Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 87
D
anir segja að bestu jólahlað-
borðin standi frá klukkan
12 á hádegi og til mið-
nættis,“ segir Marentza
Poulsen, sem hefur í 16 ár staðið fyrir
jólahlaðborði að dönskum sið hér á
landi.
„Við byrjuðum með þetta á Borginni
og vorum þar í tvö ár. Þetta varð það
vinsælt að við urðum að bóka sama
borðið oft á hverju kvöldi. Þá var
sjarminn við þetta eiginlega farinn því
það er mjög mikilvægt að eyða góðum
tíma í að borða og njóta þess.“
Síðan þá hefur jólahlaðborðið verið
hýst á Hótel Loftleiðum.
Tvær hæðir og ris
Marentza segir Íslendinga kunna vel
að meta danska jólamatinn.
„Í upphafi var þetta svolítið erfitt,
við Ida ákváðum strax að leiða fólk um
borðið og kynna fyrir því hvað væri á
boðstólum. Þessu voru Íslendingar
ekki vanir, sumum fannst óþægilegt að
standa í röð við hlaðborðið og flestir
hlóðu á diskana sína, alveg tvær hæðir
og ris,“ rifjar Marentza upp.
„Það skiptir máli að fara margar
ferðir og blanda ekki saman ólíkum
hlutum á diskinn í hvert sinn. Byrja til
að mynda á síldinni en taka ekki laxinn
fyrr en í næstu ferð og svo koll af kolli.
Þannig er hægt að njóta hvers bragðs
til fullnustu. Það er líka gaman að vera
í góðra vina hópi þar sem allir eru að
borða það sama á sama tíma. Þá er
hægt að ræða saman um réttina sem
gerir það enn huggulegra.“
Reykt önd með piparrótarsósu
Fjölda danskra og ljúffengra rétta
má finna á hlaðborði þeirra Marentzu
og Idu. Margar gerðir af síld og laxi,
rauðspretta og Riz a la Mande er með-
al þess sem má þar finna. En hvað
skyldi vera vinsælast? Finnur Mar-
entza fyrir því að eitthvað sérstakt sé í
mestu uppáhaldi hjá gestum?
„Við erum með reykta önd með
piparrótarsalati og það er nokkuð sem
fólk hlakkar til á hverju ári. Þessi matur
var hvergi á boðstólum þegar við byrj-
uðum fyrir 16 árum,“ segir Marentza.
„Svo eru síldarréttirnir líka alltaf
vinsælir. Við erum með sérstaka gam-
meldansk-síld og einnig appelsínusíld
með reyktum kartöflum. Þetta er svo-
lítið sérstakur matur sem margir fá
bara hjá okkur því ekki fæst hann úti í
búð. En annars er mjög gaman að við
eigum fastan kúnnahóp sem kemur ár
hvert og mér er þá sérstaklega hug-
leikinn einn hópur sem mætir fyrsta
kvöldið okkar á hverju ári. Það þykir
okkur mjög vænt um.“
Marentza deilir með lesendum
nokkrum uppskriftum að dýrindis
smurbrauði.
Piparrótarsalat
¼ hvítkálshaus
1 blaðlaukur
1 miðlungsstór krukka rauðrófur
Allt saxað fínt
Sósa
1 dl majones
½ dl sýrður rjómi 18%
4 msk piparrótarmauk (fæst í
pökkum)
2 msk dijonsinnep
1 tsk HP-sósa
1 tsk Worchestershiresósa
salt og pipar eftir smekk
Öllu hráefni í sósuna blandað vel
saman og sett saman við grænmetið.
Látið standa til næsta dags.
Þetta salat er gott að bera fram með
hamborgarhrygg og öðru léttreyktu
kjöti.
Heimagerð lifrarkæfa
375 g lifur
150 g fita (spekk)
1 laukur
2 ansjósur (má sleppa)
1½ msk hveiti
1 egg
2½ dl mjólk
1 tsk salt
¼ tsk piar
Beikon
Lifur, spekk, ansjósur og laukur sett
í matvinnsluvél, hrært vel saman.
Hveiti, eggi, mjólk, salti og pipar bætt
út í, einnig má setja út í deigið þurrk-
aðar kryddjurtir eins og timían og
oreganó, allt eftir smekk.
Setjið beikonsneiðar í álform eða
annað eldfast form og hellið lifrar-
kæfudeiginu yfir. Bakið í vatnsbaði í
50-60 mínútur við 180°. Athugið að
hægt er að kaupa tilbúna hakkaða lifur
og spekk.
Smurt brauð með
hangikjöti
Maltbrauð smurt með smjöri
Salatblað sett á hluta brauð-
sneiðarinnar
3-4 sneiðar af hangikjöti settar í hring
þannig að þær hylji brauðsneiðina
1 msk grænmetissalat (ítalskt salat,
baunasalat)
3 sneiðar agúrka settar á miðjuna,
sjá mynd
2 tómatbátar settir öðrum megin við
agúrkuna ásamt sneið af ferskju
2 eggjabátar settir hinum megin við
agúrkuna ásamt sneið af rauðri
papriku
Steinseljubrúskur til skrauts
Smurt brauð með eggi
og maríneraðri síld
Maltbrauð smurt með smjöri
Salatblað sett á hluta brauð-
sneiðarinnar
1 kartafla skorin í sneiðar og þeim
raðað á hægri hlið brauðsneiðarinnar
1 harðsoðið egg skorið í sneiðar og
raðað á móti kartöflunum
4 rauðlaukshringir settir á miðjuna
ásamt tómat og steinselju
Smápipar úr kvörn stráð yfir
Smurt brauð með
reyktri önd
Maltbrauð smurt með smjöri
Salatblað sett á hluta brauð-
sneiðarinnar
Þunnskornar andabringusneiðar
settar á brauðið þannig að hylji
brauðsneiðina
Piparrótarsalat sett á miðjuna (sjá
uppskrift)
1 góður brúskur kerfill settur á
miðjuna, má einnig vera steinselja
Smurbrauð með
lifrarkæfu
Maltbrauð smurt með smjöri
Salatblað sett á hluta brauð-
sneiðarinnar
2-3 sneiðar lifrarkæfa settar á
brauðsneiðina
Smjörsteiktir sveppir, sýrðar
agúrkur, tómatur og rifin fersk
piparrót sett á miðja sneiðina
2-3 vel steiktar beikonsneiðar settar
upp á rönd, steinselja til skrauts
Smurt brauð með
reyktum laxi
Fransbrauð eða heilhveitibrauð
smurt með smjöri
Salatblað sett á hluta brauð-
sneiðarinnar
4-5 sneiðum af reyktum laxi raðað
ofan á brauðsneiðina
Hrært egg (eggjahræra) sett á miðja
sneiðina
Snúið upp á tvær agúrkusneiðar og
tvær sítrónusneiðar og þær settar á
miðja sneiðina
Hvítur eða grænn spergill settur öðr-
um megin við sítrónuna, risarækja
og rauður kavíar hinum megin, dill-
kvistur til skrauts
birta@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Marentza „Það skiptir máli að blanda ekki saman ólíkum hlutum á diskinn.“
Bestu hlaðborðin vara í 12 tíma
Þær Marentza Poulsen og
Ida Davidsen hafa
undanfarin 16 ár boðið
upp á ekta danskt jóla-
hlaðborð. Þar er galdurinn
að sitja lengi og borða.
Smurt brauð
með hangikjöti.
Smurt brauð
með eggi og
maríneraðri síld.
Smurt brauð
með reyktri önd.
Smurt brauð
með lifrarkæfu.
Smurt brauð með
reyktum laxi.
74 Jólablað Morgunblaðsins 2010