Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 43
T
örnin við prentun jólabók-
anna hefst í byrjun sept-
ember og stendur langt
fram í desember. Þetta
fer jafnan rólega af stað en svo
verður þunginn meiri eftir því sem
lengra líður á haustið. Og nú þegar
komið er fram í nóvember snúast
vélarnar á sólarhringsvöktum og
við prentararnir erum á þrískipt-
um sólarhringsvöktum,“ segir Þor-
kell Svarfdal Hilmarsson, prentari
í Odda.
Prentun fylgir stemning
Jólabókaflóðið er órjúfanlegur
þáttur helgrar hátíðar. Hundruð
bóka koma út; ævisögur, barna-
bækur, skáldverk og þannig mætti
áfram telja. Bókaútgáfa er í blóma.
Þegar best lét í góðærinu var stór
hluti þeirra bóka sem komu út fyr-
ir jólin prentaður erlendis en nú
hefur prentverkið að mestu leyti
flust aftur heim enda gerir gengi
íslensku krónunnar þann kost hag-
stæðan. Fyrir svo utan að íslenskir
bókagerðarmenn eru í fremstu röð.
„Auðvitað fylgir bókaprentuninni
svolítil stemning. Það er alltaf
gaman þegar mikið er umleikis.
Það er mjög algengt að bækur séu
prentaðar í 1.000 til 5.000 eintök-
um. Einstaka titlar eru prentaðir í
enn hærri tölum eins og til dæmis
bækur Arnaldar. Þá er mjög al-
gengt að þessar bækur sem allra
best seljast séu endurprentaðar
þegar líður á vertíðina og síðustu
bækurnar eru að rúlla héðan allra
síðustu dagana fyrir jól, jafnvel á
Þorláksmessu. Annars gengur
þetta mjög greitt og á hverri átta
stunda vakt rúllum við kannski
þremur titlum í gegnum vélarnar
nema þá að upplagið sé þeim mun
meira,“ segir Þorkell sem hefur
starfað sem prentari í 33 ár.
Lítill bókamaður
Nokkuð er um að rithöfundar
komi hingað í prentsmiðjur og
fylgist með þegar arkir að bókinni
þeirra renna út úr prentvélinni.
„Því fylgir alltaf gleði. Hins veg-
ar er þetta ekki eins og var áður
þegar útgefendur komu í prent-
smiðjuna með handritið nánast í
slitrum sem var slegið inn í prent-
smiðju, brotið um, svo var próf-
örkin lesin á kaffistofunni, hér var
prentað og bókin sett í band. Í dag
er þetta talsvert öðruvísi,“ segir
Þorkell sem kveðst lítill bókamað-
ur sjálfur. Hann fái í raun og veru
alveg sinn skammt af því að
standa við prentvélina dagana
langa og þegar því sleppi kjósi
hann að ganga til rjúpna eða
stunda aðra útiveru – sem sé allra
meina bót.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Stafli Myndarlegur hlaði bóka sem kemur út nú fyrir jólin.
Oddaverjar prenta
þrjá titla á vaktinni
Hjá Odda er stór hluti jólabókanna prentaður. Törnin er tæpir fjórir mánuðir.
Bækur eru stór hluti jólagleði þjóðarinnar og stemning í prentsmiðjunum.
Morgunblaðið/Kristinn
Prentarinn Törnin við prentun jólabókanna hefst í byrjun september og þegar líður á haustið er staðið við prentvél-
arnar allan sólarhringinn, segir Þorkell Svarfdal Hilmarsson sem hefur starfað við prentverk áratugum saman.
30 Jólablað Morgunblaðsins 2010
Það væri seint hægt að
kalla það hófstillt jóla-
skrautið sem gnæfir yfir
Oxford-stræti í Lundúnum.
Ljósin voru tendruð á
dögunum og lýsa nú upp
skammdegið fyrir við-
skiptavini sem skjótast
milli verslana á þessari
feiknastóru verslunargötu.
REUTERS
Jól í
London
STÆRÐIR
S - XXXL
Meyjarnar AusturveriHáaleitisbraut 68sími 553 3305
Frábært úrval
af náttfatnaði