Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 49
Þ
eir sem reynt hafa vita að hægara er sagt en
gert að gera fallegt piparkökuhús. Pipar-
kökudeigið er vandmeðfarið byggingarefni,
það þenst örlítið út í bakstri og veggirnir í
piparkökuhúsinu mega hvorki vera of þykkir né of
þunnir því annars er líklegt að burðarvirkið gefi sig.
Svo er fjarri því létt að setja veggina saman. Lagni
þarf til að bera á límið, hvort sem notað er hvítt
glassúrkrem eða karamellubráð. Allt þarf svo að
passa og ganga upp og lítið svigrúm fyrir villur í
mælingum.
Því er ekki nema fyrir þá allra djörfustu að
spreyta sig á byggingarteikningunum sem hér fylgja
með. Eru hér á ferð drög að piparkökulíkani af
frægu draugahúsi í Disney-skemmtigarðinum í
Frakklandi.
Margir hafa spreytt sig
Höfundurinn er sérlegur áhugamaður um drauga-
hús, Ray nokkur Keim, sem heldur úti vefsíðunni
www.haunteddimensions.raykeim.com, þar sem með-
al annars er svæði helgað piparkökuhúsagerð. Þar er
t.d. að finna byggingarteikningarnar að þessu húsi
og svo myndir af misvel heppnuðum tilraunum bök-
unaráhugamanna til að endurskapa húsið.
Þótt fyrirmyndin sé draugahús þarf útkoman ekk-
ert endilega að vera draugaleg. Fyrst og fremst er
um að ræða fallegt hús í viktoríönskum stíl sem auð-
velt á að vera að gera jólalegt og sætt.
Deigið er útbúið á hefðbundinn hátt og bakað eins
og vera ber. Veitir Ray þær leiðbeiningar að setja
fyrst saman aðalþakið og turnþakið og leyfa að
harðna vel. Þá skal setja saman aðalveggina, og
þriðja skrefið er að festa á framhurðarstykkið. Þegar
allt er orðið vel fast og hart má setja aðalþakið á og
festa turninn á fyrir ofan aðaldyrnar. Hlaða má ís-
kexi undir húsið til að skapa nk. múrhleðslu og þrep
niður af veröndinni, en veröndin er fest á síðast, og
svo svalirnar. Nota má sverar pretzel-kökur sem
burðarstólpa á veröndinni.
Ef illa gengur má ekki gleyma að piparköku-
húsagerð snýst fyrst og fremst um galsa og góða
skapið. Fela má sprungur og mistök með kremi eða
nammibita og svo er enginn heimsendir ef meistara-
verkið gengur ekki upp. Þá er bara að halda áfram
að baka og prófa nýjar uppskriftir eða aðferðir. Þar
er netið algjör gullnáma og ógrynni af upplýsinga- og
leiðbeiningasíðum fyrir piparkökuhúsasmiði.
ai@mbl.is
ATH
Sniðin eru í skalanum 1:4
Þak yfir verönd
H
lið
ar
ve
rö
nd
2.
hæ
ð
Þa
k
yfi
r
hl
ið
ar
ve
rö
nd
H
lið
ar
ve
rö
nd
1.
hæ
ð
141312
11
Turnstrýta
bakhlið
Turnstrýta
vinstri hlið
Turnstrýta
framhlið
Turnstrýta
hægri hlið
1
2
3
4
Aðalþak
bakhlið
Turn - vinstri hlið
Turn - hægri hlið
Tu
rn
to
pp
ur Að
al
þa
k
hl
ið
5
6
7
8
9
10
Verönd
Turnþak
hlið
Turnþak
hlið
Turnþak
hlið
Turnþak
hlið
14
18
15
16
17
19
Að
al
þa
k
hl
ið
Aðalþak
framhlið
Aðalþak
toppur
20
21
22
Hægri veggur 26
Vinstri veggur 25
Framhlið 24
Bakhlið 23
Saltstangir notaðar
fyrir súlur
14
11
26
25
24
23
21
22
20
19
15 16
17
18
14
13
12
6
5
8
7
9 10
4
3
2 1
Viktoríanskt piparkökuhús
fyrir fima bakara
Piparkökuhúsasmíði er vandasöm en stórt og fallegt
kökuhús er gaman að hafa, og háma í sig, á jólunum.
Deig Efniviður í fínustu piparkökuhús.
36 Jólablað Morgunblaðsins 2010