÖRFUBOLTI Grindavík er áfram á toppi Iceland Express-deildar karla eftir 24 stiga sigur á Hauk- um í Grindavík í gær, en Grind- víkingar hafa unnið alla sex leiki sína til þessa. Stjarnan er komin upp í annað sætið eftir 90-89 sigur á Snæfelli í æsispennandi leik í Garðabænum. Ótrúlegasti leikur kvöldsins var þó í Selja- skólanum, þar sem ÍR-ingar misstu frá sér að því er virtist unninn leik. Marvin og Cothran magnaðir Stjarnan vann frábæran sigur gegn Snæfelli, 90-89, í sjöttu umferð Iceland Express-deildar karla í gær, en leikurinn fór fram í Ásgarði. Snæfellingar fengu möguleika á því að gera út um leikinn í blá- lokin en þeir náðu ekki skoti á körfuna og því fóru heimamenn með sigur af hólmi. Stjarnan byrjaði leikinn mun betur og náði fljótlega góðri forystu en gest- irnir gáfust ekki upp og komust aftur inn í leikinn í síðari hálf- leik. Sigurinn gat fallið báðu megin en það voru heimamenn sem voru sterkari á endasprett- inum. Marvin Valdimarsson átti frábæran leik fyrir Stjörnuna og gerði 28 stig og tók tíu fráköst. Keith Cothran átti einnig magn- aðan leik fyrir Stjörnuna með 34 stig. Jón Ólafur Jónsson skoraði 23 stig fyrir Snæfell. „Það munaði ansi litlu að við töpuðum aftur á flautukörfu en sem betur fer gerðist það ekki, svona upp á geðheilsu mína,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir sigurinn í gær. „Þetta lítur nokkuð vel út hjá okkur eins og staðan er og við erum að vinna virkilega sterka andstæðinga. Það hefur verið erf- itt að vera án Jovan (Zdravevski) en við erum að standast það nokkuð vel. Það munar í raun bara einu frákasti til eða frá á liðunum í kvöld.“ „Ég er mjög ósáttur við það hvernig við komum til leiks í kvöld,“ sagði Ingi Þór Steinþórs- son, þjálfari Snæfells, eftir tapið í gær. „Við náðum samt sem áður að lagfæra það og komumst aftur vel inn í leikinn en það bara dugði ekki til í kvöld. Við erum bara að gefa þeim þennan sigur í kvöld með því að misnota allt of mörg vítaskot. Við spiluðum fárára- lega lélega vörn á Keith Cothran í þessum leik og á tímabili var eins og hann væri veira sem mætti ekki snerta.“ „Það er æðislegt að ná þessum sigri,“ sagði Marvin Valdimars- son, leikmaður Stjörnunnar, eftir sigurinn, en Marvin átti frábær- an leik. „Þetta var samt bara ágæt frammistaða hjá okkur í kvöld. Við vorum í vandræðum á móti svæðisvörn þeirra, en vana- lega spilum við vel gegn slíkum varnar leik. Ég hef aldrei æft eins mikið og í sumar og það er svo sannarlega að skila sér núna, það er mikill kraftur í mér þessa dag- ana.“ 16-0 undir en unnu samt Hið unga lið Njarðvíkinga sýndi mikinn styrk í Seljaskóla, en liðið kom í leikinn búið að tapa þremur leikjum í röð og byrjaði leikinn á því að lenda 16-0 undir. Njarðvík- ingar unnu sig hægt og rólega inn í leikinn og voru síðan sterkari á lokasprettinum. Staðan var vissulega ekki björt þegar ÍR var 23-6 yfir um miðan fyrsta leihluta og Nemanja Sovic var raðandi niður körfum. Njarð- víkingar komu sér hins vegar inn í leikinn með því að vinna þriðja leikhlutann 31-23 og minnka muninn í fjögur stig, 73-69, fyrir lokaleikhlutann. Þeir litu síðan ekki til baka eftir þeir komust yfir og tryggðu sér frábæran sigur. Sigur Grindavíkur á Haukum var öruggur, en Ívar Ásgríms- son stýrði Haukum þarna í frysta sinn. Haukar héngu aðeins í heimamönnum í fyrsta leikhluta og héldu muninum í ellefu stigum fram að lokafjórðunginum. Grind- víkingar unnu hins vegar fjórða leikhlutann 29-16 og tryggðu sér 24 stiga sigur. - sáp, óój Stjarnan upp í annað sætið Stjarnan vann sigur á Snæfelli í spennuleik í Garðabænum í gær og Njarðvík kom til baka og vann ÍR í Seljaskólanum þrátt fyrir að lenda 16-0 undir í upphafi leiks. Grindvíkingar eru áfram með fullt hús á toppi deildarinnar. SJÓÐHEITUR ÞESSA DAGANA Stjörnumaðurinn Marvin Valdimarsson hefur skorað 53 stig í síðustu tveimur leikjum Stjörnunnar, sem báðir hafa unnist. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Eftir fyrri leikina í umspilsrimmunum fyrir úrslita- keppni EM 2012, sem fóru fram í gær, eru Írland og Króatía nánast örugg með farseðla sína til Pól- lands og Úkraínu næsta sumar. Þá standa Tékkar einnig vel að vígi en Portúgal gerði markalaust jafntefli við lið Bosníu og Hersegó- vínu á útivelli. Síðari leikirnir fara fram á þriðjudag. Írar gerðu sér lítið fyrir og unnu 4-0 sigur á Eistlendingum í Tall- inn. Robbie Keane skoraði tvö mörk fyrir Íra en þeir Keith And- rews og Jon Walters hin. Eistlendingar börðust hetju- lega í leiknum en voru sjálfum sér verstir. Þeir misstu tvo leikmenn af velli með rautt spjald, en báðir fengu síðari áminningu sína fyrir að stöðva Robbie Keane sem var þá að sleppa inn fyrir vörn heima- manna. „Hingað komum við til að reyna að ná jákvæðum úrslitum en engin nátti von á þessu,“ sagði Keane eftir leikinn. „Strákarnir stóðu sig gríðarlega vel, frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Ef okkur tekst ekki að komast áfram úr þessu verðum við algerlega eyðilagðir. Við hlökkum til leiksins á þriðju- daginn.“ Írar komust ekki í gegnum umspilið fyrir HM eftir naumt tap fyrir Frökkum, sem komust áfram á marki sem var skorað eftirminnilega eftir að Thierry Henry handlék knöttinn. En fátt virðist ætla að stöðva þá í þetta skiptið. Írar komust síðast á stór- mót árið 2002 en hafa einu sinni áður komst í úrslit EM – árið 1988 í Vestur-Þýskalandi. Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Tyrkja, er líklega á leið úr leik í umspilinu í annað skiptið í röð eftir 3-0 tap fyrir Króatíu á heima- velli. Síðast var hann þjálfari Rússa sem töpuðu fyrir Slóveníu fyrir HM 2010. Tékkar unnu svo 2-0 sigur á Svartfellingum í Prag þar sem Tomas Rosicky, leikmaður Arsenal, lagði upp bæði mörk sinna manna í leiknum. - esá Írland, Króatía og Tékkland standa vel að vígi en Portúgal náði ekki að skora: Írar fóru illa með Eistlendinga RAUTT Eistlendingurinn Andrei Stepanov brýtur hér á Robbie Keane. MYND/GETTY SUND SH-ingurinn Ingibjörg Kristín Jónsdóttir var atkvæða- mikil í þriðja hlutanum á ÍM í sundi í 25 metra laug í Laugar- dalshöllinni í gær. Ingibjörg Kristín vann tvær greinar og setti annað af tveimur Íslandsmetum sem féllu í þessum hluta. Ingibjörg vann 100 metra skriðsund þar sem hún hafði betur en Íslandsmethafinn Ragnheiður Ragnarsdóttir, sem náði aðeins þriðja sætinu. Ingibjörg varð síðan fyrst íslenskra kvenna til að synda 50 metra baksund undir 28 sekúndum, en hún synti þá á 27,91 sekúndu og bætti eigið met. Skagastúlkan Inga Elín Cryer bætti sitt eigið met í 200 metra flugsundi þegar hún synti á 2:16,72 mínútum, en gamla metið hennar var 2:17,97 mínútur. Inga Elín setti einnig Íslandsmet í 800 metra skriðsundi í fyrrakvöld. KR-ingurinn Ragnheiður Ragnars dóttir synti 100 metra fjórsund á 1:01,72 mínútum í úrslitum í gær, sem var nákvæm- lega sami tími og þegar hún bætti Íslandsmet Erlu Daggar Haralds- dóttur í undanrásunum í fyrra- kvöld. - óój ÍM í sundi í 25 metra laug: Ingibjörg með 2 gull og eitt met INGIBJÖRG KRISTÍN JÓNSDÓTTIR Á palli með Bryndísi Rún Hansen og Ragnheiði Ragnarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Danir virðast vera komnir með gott tak á Svíum, en þeir unnu þá í þriðja sinn í röð í vináttulandsleik á Parken í Kaup- mannahöfn í gær. Danir unnu leikinn 2-0 en það voru þeir Nicklas Bendtner og Michael Krohn-Dehli sem skor- uðu mörkin. Danir og Svíar hafa þegar tryggt sér sæti á Evrópumótinu sem fer fram næsta sumar. - óój Norðurlandaslagur á Parken: Danskur sigur Íslandsmeistarar í sundi Í gær 100 m fjórs. kv. - Ragnheiður Ragnarsd. 100 m fjórs. ka. - Kristinn Þórarinsson 100 m skrið kv. - Ingibjörg Kristín Jónsd. 100 m skrið ka. - Orri Freyr Guðmundss. 200 m flug kv.- Inga Elín Cryer 200 m flug ka. - Jón Þór Hallgrímsson 200 m bringa kv. - Karen Sif Vilhjálmsd 200 m bringa ka. - Jakob Jóhann Sveinss. 50 m bak kv. - Ingibjörg Kristín Jóndóttir 50 m bak ka. - Kolbeinn Hrafnkelsson Í fyrrakvöld 800 m skrið kv. - Inga Elín Cryer 1500 m skrið ka. - Anton Sveinn McKee HANDBOLTI Þýsku dómararnir Bernd og Reiner Methe létust í gærkvöldi í bílslysi á leið sinni til Balingen, þar sem þeir áttu að dæma leik Balingen og Magdeb- urg í þýsku úrvalsdeildinni. Bíll þeirra fór yfir á öfugan vegar- helming og lenti framan á vöru- bíl. Bernd og Reiner voru tvíburar og 47 ára gamlir. Þeir voru í hópi fremstu dómarapara heims og höfðu dæmt saman 206 alþjóða- leiki, þar af marga með íslenska landsliðinu. - óój Þýsku dómarabræðurnir: Létust í bílslysi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.