Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 16
106 Jólablað Morgunblaðsins 2010 Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is Góðar jólagjafahugmyndir M b l1 23 44 71 9.800 kr. 7.800 kr. 5.200 kr. 12.800 kr. frá 3.200 kr. Mikið úrval af handtöskum, skjalatöskum, dömuveskjum, seðla- og leðurveskjum, ferðatöskum að ógleymdu hinu landsfræga úrvali af dömu- og herrahönskum. Líttu við í verslun okkar eða skoðaðu vöruúrvalið á www.th.is. Jólalegir markaðir Jólamarkaðir eru haldnir víða um land og eru af öllum stærðum og gerðum þegar kemur að úrvali og fjölda sölumanna og viðskiptavina. Jólin eiga markaðirnir þó allir sameiginleg og það getur verið afar jólalegt að rölta um notalega markaði og kanna jólalegt úrval af handunnum íslenskum vörum. „Stemningin á jólamarkaðnum sem hér hefur verið haldinn undanfarin ár hefur verið virkilega góð. Hér er margskonar varningur til sölu auk þess sem listamenn koma fram, til dæmis rithöfundar og tónlistar- fólk,“ segir Kristján Bjarnason, markaðsstjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur. Jólamarkaðurinn vinsæli við Elliðavatn verður opnaður í dag, laugardag, og verður opið allar helgar til jóla milli kl. 11 og 17. Mikið úrval af íslensku handverki og hönnun er í söluskúrum og víð- ar. Þá verður Skógræktarfélagið með jólatréssölu. Í salnum í Elliðavatnsbænum verður handverksfólk með vörur sínar og að sjálfsögðu boðið upp á vöfflur og kakó. Kynntar eru gest- um og gangandi handunnar jóla- skreytingar úr efniviði skógarins. Til sölu er einnig eldiviður, köngl- ar, trésneiðar, furugreinar, barr- nálar, trédrumbar, börkur og mosi sem allt nýtist í föndur og skraut. Rjóðrið er trjálundur rétt við Elliðavatnsbæ þar sem hægt er að setjast á bekki við varðeld. Barnastundin verður þar klukkan 14 og þá kemur barnabókahöf- undur og les upp fyrir börnin og auk þess verður farið í náttúruleiki. Jólasveinar koma í heimsókn þegar nær dregur jólum. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Golli Jólalíf í lundum skógar „Svona dagar krydda mannlífið og bæta bæjarbrag. Við byrjuðum í haust með kompudaga og svo góðar voru undirtektirnar að við ákváðum að halda áfram á þessari sömu braut,“ segir Lilja Vattnes sem ásamt Lovísu systur sinni stendur að jólamarkaði á Garða- torgi í Garðabæ. Jólasveinarnir mæta á Garðatorg í dag og það er fyrsti markaðsdagurinn – en svo verða þeir 4., 11. og 18. desember. Margir hafa boðað þátttöku á markaðsdaginn svo sem handverksfólk með listmuni ýmiskonar, einhverjir verða með föt, íþróttafélög selja sjávarfang og svo mætti áfram telja. Þá munu fulltrúar Norræna félagsins mæta á Garðatorg og kynna starf sitt. „Við viljum skapa jólastemningu hér alla laugar- daga á aðventunni og ætlum að bjóða upp á kakó, heita súpu og kruðerí,“ segir Lilja. „Við útvegum þeim sem hér vilja versla borð en það ræðst af þátt- töku hve stórt pláss hver og einn getur fengið. Mestu skiptir samt að skapa góða stemningu og þá skiptir ekki litlu að jólasveinar og fleiri hafa boðað hér komu sína sem ætti að vera mörgum tilhlökkunar- efni.“ sbs@mbl.is Bætir bæjarbrag Morgunblaðið/Golli Opið hús og jólamarkaður fer fram hjá Leirkrúsinni á Álftanesi dagana 27. og 28. nóvember. Undanfarin ár hefur Leirkrúsin á Álftanesi haft jólamarkað á aðvent- unni og það verður engin und- antekning frá því þetta árið. Yfir veturinn eru haldin fjöl- breytt námskeið í leirmótun, en það eru nokkrir aðilar á Opinni vinnu- stofu sem standa fyrir markaðnum. Fyrir utan fjölbreytt úrval af handunnum leirmunum er á boð- stólum ýmiss konar annað hand- verk sem hópurinn hefur unnið í vetur og svo má einnig geta þess að hluti af innkomu á markaðnum mun renna til Barnabrosa, en Barnabros eru hjálparsamtök sem gleðja börn með sérstakri upplifun. Opin vinnustofa hjá Leirkrúsinni mun einnig taka þátt í Jólamarkaði á Elliðavatni í Heiðmörk helgina 11. til 12. desember. Leirkrúsin er að Hákotsvör 9 á Álftanesi. birta@mbl.is www.leir.is Opið hús í Leirkrús „Jólamarkaðurinn er sannkallaður hápunkt- ur hjá okkur og allt starf ársins stefnir að þessum eina degi,“ segir Heimir Þór Tryggvason, forstöðumaður handverksverk- stæðisins Ásgarðs í Álafosskvos í Mosfellsbæ. Í Ásgarði starfa þrjátíu þroskahamlaðir karlar við margskonar handverk. Eins og alltaf er markaður Ásgarðs fyrsta laugardag í desember; að þessu sinni 4. desember og er opið milli 12 og 17. Á boðstólum er kökuhlað- borð og verður boðið upp á ekta gamaldags heitt súkkulaði með rjóma. „Salan á okkar frábæru og fallegu list- munum verður í bröggunum á Álafossvegi 14. Allir listamenn Ásgarðs hafa lagt sig fram við að töfra fram einstaka og fallega hluti sem þið getið keypt af þeim. Við kom- um einnig til með að fá góða gesti eins og vanalega til að syngja og spila fyrir okkur. Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að kíkja í heimsókn til okkar,“ segir Heimir. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Töfra fram fallega hluti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.