Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 20
H
elga Möller tekur á móti
blaðamanni í fallegri íbúð
í Austurbænum. Það er
strax morgunljóst að
húsráðandi er mikið jólabarn. Helga
býður upp á piparkökur úr forlátu
jólasveinakökubauk.
„Þessi er alltaf tekinn fyrstur upp
af jólaskrautinu,“ segir Helga. Köku-
boxið er þeirrar náttúru að jóla-
sveinninn rekur upp hljóð í hvert sinn
sem það er opnað. Það gerði hann þar
til Helga tók úr honum rafhlöðurnar.
„Það er óþarfi að vekja athygli allra
heimilismanna á því hvenær maður
fær sér kökur,“ segir Helga brosandi.
„Ég tíni jóladótið fram smátt og
smátt,“ segir Helga sem segist þurfa
að vera skipulögð í jólaundirbúningi
þar sem aðventan er oftar en ekki
mikill annatími með jólatónleikum og
öðru tilheyrandi.
„Ég keypti til að mynda síðustu
jólagjöfina áðan,“ segir Helga.
„Mig langar að sleppa alfarið við
stressið á aðventunni. Það er nóg að
vera að hugsa um sönginn og allt sem
honum fylgir,“ segir Helga, sem hef-
ur sungið víða á aðventunni undan-
farin 25 ár.
Ómar verður með hugvekju
Hinn 16. desember ætlar Helga að
halda jólatónleika í Laugarneskirkju.
„Ég gaf út jólaplötu árið 2007 og
hélt þá tónleika í kjölfarið og hef gert
ár hvert síðan. Tónleikarnir eru
komnir til að vera,“ segir Helga.
Hún hafði lengið gengið með þann
draum í maganum að gefa út jóla-
plötu.
„Mig langaði að gera einfalda og
stílhreina plötu sem væri ekki ofhlað-
in bjöllum og látum. Ég vildi gera
plötu sem auðveldar fólki að slaka á á
aðventunni,“ segir Helga.
Á plötunni má meðal annars finna
lögin Aðfangadagskvöld og Ég kemst
í hátíðarskap, lög sem Helga hefur
tryggt sess sem einhver vinsælustu
jólalög síðustu áratuga.
Helga býður til sín gestum á jóla-
tónleikana ár hvert.
„Dóttir mín, Elísabet Ormslev,
hefur alltaf verið með, en hún söng
einmitt bakraddirnar inn á plötuna
mína aðeins 14 ára gömul. Svo verður
Raggi Bjarna með mér í ár og Ómar
Ragnarsson, sem verður heiðurs-
gesturinn. Ómar verður með hug-
vekju og svo syngjum við öll dúetta,“
segir Helga.
„Ég vil hafa jólatónleikana mína
persónulega og hlýlega. Það er svo
fallegur hljómur í kirkjunni og hún er
svo passlega stór.“
Tekin upp með jólaskrautinu
Eins og áður segir hefur Helga
sungið mörg af vinsælustu jólalögum
okkar Íslendinga. Hvernig tilfinning
ætli það sé að vera hluti af undirbún-
ingi jólanna hjá svo mörgum með
þessum hætti?
„Að ég sé tekin upp með jóla-
skrautinu meinarðu?“ segir Helga og
brosir.
„Mér þykir ofboðslega vænt um
það. Ég grínast stundum með nafnið
mitt í þessu samhengi, eins og Helg
eru jól og Helga nótt. Það er kannski
ekki tilviljum að ég heiti Helga. En
ég man að fyrst eftir að lögin komu út
fannst mér þetta svolitið mikið. Ég
hef oft fengið að heyra að ég sé með
svo jólalega rödd. Ég lenti meira að
segja einu sinni í því að ég samdi lag
sjálf og ætlaði að fá spilun á því á
Bylgjunni. Þeir urðu hins vegar ekki
við því þar sem lagið þótti of jólalegt!
Það var hvergi minnst á jólin í text-
anum, það var bara röddin mín sem
þótti svona jólaleg.“
Það er engin leið að hætta
Eins og hjá mörgum starfsstéttum
hefur tónlistarfólk mikið að gera í
desember. Auk jólatónleikanna er
Helga að syngja á jólahlaðborðum,
jólaböllum og víðar.
„Ég er hvergi föst en ég var lengst
af að syngja á jólahlaðborði á Hótel
Loftleiðum og var þar í ein 18 ár,“
segir Helga.
„Ég held reyndar að flestir tónlist-
armenn í dag segi sömu sögu, að það
er minna að gera hjá okkur eftir að
kreppan skall á. Þetta er kannski
eitthvað sem fólk sparar við sig þegar
halda á skemmtanir. En ég hef enga
trú á að þetta ástand sé komið til að
vera,“ segir Helga.
„Tónlistarfólk býr sér í auknum
mæli sjálft til verkefni, eins og að
halda tónleika. Og það er auðvitað
æðislegt. Það er gaman að geta sótt
tónleika nánast á hverju einasta
kvöldi hér í bæ. En það er ekki alltaf
mikið upp úr því að hafa fyrir tónlist-
arfólk peningalega,“ segir Helga.
„En tónlist er þörf, tónlistarmenn
þurfa að koma henni frá sér. Það get-
um við örugglega öll verið sammála
um. Það er engin leið að hætta bara
að syngja.“
Hæ englarödd!
Þó svo að verkefnum hafi eitthvað
fækkað koma líka önnur í staðinn.
„Ég hef verið beðin um að syngja í
jólaboðum í heimahúsum og það þyk-
ir mér ofsalega gaman,“ segir Helga.
„Mér er sérstaklega minnisstætt í
fyrra þegar ég var beðin að koma í
pínulitla risíbúð þar sem fullt af ungu
fólki var samankomið í jólagleði. Það
var alveg frábær stemning, þau
sungu öll með og þetta var svo gam-
an,“ rifjar Helga upp.
Ef rifjuð eru upp öll jólalögin sem
Helga hefur sungið í gegnum tíðina
er freistandi að spyrja hana hvaða
jólalag sé í uppáhaldi hjá henni.
„Mér þykir alltaf mjög vænt um
lagið Jólaengill sem Ómar Ragnars-
son gerði gullfallegan texta við. Ég
veit að mörgum þykir þessi texti afar
fallegur,“ segir Helga.
„Svo þykir mér sérstaklega vænt
um lagið því í hvert sinn sem Ómar
hringir í mig heilsar hann með orð-
unum „hæ englarödd“! Ég tengi það
við þennan texta.“
Niðurhalið alvarlegt mál
Lagið Jólaengil má meðal annars
finna á áðurnefndri jólaplötu Helgu
frá árinu 2007, og hún er enn fáanleg
í plötuverslunum, „eða þeim fáu slík-
um sem eftir eru“, segir Helga.
„Mér finnst orðin mjög dapurleg
þróun í þessum efnum. Fólk halar
niður tónlist eins og ekkert sé sjálf-
sagðara. Auðvitað væri voða þægilegt
að geta halað niður mjólkinni gegn-
um netið. En ég spyr: Hvernig eigum
við sem erum að búa til tónlist að geta
haldið því áfram ef enginn kaupir
hana? Þetta endar með því að það
verður engin tónlist gefin út. Það
verður að finna leið til að láta fólk sjá
að þetta er alls ekki sjálfsagt.“
Engin jól án jólaíssins
Talið berst þá að jólahátíðinni sem
er á næsta leiti.
„Þegar ég var barn var hefðin sú
að allt var skreytt hátt og lágt á Þor-
láksmessu og kveikt á jólaljósum
klukkan 18 á aðfangadag. Ég varð
hins vegar að breyta þessu starfs
míns vegna,“ segir Helga.
„Hefðin er núna sú að ég er með
alla stórfjölskylduna mína hjá mér í
mat á aðfangadag. Það eru þrettán
manns og þeim fylgir mikið af pökk-
um. En þetta er mjög skemmtilegt og
ég myndi ekki vilja hafa þetta á neinn
hátt öðruvísi.“
Helga segist vera alin upp við rjúp-
ur í jólamatinn en eftir að jólahald
fluttist yfir á hennar heimili hefur
hamborgarhryggurinn oftar orðið
fyrir valinu.
„Svo skiptum við með okkur verk-
um. Kjötið er eldað hér hjá mér og
mamma kemur með forláta eplaköku
sem má ekki missa sín. Vinkona mín
gerir waldorfsalatið og dóttir mín
jólagrautinn.“
Og svo er það jólaísinn!
„Ég byrjaði snemma á mínum bú-
skaparárum að prófa mig áfram við
ísgerð. Núorðið eru tegundirnar tvær
sem öllum þykja algerlega ómissandi
á jólunum. Ég veit að börnunum mín-
um þættu jólin ekki ganga í garð ef
við slepptum ísnum,“ segir Helga,
sem gerir bæði jarðarberjaís og To-
bleroneís. Uppskriftirnar að ísnum
ómissandi má finna hér með.
Tobleroneís
6 eggjarauður
1 bolli púðursykur
1 tsk. vanilludropar
½ lítri rjómi
100 g smátt saxað toblerone
Eggjarauður, púðursykur og van-
illudropar þeytt vel saman í hrærivél.
Rjóminn þeyttur vel og Tobleronið
sett varlega saman við rjómann.
Að lokum er eggjablöndunni
blandað varlega en samt vel saman
við rjómann og sett í ísform og í fryst-
inn.
Jarðarberjaís
Ég er bæði búin að prófa að setja
fersk jarðarber, frosin og í dós og út-
koman er sú að þessi í dósinni eiga
best við þennan ís. En það er auðvit-
að smekksatriði.
6 eggjarauður
6 msk. flórsykur
1 stór dós jarðarber (kannski þykir
einhverjum nóg að hafa litla – ég
reyndar nota ekki alveg alla stóru
dósina, en þetta er smekksatriði)
smásletta af safanum í dósinni
½ lítri rjómi
100 g smátt saxað dökkt súkku-
laði (mín börn vilja ekki hafa
súkkulaðið í ísnum, persónulega
finnst mér það betra en þau ráða)
Eggjarauður, flórsykur og smásafi
úr dósinni hrært vel saman.
Rjóminn þeyttur og jarðarberin
maukuð lítillega (nota kartöflu-
stappara í verkið), þau eiga að vera í
smábitum ásamt vökvanum sem
kemur af berjunum.
Súkkulaði blandað saman við
rjómann og eggjablöndunni blandað
varlega saman við og að lokum jarð-
arberjunum. Blanda varlega en vel
þannig að ísinn skilji sig ekki. Sett í
ísform og inn í frystinn.
Íssósa
4 stk. Mars
3 dl rjómi
100 g dökkt súkkulaði
Allt sett í pott við vægan hita og
látið sjóða saman í 30 mín. eða þar til
sósan þykknar. Passið að standa yfir
sósunni, sem auðveldlega brennur
við.
birta@mbl.is
Helg eru jól
Jólabarn Helga er búin að kaupa allar jólagjafir enda mikið að gera í desembermánuði.
Helga Möller fær oft að heyra að hún þyki með afar jólalega
rödd. Það er kannski vegna þess að hún hefur sungið mörg af
vinsælustu jólalögum síðustu áratuga og segist sjálf vera mikið
jólabarn. Hún deilir með lesendum uppskrift að margrómuðum
jólaís sem er algerlega ómissandi á jólum heima hjá henni.
Getty Images/StockFood
10 Jólablað Morgunblaðsins 2010
Skólavörðustíg 21 - Sími 551 4050 - Reykjavík
Vönduð og silkimjúk
sængurföt í miklu úrvali
Íslensk framleiðsla