Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 107
94 Jólablað Morgunblaðsins 2010
Hringadróttinsþrennan –
Lord Of The Rings I-III.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um afreksverk Peters Jack-
sons, sem tókst það ómögulega, að
kvikmynda ævintýrabálkinn hans
Tolkiens um leitina að hringnum
goðsagnakennda. Umhverfið á
Nýja-Sjálandi er oft á tíðum ynd-
islega íslenskt og sagan á greini-
legar rætur í norrænni goðafræði.
En fyrst og fremst eru þær meist-
araleg, sígild afþreying um átök
góðs og ills, það er um áratugur lið-
inn frá því að sú fyrsta birtist á tjald-
inu og orðið tímabært að sjá þetta
stórkostlega þríeyki aftur og kynna
það í leiðinni nýjum áhorfendum.
Little Miss Sunshine
Litla fröken sólskin, er ein af gull-
molum þessa áratugar. Jákvæð,
fyndin, ádeilin með frábærum leik-
hóp sem skilar undursamlega fjöl-
skyldu sem er skipuð samvöldum
hornrekum mannlífsins. Ljósi
punkturinn er Olive litla (sú eina
sem er nokkurn veginn í lagi), sem
fær boð um að taka þátt í fegurð-
arkeppninni sem titillinn vísar til og
er fyrir börn, Steve Carell, Greg
Kinear, Tony Collette og Paul Dano,
eru öll óborganleg sem samvaldir
kexruglaðir fjölskyldumeðlimir sem
leggja í ógleymanlega ferð út á þjóð-
veginn á rúgbrauðsdruslunni.
Abigail litla Breslin og Alan Arkin
(uppskar Óskar), eru toppurinn á
ljúfustu og háðskustu mynd seinni
ára.
The Grinch That Stole
Christmas
Ósvikin jólamynd. Trölli er for-
ljótur og úrillur skrattakollur sem
hefur flúið mannheima og hírist ut-
angarðs á fjallstoppi ásamt hundtík
sinni. Verst líður honum á jólunum,
svo hann tekur sig til og stelur þeim.
Sígilt og skemmtilegt ævintýri með
alvarlegum undirtón. Jim Carrey
fær að láta öllum illum látum í aðal-
hlutverki Trölla og jafnframt er veg-
ið að kaupmennskunni, gjafajól-
unum, hræsninni, yfirborðs-
mennskunni og græðginni sem orðin
er samdauna hangikjötslyktinni.
It’s a Wonderful Life (1939)
Ef til er klassísk jólamynd er það
þessi perla frá Frank Capra og
James Stewart. Sá stórkostlegi leik-
ari hefur ekki verið betri sem faðir
sem óskar þess að hann hafi aldrei
fæðst – og verður að ósk sinni.
Hyggst fremja sjálfsmorð þegar
verndarengillinn hans sýnir þessum
örvinglaða manni fram á hversu
mikilvægur hann er í augum þeirra
sem hann ann mest. Viðkvæmt efnið
er aldrei væmið, oftar fyndið en al-
vörugefið og leikararnir hver öðrum
betri. Henry Travers er einkar
minnisstæður sem engillinn og
Donna Reed sem eiginkonan. Mynd
sem kemur öllum í sannkallað jóla-
skap!
Miracle on 34th Street (1947)
Önnur fullkomin jólamynd og
tær kvikmyndaklassík. Jólasveinn
(Edmund Gwenn) á vegum stór-
verslunarinnar Macy’s í New York
fullvissar litla telpu (Natalie Wood)
um að hann sé ósvikinn og kennir
henni í leiðinni að meta hinn eina
sanna jólaboðskap. Ætti að vera
skylduáhorf á öllum jólum. Sann-
kölluð kraftaverkamynd sem kem-
ur manni jafnan í gott og blessað
jólaskap.
Slumdog Millionaire (2008)
Hirti öll helstu Óskarsverðlaunin
fyrir tveimur árum, enda eitt af
meistaraverkum Dannys Boyle,
eftirtektarverðasta leikstjóra sam-
tímans. Ekki dæmigerð jólamynd
en á þess betur heima sem hluti af
hátíðahöldunum með sínum aug-
ljósa og fallega boðskap um misjöfn
kjör mannanna. Segir ógleym-
anlega af velgengni indversks,
bláfátæks drengs sem fær allar
óskir sínar uppfylltar – þvert á blá-
kaldan raunveruleikann. Kemur
öllum í gott skap og fyllir menn
bjartsýni, sem er gott mál – ekki
síst undir núverandi kring-
umstæðum.
White Christmas (1954)
Einn ekta, gamaldags jólasöng-
leikur á vel heima í hópnum. Hlaðinn
heimsfrægum tónsmíðum snillings-
ins Irvings Berlin, með Bing Crosby
og Danny Kaye sem leika fyrrver-
andi stríðsfélaga sem hafa gert það
gott sem skemmtikraftar. Fara um
landið þvert og endilangt, syngjandi
og dansandi. Jólin nálgast og fé-
lagarnir eru staddir á sveitakrá í
Vermont þegar það kemur í ljós að
eigandi hennar er fyrrverandi yf-
irmaður þeirra í herþjónustunni
(Dean Jagger) og reksturinn er að
fara í hundana. Crosby, Kaye og
Vera Ellen dansa og syngja sem
aldrei fyrr og fylla kassann af pen-
ingum og koma fjármálunum á rétt-
an kjöl.
A Christmas Carol (1951)
Visælasta jólaævintýri allra tíma
er að sjálfsögðu hið eina sanna eftir
Charles Dickens. Sagan af nirfl-
inum Skrögg hefur verið kvik-
mynduð í óteljandi skipti en margir
telja besta þessa bresku útgáfu
með Alastair Sim og ætti hún að
vera sýnd oftar en á jólunum. Hinn
aðlaðandi Sim gerir Skrögg að
margflóknum persónuleika í
heillandi kvikmyndagerð sem fylgir
sögunni betur en flestar aðrar út-
gáfur.
Die Hard I og II (1988 og 1990)
Langt í frá hreinræktaðar jóla-
myndir en gerast á hátíði ljóssins
þegar Bruce Willis hefur nóg að
gera við að salla niður óféti. En báð-
ar gerast á jólunum og einhver
ógleymanlegasta notkun á jólalagi
er þegar dölunum rignir yfir Los a
Angeles-búa ofan úr stórhýsi og
undir dynur „Let it snow, let it snow,
let it snow. Spennumyndir gerast
ekki betri og boðskapurinn skaðar
engan. Fín til brúks, eigum við að
segja annan í jólum?
Holiday Inn (1942)
Jólamynd fyrir þá sem hafa yndi
af tónsmíðum Irvings Berlin og
söng Bings Crosbys, sem fer með
aðalhlutverk eiganda skemmti-
staðar sem eingöngu er opinn yfir
hátíðirnar. Fred Astaire kemur
einnig við sögu ásamt Marjorie
Reynolds. Gott sýnishorn af jóla-
myndagerð undir hildarleik
seinna stríðs. Allt létt, sætt og
sykrað til að gleyna hörmung-
unum.
The Muppet’s Christmas Carol
(1992)
Sjálfur Sir Michael Caine fer á
kostum sem Skröggur í bráð-
skemmtilegri jólamynd með Prúðu-
leikurunum, vitaskuld byggðri á
Jólaævintýri Dickens. Allar leik-
brúðurnar góðu koma við sögu, en
það er Caine sem stelur senunni og
er einstaklega kostulegur á yfirreið
sinni á jólanótt.
Scrooge (1972)
Enn og aftur í sporum Skröggs
sem að þessu sinni er leikinn af
snilld af Albert Finney, öðrum
breskum stórleikara. Annað breskt
stórmenni úr leikarastétt, Sir Alec
Guinnes, fer vel með hlutverk
draugsins sem sækir að nirflinum á
jólanótt. Hér fær efnið söng- og
dansmyndameðferð undir stjórn
Ronalds Neame en Leslie Bricusse
semur tónlistina.
Scrooged (1988)
Nú er sjálfur háðfuglinn Bill
Murray í aðalhlutverki Skröggs.
Hann er að venju harðsoðinn
skratti, og er illa séður stjórnandi
í sjónvarpi, umhverfið New York
undir lok síðustu aldar. Er að
setja upp Jólaævintýri Dickens
þegar hann fær sjálfur óvægna
jóladraugana í heimsókn. Þeim
tekst, með harðfylgi þó, að leiða
Skrögginn inn í birtuna og
gleðina. Einkum fyrir aðdáendur
Murrays sem svíkur þá ekki í djöf-
ullegum ofleik sem honum er ein-
um laginn. Dýrðleg.
Trölli Menn gerast ekki mikið ójólalegri en hinn græni Grinch, sem Jim Carrey túlkaði svo eftirminnilega.
Jólamynd Margir horfa á Chase og fjölskyldu á hverjum jólum.
Svart hvít Klassíska jólaperlan It’s a Wonderful Life.
Ósviknar og óhefðbundnar,
Í jólamyndaumfjölluninni í ár reynir Sæbjörn Valdi-
marsson að finna þverskurð af þessari ómissandi
skemmtun. Fjallað verður um þessar klassísku kvik-
myndir sem fá má á næstu leigu eða kaupa á diski,
margar hverjar. Auk þess eru taldar til góðar afþrey-
ingarmyndir sem skilja áhorfendur eftir í góðu skapi,
jafnvel sannkölluðu jólaskapi. Þá verða lauslega
kynntar til sögunnar myndirnar sem koma fyrir sjónir
okkar í kvikmyndahúsunum um hátíðarnar.