Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 104
ur yfir höfuð verið lokað. „Black
Friday“ eða föstudagurinn svarti er
nafnið sem þessi dagur gengur undir.
Það er ekki lögbundinn frídagur en
flestir atvinnurekendur gefa frí
þennan fyrsta dag eftir þakkargjörð-
ina. Árið 2007 tóku 135 milljónir
manna þátt í þessari verslunarhátíð.
Fyrsta árið okkar hér var asinn svo
mikill að ná besta tilboðinu að af-
greiðslumaður sem opnaði versl-
unina tróðst undir og dó. Það var
verulega svartur föstudagur!
Önnur hefð sem hefur fest sig í
sessi undanfarin ár er „Cyber
Monday“ eða netmánudagur sem er
mánudagurinn strax eftir þakk-
argjörðina. Þá bjóða netverslanir af-
slætti og tilboð ekki síðri en á svarta
föstudeginum. Helsti kosturinn við
að versla með þessum hætti er auð-
vitað að maður þarf ekki að óttast að
verða einhverjum að bana. Svo er
auðvitað þægilegt að fá vöruna senda
heim að dyrum og þurfa hvorki að
standa í biðröð né þrælast í gegnum
umferðina. Á síðasta ári var verslað á
netinu fyrir 887 milljónir dollara
þennan eina dag.
Jólaskrúðganga
Skrúðgöngur eru alltaf hluti af
stórhátíðum hér. Verslunarmiðstöðin
Macys er alltaf með stærstu og flott-
ustu jólaskrúðgönguna á þakk-
argjörðinni. Á hrekkjavökunni eru
það skrímslaskrúðgöngur, um jólin
eru það allir sem þátt vilja taka. Í
litla bænum okkar, Lilburn, í út-
hverfi Atlanta, er alveg ótrúlega löng
jólaskrúðganga. Við fórum að sjá
dýrðina í fyrra. Niður aðalstræti Lil-
burn siluðust antikbílar, lögregla
bæjarins, fegurðardrottning sýsl-
unnar, lúðrasveitir, klappstýrur og
hersveitir svo fátt eitt sé nefnt. Meira
að segja Trölli sjálfur á mótorhjóli.
Krakkarnir kættust þó mest yfir
að sjá skólastjórann sinn með jóla-
sveinahúfu, aftan á bílpalli að kasta
sælgæti til barnanna. Heiðurssætið
aftast í skrúðgöngunni átti svo jóla-
sveinninn sjálfur. Hann var á sleða,
umkringdur álfunum sínum. En þar
sem enginn snjór er hér í suðrinu var
sleðinn á kerru sem dregin var af
dráttarvél. Hreindýrin hafa fengið frí
þann daginn.
Hátíðarmatseðillinn í Atlanta
Hér í suðurríkjunum er maturinn
meginmálið um allar hátíðir. Þekkt-
astir eru þeir sennilega fyrir bar-
becue-sósurnar og að djúpsteikja
helst allan mat. Alvöru suð-
urríkjakalkún djúpsteikir maður í
hnetuolíu. Í verkið þarf sérstakan
kalkúna-djúpsteikingarpott og þar
sem öll hús hér eru timburhús fer
verknaðurinn fram úti. Einhverjar
sögur eru til af því að fólk hafi steikt
á timburveröndinni sinni og allt fuðr-
að upp, ennig að olían hafi hitnað of
mikið og kalkúnninn sprungið.
Áhættan er hluti af ánægjunni og
þeir segja að eftir að hafa smakkað
djúpsteiktan kalkún verði maður
aldrei samur.
Til að fá suðurríkjabrag á jólamat-
inn er pekanhnetubakan hefðbund-
inn og sívinsæll eftirréttur. Til há-
tíðabrigða er sett ögn af búrbon í
fyllinguna og hún borin fram með
rjóma, þeyttum með örlitlu búrboni.
Kalkúnafyllingin er svo bætt með
ostrum og verður útkoman ljúffengt
góðgæti í charleston-stíl.
Suðurríkjamenn halda mikið upp á
sjávarrétti. Uppáhaldsforréttirnir
eru krabbaklattar og rækjur og epla-
viðarreyktur silungur finnst þeim hið
mesta hnossgæti. Einnig rjómalöguð
krabbasúpa með sérríi og krabba-
hrognum.
Svínahamborgarhryggur er líka
klassískur. Hér láta þeir hrygginn
liggja í eplasafa yfir nótt, nudda hann
svo með appelsínu. Stinga í hann
negulnöglum, baka í ofni og ausa svo
af og til ferskum eplasafa yfir.
Meðlætið finnst mér þó mest fram-
andi. Ég ólst upp við það að kart-
öflumús væri hversdagsmatur og á
hátíðum væru þær brúnaðar eða í
uppstúf. Hér í suðrinu er flauelsmjúk
kartöflumús borin fram með hátíðar-
matnum. Ostamakkarónur eru annað
meðlæti sem þeim finnst ómissandi
með hátíðarsteikinni. Þessi jól líst
mér vel á að prófa frauð úr sætum
kartöflum. Egg eru þeytt saman við
soðnar og maukaðar sætar kartöflur,
það er sett í smurt eldfast mót og
hefðbundna uppskriftin segir að
þetta eigi að þekja með púðursykri
og nokkrum sykurpúðum og baka í
ofni. Ég ætla sko að prófa það upp á
ekta suðurríkjamáta.
Þakklæti
Ég fór í risastóra föndurverslun
um daginn, ætlaði bara að stoppa í
fimm mínútur en sogaðist inn í alla
jóladýrðina og gleymdi mér al-
gjörlega. Þarna var allt jólaföndur og
-skraut sem hægt var að ímynda sér.
Jólatré í öllum stærðum og jafnvel
eitt ljósum prýtt sem snerist. Eins
gott að það sé ekki köttur á heimilinu
vilji maður þannig tré.
Þarna voru auðvitað þessar hefð-
bundnu jólakúlur í öllum litum og
stærðum en það sem ég féll fyrir til
að hengja á tréð voru kúrekastígvél,
bandaríski fáninn og kúrekahattur.
Þetta eru hlutir sem eiga eftir að
skapa jólastemningu í framtíðinni og
vera minjagripir um búsetu okkar
hér.
Um miðjan nóvember sá ég glitta í
ljósum prýtt og fullskreytt jólatré í
húsi. „Svakalega er fólk snemma á
ferðinni“ hugsaði ég með mér en fatt-
aði svo að fólk er auðvitað að taka á
móti fjölskyldunni núna um þakk-
argjörðina. Það er svo auðvelt að
hneykslast og dæma. Búseta í öðru
landi með aðrar hefðir fær mann til
að hugsa aðeins breiðar. Ekki eru að-
stæður alls staðar eins.
Þegar þakkargjörðin nálgast fer
fólk að hugsa um hvað það er þakk-
látt fyrir. Ég hef margt til að vera
þakklát fyrir eins og t.d. þetta tæki-
færi og reynslu að búa hér. Fólk er
vingjarnlegt og leggur sig fram um
að sýna virðingu. Ég hugsa að gagn-
kvæm virðing og glaðlegt viðmót
fólks hér í suðurríkjunum sé það sem
ég met mest við að vera hér. Fjög-
urra ára sonur minn kom heim með
bréf frá leikskólastjóranum þar sem
hún taldi upp hvað hún var þakklát
fyrir; heilsuna, gott starfsfólk, það að
fá að vera þátttakandi í lífi barnanna
o.s.frv. Sonur minn kom heim með
kalkúnaspjald sem hann hafði föndr-
að, á því stóð: Svölnir Ás er þakk-
látur fyrir Bósa ljósár!
arndishuldu@gmail.com
Handaband Trölli tekur í hendina á syni greinarhöfundar, Svölni Ás.
Frægasti sjónvarpskokkur suð-
urríkjanna er Paula Deen, hún er
með margar góðar uppskriftir á
netinu. Hér eru nokkrar hátíð-
aruppskriftir frá henni.
Sætar kartöflur, frauð
3 bollar bakaðar og maukaðar
sætar kartöflur
1 bolli sykur
3 egg, hrærð
½ bolli mjólk
8 msk ósaltað smjör, brætt
1 tsk vanilludropar
½ tsk salt
Ofan á:
1 bolli púðursykur
4 msk ósaltað smjör, við stofu-
hita
½ bolli hveiti
1 bolli saxaðar pekanhnetur
Hitið ofninn í 200 gráður.
Smyrjið eldfast mót.
Í stórri skál hrærið saman sæt-
um kartöflum, sykri, eggjum,
mjólk, smjöri, vanillu og salti.
Hellið svo yfir í eldfasta mótið.
Í annarri skál blandið saman
púðursykri, smjöri, hveiti og pek-
anhnetum og dreifið yfir sætu
kartöflurnar.
Bakið í 20-25 mínútur. Berið
fram heitt.
Kalkúnn
1½ tsk gróft salt
½ tsk og 1⁄8 tsk pipar
heill kalkúnn, um 6 kíló
1 laukur, skorinn í fernt
Kalkúnn og
trönuberjasósa
heill hvítlauk-
ur, skorinn til
helminga,
þvert á geirana
ferskar greinar
af kryddjurtum, s.s.
timían, steinselja og rósmarín
2 lárviðarlauf
½ bolli ósaltað smjör, brætt.
1 bolli kjúklingasoð
2 tsk saxað ferskt timían
¼ bolli maísmjöl
Hitið ofninn í 165 gráður. Sáldr-
ið ½ tsk af grófa saltinu og ¼ tsk af
svörtum pipar inn í kalkúninn.
Setjið lauk, hvítlauk og greinar af
kryddjurtum einnig inn í hann.
Setjið kalkúninn á grind í ofn-
skúffu, bringuna upp. Smyrjið
bringuna með helmingnum af
brædda smjörinu og sáldrið ¼ tsk
af svörtum pipar og rest af salti yf-
ir.
Leggið álpappír yfir kalkúninn
og steikið í ofninum í 2½ klst. Fjar-
lægið álpappír, penslið með rest af
brædda smjörinu. Hækkið hitann
upp í 220 gráður. Steikið þar til
þykkasti hluti lærisins mælist 83
gráður, um 45 mínútur. Ef kalkún-
ninn virðist vera að brúnast of
hratt breiðið þá álpappír yfir aftur
síðustu 15 mínúturnar. Látið
standa 15 mínútur á borði áður en
hann er borinn fram.
Veiðið fitu ofan af soði. Setjið
ofnskúffuna á eldavélina við með-
alhita. Bætið við kjúklingasoði,
söxuðu timían, rest af pipar, hrær-
ið upp af botninum í skúffunni.
Látið krauma í þrjár mínútur.
Hrærið saman maísmjöli og 1⁄3
bolla af vatni. Sigtið soð úr skúffu í
pott og við vægan hita hrærið
smám saman maísmjöl blöndunni
út í. Látið krauma og hrærið stöð-
ugt þar til sósan þykknar, um tvær
mínútur.
Trönuberjasósa
1 bolli sykur
1 bolli vatn
500 g fersk trönuber
1 bolli söxuð epli
1 bolli saxaðar valhnetur
½ bolli rúsínur
¼ bolli Grand Marnier
safi úr hálfri appelsínu
safi úr hálfri sítrónu
1 tsk kanill
1 tsk múskat (nutmeg)
Sjóðið vatn og sykur saman í
potti. Bætið trönuberjum út í, látið
suðuna koma upp. Lækkið undir
og látið krauma. Bætið út í eplum,
valhnetum, rúsínum, Grand mar-
nier, appelsínu- og sítrónusafa,
kanil og múskati. Sjóðið í 10-15
mínútur. Takið af hellu og látið
kólna. Berið fram með kalkún eða
hvaða hátíðarmat sem er.
Jólablað Morgunblaðsins 2010 91
Glæsilegt
úrval af
jólafatnaði
Opið mán.-fim. kl. 12-18,
fös. kl. 12-16
Sími 694 7911
Eikjuvogur 29, 104 Rvk.
„Slétt og brugðið“
ARMBÖND
EYRNALOKKARHRINGAR
fridaskart.is
íslensk hönnun og handverk
STRANDGATA 43 | HAFNARFIRÐI