Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 89
76 Jólablað Morgunblaðsins 2010
náttúrulega
góð jólagjöf
100% náttúrulegar snyrtivörur unnar úr lífrænt ræktuðum jurtum
Þú færð mikið úrval af skemmtilegum
jólagjafaöskjum frá Dr.Hauschka
Dr.Hauschka snyrtivörur fyrir húðina
Dr.Hauschka fæst í Yggdrasil, Heilsuveri
Fjarðarkaupum og Maður lifandi.
L
itla jólabúðin var opnuð árið 2001, nán-
ar tiltekið í janúar, verður það ekki að
teljast harla óvenjulegur opnunartími
fyrir jólaverslun?
„Jú það var auðvitað létt klikkun, en þannig
er það bara með þessa konu sem á þessa versl-
un, hún er bara létt klikkuð,“ segir umræddur
eigandi, Anne Helen Lindsay.
„Ég var með heildverslun með vörur fyrir
ferðamannaverslanir en sá að það myndi verða
lítið að gera í þeim efnum nema yfir hásumarið
þegar flestir ferðamenn koma hingað til lands
á þeim tíma, þetta hefur breyst. Nú eru ferða-
menn að koma allt árið. Þá ákvað ég að opna
jólabúð í bílskúrnum heima í þrjá mánuði á ári,
fyrir jólin. Svo lengdist tíminn og varð að
verslun allt árið. Ég man að ferðamönnum
fannst það eilítið sérstakt, að koma inn í blóm-
um prýddan garðinn minn að sumarlagi og sjá
þar risastórt furutré alsett jólaskrauti og jóla-
ljósum,“ rifjar hún upp.
„Þetta spurðist fljótt út og var mjög vinsælt.
Svo var þetta orðið heldur mikið áreiti á heim-
ilið, þegar fólk var farið að hringja dyrabjöll
unni snemma á morgnanna um helgar eða
seint á kvöldin og vildi kaupa jólaskraut.“
Laufabrauðið vinsælt
Bílskúrinn var því kvaddur og Litla jólabúð-
in var opnuð við Laugaveg.
Þar selur Anne Helen jólaskraut allan árs-
ins hring og hefur sett heildsölustarfið til hlið-
ar í bili. „Við byrjuðum í pínulitlu húsnæði
hérna við hliðina en ég sá strax á fyrstu tveim-
ur vikunum að það væri allt of lítið. Við fluttum
okkur svo um set og höfum verið hér í fjögur
ár,“ segir Anne Helen.
„Ferðamenn koma mikið til mín á sumrin og
sækjast eftir íslenskri hönnunarvöru,“ segir
Anne Helen, sem hefur þurft að koma til móts
við óskir útlendinganna, sem hún segir að
kaupi aðra hluti en Íslendingarnir.
„Ég byrjaði til dæmis með lunda sem hægt
er að hengja á jólatréð og bauð svo uppá litlar
lopapeysur sem þjóna sama tilgangi. Þetta er
mjög vinsælt hjá ferðamönnunum, en sárafáir
Íslendingar skreyta jólatréð sitt með lundum,“
segir Anne Helen.
„Laufabrauðið á ég til í ýmsum útfærslum
og ýmsa aðra fallega hönnunarvöru sem lands-
menn eru hrifnir af.“
Skreytir allt í nóvember
Anne Helen þvertekur fyrir það að jóla-
stússið allan ársins hring slái á eftirvænt-
inguna fyrir jólunum sjálfum.
„Nei nei nei, elskan mín. Ég bý á þremur
hæðum og þar er allt í skrauti. En ég skreyti í
lok nóvem ber því það er ansi mikið að gera hjá
mér í desember,“ segir hún.
„Ég var alltaf með lifandi jólatré en hætti
því þegar það var orðið of mikið stress í des-
ember að ná að skreyta það. Nú er ég búin að
kaupa jólagjafirnar og jafnvel kaupa í jóla
matinn löngu fyrir tímann. Það þýðir ekkert að
eiga eftir að kaupa nokkrar gjafir þegar ann-
ríkið í búðinni er skollið á.“
birta@mbl.is
Lundar og lopapeysur á jólatréð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólaskraut Anne Helen stendur vaktina í Litlu Jólabúðinni. Á veggnum má meðal annars glitta í agnarsmáar lopapeysur sem hengja má á jólatréð.
Litla jólabúðin selur einungis
jólavörur. Verslunin byrjaði í
bílskúr en er nú til húsa við
Laugaveg og er opin allan
ársins hring.
Hrafnhildur Finnbogadóttir, 5 ára.
Hvað langar þig að fá í jólagjöf?
Mig langar að fá hoppukastala.
Hver er uppáhaldsjólasveinninn þinn?
Kertasníkir, hann gefur mér oftast nammi.
Hvað borðarðu á jólunum?
Ég borða oftast rjúpu.
Af hverju höldum við jól?
Út af því að það var einhver kall sem átti afmæli, hann
bjó eiginlega til jólin.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vanda Sólrún Ísarsdóttir, 4 ára.
Hvað langar þig að fá í jólagjöf?
Bolta.
Hver er uppáhaldsjólasveinninn þinn?
Jólasveinninn gaf mér einu sinni bók í jólagjöf.
Hefurðu fengið kartöflu í skólinn?
Nei.
Hvað borðarðu á jólunum?
Ég borða graut.
Morgunblaðið/Árni Sæberg