Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 75
G
ísli Einarsson í Nexus er
eðalnörd alla daga árs-
ins. Hann stofnaði
verslunina Nexus 1992.
Núna í nóvember urðu vatnaskil
og verslunin endurskipulögð. Ein
verslun verður með bækur,
myndasögur, leikföng og DVD-
myndir en önnur mun sérhæfa sig
í spilum. Með þessari breytingu
nýtist rýmið betur og alltaf verður
pláss til að spila. Nexus hefur
ötullega stutt við nördamenningu
Íslands og margir gefa Gísla heið-
urinn af að hafa fest þessa menn-
ingu myndasagna, hlutverka- og
kortaspila í sessi.
„Ég hef haft gott starfsfólk með
mér,“ segir Gísli. „Ég álpaðist eig-
inlega út í þennan rekstur eftir að
hafa unnið í þessum geira hjá Ey-
mundsson.“ Gísli hefur alltaf litið
á sig sem nörd og segir að áhrif
Star Wars-myndanna á hans kyn-
þegar að sér að halda utan um
megnið af þeirri spilastarfsemi
sem Nexus hefur hingað til séð
um. Það mun taka að sér kynn-
ingar, kennslu, halda smærri mót
og reka vefsíðu. „Það er í raun
verið að færa framtakið í hendur
spilaranna sjálfra en með Nexus
sem fjárhagslegan og hugmynda-
fræðilegan bakhjarl.“
Spil um jól
„Það er erfitt að segja fyrir um
gengi og gæði nýrra borðspila,
Fimbulfamb er endurútgefið núna
og ég hlakka til að spila það um
jólin. Einnig ætla ég að prófa nýja
spilið Small World. Ég held að við
getum líka mælt með Civilization
og Forbidden Island. Hlutverka-
leikurinn Dungeons and Dragons
er sennilega sá vinsælasti og fólk
á öllum aldri spilar hann. Hann
fæst líka í nýrri byrjendaútgáfu
núna sem er stíluð meira inn á
yngri spilara. Það gerist oft að
gömlu spilararnir gera hlé til að
sinna barnastússi og snúa svo aft-
ur í hlutverkaleikinn og þá með
börnin með sér,“ segir Gísli að
lokum.
arndishuldu@gmail.com
Kerti og spil um jólin
Morgunblaðið/Eggert
Spilaglaður „Ég get ekki gefið mér eins mikinn tíma í að spila og áður en þegar ég spila eru það helst hernaðarborðspil,“ segir Gísli hjá Nexus.
slóð verði seint ofmetin. Hann var
10 ára þegar fyrsta myndin kom
út og segist aldrei gleyma hvílík
upplifun það hafi verið.
Uppáhaldsjólamynd Gísla er
hins vegar Scrooged með Bill
Murray frá 1988. Þetta er poppuð
útgáfa á jólasögu Dickens og
fjallar um kapítalískan sjónvarps-
framleiðanda sem hatar jólin.
„Jólin mín verða hefðbundið jóla-
hald með fjölskylduboðum og til-
heyrandi. Ég mun klárlega taka í
spil, Small World og Fimbulfamb
en ég spila hvorki tölvu- né net-
leiki, ég kýs að hafa andstæðing-
inn fyrir framan mig og beita sál-
fræðilegum herbrögðum. Ég get
ekki gefið mér eins mikinn tíma í
að spila og áður en þegar ég spila
eru það helst hernaðarborðspil, ég
get alltaf fengið einhvern með mér
í Risk.“ Í mestu uppáhaldi hjá
Gísla er hlutverkaleikurinn Dun-
geons and Dragons og kortaspilið
Magic The Gathering. „Þessi spil
eru svo velheppnuð að hvort um
sig hefur skapað nýjan geira í
spilaheiminum.“
Myndasögur
„Ég byrjaði sem krakki að lesa
Andrésblöðin, þannig lærði ég
dönsku. Andréssögurnar eru enn í
uppáhaldi, sérstaklega eftir að ég
uppgötvaði að bestu sögurnar
voru allar eftir sama manninn sem
þó fékk aldrei verðskuldaða viður-
kenningu fyrir verk sitt.“ Höfund-
urinn sem um ræðir er Carl Barks
og hefur verið nefndur H.C. And-
ersen myndasagnanna. „Það er
mikill misskilningur að myndasög-
ur séu bara fyrir börn, ég hlakka
til að lesa Ævi Jóakims Aðalandar
sem kemur núna loksins út á ís-
lensku. Einnig er Iða að endur-
útgefa myndasöguna Goðheima.“
Spilafélagið
„Við reynum að vera með mikið
úrval og búumst ekki við að selja
hundrað eintök af hverri vöru.
Hins vegar er sumt sem selst í
bílförmum árlega eins og Game of
Thrones, bækur G.R. R. Martin,
The Hitchhiker’s Guide to the Ga-
laxy er líka sígild bók sem við
reynum alltaf að vera með.“
Þann 21. nóvember síðastliðinn
var stofnað sjálfstætt spilafélag.
Hlutverk þess verður að efla spila-
mennsku í þeim flokkum spila sem
Nexus sérhæfir sig í. Félagið mun
halda úti félagsheimili í sama húsi
og Nexus með kjöraðstöðu til að
spila hlutverkaspil, safnkortaspil,
tindátaleiki og borðspil. Um 10%
stofnfélaga voru konur. „Ég vona
að hlutfallið eigi eftir að aukast í
framtíðinni. Við höfum séð það
gerast í myndasögunum og bók-
unum að hlutfall kvenkyns við-
skiptavina fór úr svipaðri prósentu
í að vera um og yfir helmingur.“
Ætlunin er að spilafélagið taki
Varla fyrirfinnst sú
manneskja sem ekki
tekur að minnsta kosti í
eitt spil yfir jólin. Yfir-
leitt endar það svo að
fólk hrekkur upp úr
spilinu og áttar sig á að
það hefur setið og spil-
að langt fram á nótt og
allar nammiskálarnar
orðnar tómar. Kannski
ekki furða ef dýrinu er
einungis sleppt lausu
einu sinni á ári.
Mánudagar Borðspil.
Miðvikudagur Warhammer-
hittingur, setið og málað,
spjallað og spilað.
Föstudagur Kortaspil; kl.
15:00 Yu-Gi-Oh! að kvöldi; Ma-
gic.
Laugardagur Opið hús. War-
hammer, borðspil o.fl.
Laugardaga er mest um að
vera. Þá er opið hús, fólk hitt-
ist og spjallar, málar Warham-
mer-fígúrur, spilar borðspil
og kortaspil. Vinsælustu
kortaspilin eru Yukio og Ma-
gic. Dungeons and Dragons er
vinsælasti hlutverkaleikurinn.
Áætlað er að nægilegt pláss
verði til að vera með mörg spil
í gangi í einu, fasta daga fyrir
byrjendakynningu og svo
ákveðna daga með meiri
áherslu á eitt en annað eins og
hefur verið.
Spiladagar
í Nexus
62 Jólablað Morgunblaðsins 2010
Sígrænu jólatrén eru seld í Skátamiðstöðinni
Hraunbæ 123 í Reykjavík, s: 550 9800 og á
skátavefnum: www.skatar.is
-eðaltré ár eftir ár!
Sígræna jólatréð
Skátahreyfingin hefur um árabil
selt sígræn eðaltré í hæsta
gæðaflokki og prýða þau þúsundir
heimila og fyrirtækja.
Frábærir eiginleikar:
- 10 ára ábyrgð
- 12 stærðir (90-500 cm)
- Stálfótur fylgir
- Ekkert barr að ryksuga
- Veldur ekki ofnæmi
- Eldtraust
- Þarf ekki að vökva
- Íslenskar leiðbeiningar
Nældu þér í
sígrænt eðaltré í
hæsta gæðaflokki
Þú veist að þú getur ávallt treyst
vörum frá skátunum!
Taktu þátt í leiknum á Facebook og þú
gætir unnið tré: Sígræna jólatréð