Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 33
20 Jólablað Morgunblaðsins 2010
Á
lafosskvosin hefur stundum
verið nefnd falin paradís
og best geymda leyndar-
mál Mosfellsbæjar. Það
teljum við vera orð að sönnu, kvosin
hefur sinn sjarma allt árið, ekki síst
nú á aðventu,“ segir Guðlaug Daða-
dóttir, sem ásamt Gunnari Helga-
syni, eiginmanni sínum, rekur kaffi-
húsið og galleríið á Álafossi.
Kúnst og kaffi
Í áratugi var ullarvinnsla starf-
rækt á Álafossi og er staðurinn
þekktur sem slíkur. Nú er önnur
starfsemi í gömlu húsunum, í dag
eru þar íbúðir, Ásgarður, sem er
verndaður vinnustaður, ýmiskonar
listastarfsemi, kaffihús, gallerí og
verslun með ullarvörur.
„Við Gunnar búum hér í kvosinni,
og rekum hér ofar í brekkunni einn-
ig trésmíðaverkstæði. Oft gerðist
það að fólk sem var á göngu hér í
kvosinni kom inn á heimili okkar og
taldi sig vera komið á kaffihús. Í
þessu sáum við tækifæri og
ákváðum því að setja á laggirnar
kaffihús sem við opnuðum 1. maí
sl.,“ segir Guðlaug.
Kryddað af bestu getu
Kaffihúsið er í rými þar sem vef-
stólarnir fyrir Álafossteppin voru og
galleríið er þar sem ullarflokkunin
fór áður fram. Utandyra er
skemmtilegur sólpallur þar sem
gestir geta tyllt sér niður með
hundana sína. Nú hefur verið
strengt tjald yfir pallinn og þar
verður haldinn jólamarkaður sem
Jón Jóhannsson frá Dalsgarði í Mos-
fellsdal hefur umsjón með. Jón er
öllum hnútum kunnugur í slíkri
starfsemi; hefur í mörg ár verið með
bændamarkað í Mosskógum síðsum-
ars, sem hefur verið fjölsóttur.
„Þeir sem kynna og selja sitt á
markaðnum okkar munu koma úr
ýmsum áttum, svo sem handverks-
fólk, blómabændur og margir fleiri,
rétt eins og vera ber. Þetta skapar
jólastemningu sem við munum jafn-
framt krydda að bestu getu með tón-
list og veitingum við hæfi og erum
með hátíðarmatseðil næstu helgar,“
segir Guðlaug.
Varmá er aldrei eins
Inn af kaffihúsinu er skemmti-
legt gallerí með verkum ýmissa
listamanna. Í öndvegi eru verk
listamannsins Dieters Roths en
Gunnar, eiginmaður Guðlaugar,
vann um árabil fyrir Dieter og son
hans Björn. Dieter Roth flutti til
Íslands laust fyrir 1960 og var
áhrifamaður í allri sinni list-
sköpun.
Varmá rennur um Álafosskvosina
og er sjálfur Álafossinn á bak við
húsin sem áður hýstu ullarverk-
smiðjuna. „Varmá er aldrei eins.
Einn daginn er hún sem lítil sytr-
andi spræna, annan daginn vatns-
mikil og kröftug. Oftast er hún þó
eins og þægilegur bæjarlækur og
við niðinn af fossinum er ljúft að
sitja, sérstaklega á sumrin en ekki
síður nú þegar kvosin er komin í
búning ljúfra ljósa jólanna,“ segir
Guðlaug Daðadóttir.
sbs@mbl.is
Galleríið Mörg falleg verk þekktra listamanna eru til sýnis í galleríinu sem er inn af kaffihúsinu á Álafossi.
Morgunblaðið/Golli
Ull Áður var unnin ull á Álafossi svo sem teppin góðu sem rómuð voru.
Aðventuævintýri
í Álafosskvosinni
Kátt í kvosinni við Varmá. Fjölbreytt starfsemi, meðal annars kaffihús og
gallerí. Fjör í falinni paradís. Verk listamannsins Dieters Roths til sýnis.
Pallurinn Umhverfið er snoturt og hér er gott að sitja á ljúfum stundum.
Gaman er að gera piparkökukarla
og -kerlingar, en af hverju ekki að
breyta aðeins til. Er ekki komið
nóg af sætum og krúttlegum pik-
arkökukörlum sem, þó að skraut-
legir séu, standa bara aðgerð-
arlausir á kökudiskinum?
Hvernig væri að prufa karate-
piparkökur! Hönnunarfyrirtækið
Fred á heiðurinn að þessu bráð-
skemmtilegu piparkökumótum
sem, eins og myndirnar bera með
sér, skera út piparkökukarla í
miklum stríðsham. Skyndilega lít-
ur kökubakkinn út eins og æsileg
Jackie Chan eða Bruce Lee-mynd,
þar sem litlir karlar berjast um
hver er gómsætastur.
Finna má þessi útskurðarmót til
sölu á netinu, m.a. á Thinkgeek-
.com (leita að „Ninjabread Men
Cookie Cutters“) þar sem þau
kosta um 9 bandaríkjadali þrjú í
pakka, án skatta og flutnings-
kostnaðar.
ai@mbl.is
Piparköku-
karlarnir
teknir í
bakaríið?
Jólabakstur sem væri
Chuck Norris að skapi.
Flottir Nú vantar bara hvítan glassúr til að mála búningana.