Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 11
Þ
etta er allt að fara á
fullt,“ segir Geirþrúður
Þorbjörnsdóttir, eigandi
Föndurlistar í Mörkinni.
„Fólk byrjar yfirleitt að
föndra fyrir jólin í lok október
eða byrjun nóvember. Jólin eru
tvímælalaust aðalvertíðin hjá
okkur.“
Geirþrúður segir vörur til
skartgripagerðar vinsælastar hjá
þeim.
„Fólk er mikið að koma og
kaupa efni til skartgripagerðar
sem það svo gerir heima og gef-
ur í gjafir,“ segir Geirþrúður.
„Þetta er alltaf að aukast.“
Geirþrúður segist ennfremur
merkja það að fólk föndri jóla-
gjafirnar sjálft í meira mæli en
áður.
Boðið hefur verið upp á ým-
iskonar námskeið hjá Föndurlist
gegnum tíðina.
„Við höfum verið með nám-
skeið í skartgripagerð og leir,
námskeið í gerð jólakorta og
myndaalbúmagerð og eins kenn-
um við að gera heklaðar bjöllur,
það hefur verið mjög vinsælt.
Að búa til kerti og kerta-
skreytingar er líka vinsælt og
við seljum allt til kertagerðar og
fyrir skreytingarnar.“
Geirþrúður segir þau ekki
rýma til í versluninni fyrir jólin,
efni til jólaföndurs fáist allan
ársins hring og það sé alltaf tals-
verður fjöldi sem nýtir sér það.
„Fólk fer stundum strax í jan-
úar að huga að næstu jólum.“
birta@mbl.is
Morgunblaðið/Ernir
Sífellt fleiri
föndra jóla-
gjafirnar
Hjá Föndurlist er boðið
upp á margskonar hrá-
efni til jólaföndurs auk
þess sem þar er boðið upp
á ýmis námskeið.
Föndurbúðin Fjölbreytt úrval fyrir jólaföndrið.
Jólablað Morgunblaðsins 2010 101
Zeus heildverslun - Sia • Austurströnd 4 • Sími 561 0100
www.sia-homefashion.com
Kristín Ingva-
dóttir, 5 ára.
Hvað langar þig að fá í
jólagjöf?
Mig langar í litla tölvu.
Hver er uppáhalds-
jólasveinninn þinn?
Kertasníkir, því hann byrj-
ar á K eins og ég.
Hefurðu fengið kartöflu í
skólinn?
Nei, það er bara ef maður
er óþekkur.
Hvað borðarðu á jól-
unum?
Ég borða jólamat. Mér
finnst kjöt og grænar
baunir best.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Það er hefð á mörgum heimilum að spila skemmtileg
spil á jólum þó svo að sumir leyfi enga spilamennsku
fyrr en eftir miðnætti á aðfangadag.
Á hverju ári koma út þónokkur íslensk borðspil sem
er gaman að gefa og enn betra að þiggja.
Eitt þeirra er Jóla jólaspilið, nýtt íslenskt spil eftir
Svavar Björgvinsson. Svavar gaf út í fyrra spil sem
heitir Vikings.
Jóla jólaspilið er hannað, teiknað og gefið út af hon-
um einum. „Það er prentað hér á Íslandi en sett saman
heima í stofu með aðstoð fjölskyldu og vina. Það hentar
fyrir leikmenn frá 5 ára aldri en þetta er eina spilið á
markaðnum núna sem er fyrir þennan aldurshóp og er
ekki spurninga- eða orðaleikjaspil,“ segir Svavar.
Tvö jólaspil
Jóla jólaspilið inniheldur í raun tvö borðspil. Í fyrsta
lagi er það Pakkakapp þar sem hver liðsmaður er jóla-
sveinn og hefur það markmið að koma jólagjöfum í hús
til barna.
„Það eru sex hús sem leikmenn þurfa að koma pökk-
unum í en á leiðinni skjótast þeir á gormi langt áfram í
spilinu eða falla niður um göng svo það tekst ekki alltaf
að koma pökkunum á sinn stað áður en komið er á leið-
arenda,“ útskýrir Björgvin.
Hitt spilið nefnist svo Sleðakeppni en það er hratt
teningaspil þar sem markmiðið er að verða fyrstur í
mark og vinna bikarinn. En eins og oft er leynast ýms-
ar hindranir á leiðinni sem tefja fyrir.
birta@mbl.is
Pakkakapp
og sleða-
keppni
Nýtt íslenskt jólaspil komið á markað.
Árni Erik
Kolbeinsson
Schenk,
4 ára.
Hvað langar þig í í
jólagjöf?
Mig langar í disk sem
er með svörtum haus.
Hver er uppáhalds-
jólasveinninn þinn?
Stekkjarstaur.
Hvað borðarðu á jól-
unum?
Bara allt.
Hefurðu fengið kart-
öflu í skóinn?
Nei.
Morgunblaðið/Árni Sæberg