Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 85

Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 85
H eimagerður brjóstsykur hljómar eilítið flók- inn gjörningur en fjölskyldufyrirtækið Slikkerí setur það ekki fyrir sig og sér- hæfir sig í brjóstsykursgerð. En það er ekki það eina sem sælkerarnir hjá fyrirtækinu fram- leiða, þau gera einnig hlaup og lakkrís. Þá er rekin vefverslunin slikkeri.is þar sem hægt að kaupa allt til sælgætisgerðarinnar. Til að mynda fást í vefversluninni kennsluhefti í brjóstsykurs- og hlaup- gerð, sælgætispokar, ýmis bragðefni og litarefni. Einnig er til efni í sykurlausan brjóstsykur. Hann er gerður úr maltitoli (í stað sykurs), sem er framleitt úr maís- og hveitisterkju. Efnið er ætlað sykursjúkum og sælgætisgrísum er bent á að ganga hægt um gleð- innar dyr og borða ekki of mikið af brjóstsykrinum í einu, þar sem það getur haft laxerandi áhrif, sé þess neytt í óhófi. Meðfylgjandi eru nokkrar uppskriftir að sælgætinu gómsæta en það skal tekið sérstaklega fram að brjóstsykursgerðin getur verið mjög vandasöm og nauðsynlegt að hafa börn undir öruggu eftirliti full- orðinna meðan gerðin fer fram. Sykurmassinn sem notaður er verður nefnilega sjóðandi heitur og slys geta orðið ef ekki er farið nógu varlega. birta@mbl.is slikkeri.is Brjóstsykur – grunnuppskrift Gerir u.þ.b. 500 g af brjóstsykri 4 dl sykur 1½ dl þrúgusykur 1 dl vatn Þegar þið eruð orðin vön brjóstsykursgerð getið þið skipt þrúgusykrinum út og notað glúkósa. Molarnir geymast betur og verða tærari en klippa þarf massann mun heitari því hann er fljótari að harðna. Helstu áhöld: Bökunardúkur (má nota bök- unarplötu) sykurhitamælir spaðar skæri Aðferð: Leggið dúkinn á handklæði. Smyrjið dúkinn, spaðana og skærin með matarolíu. Hafið glas með heitu vatni tilbúið við hlið eldavélarinnar. Hafið bökunarpappír tilbúinn til að klippa brjóstsykurinn á. Hafið öll efni sem á að nota tilbúin áður en byrjað er. Hitið bakarofn í 70°C, ekki nauðsyn að nota ofn en getur verið þægilegt. Setjið eina grunnuppskrift í pott, ekki álpott. Hrærið efnunum saman, ekki þarf að hræra á meðan sýður. Setjið pottinn á mátulega hellu, á fullan straum. Ekki lækka strauminn. Mælið efnin sem eiga að fara í uppskriftina á meðan massinn sýður. Einn tappi af bragðefni frá Slikkeríi gerir u.þ.b. 1 ml. Leggið hitamælinn í glas með heitu vatni á milli þess sem hann er notaður til að mæla hitann í mass- anum. Ef mælirinn er settur á borð festist hann við borðið og getur brotnað ef reynt er að taka hann upp. Slökkvið á hellunni þegar massinn er kominn í 158°C hita. Hafið pottinn áfram á hellunni þar til massinn nær 165°C. Bíðið þar til massinn hættir að krauma, hellið hon- um þá á dúkinn. Setjið pottinn strax í heitt vatn til að massinn náist sem auðveldast af, þá er hann tilbúinn fyrir næstu uppskrift. Setjið efnin sem nota á í uppskriftina í massann í þeirri röð sem þau koma fyrir í uppskriftinni. Rauði liturinn getur brunnið, því er gott að bíða með að setja hann í massann í u.þ.b. eina mínútu eftir að hon- um hefur verið hellt á dúkinn. Vinnið kantana með spöðunum inn að miðju, þannig kælist massinn eins. Þegar allt hefur blandast vel við massann er tími til að klippa brjóstsykurinn. Hægt er að skipta massanum strax í 3-4 parta, móta pylsur og klippa í hæfilega stóra bita með skær- um. Einnig getur verið gott að fletja massann út á smjörpappír og setja hann inn í bakarofn í u.þ.b. 5 mínútur. Skerið hann í ræmur með hnífi, smurðum matarolíu, og klippið þær í hæfilega stóra mola. Ef einn einstaklingur er að gera brjóstsykurinn er betra að geyma massann í bakarofni á meðan verið er að klippa. Gætið að; molarnir mega ekki snertast á meðan þeir eru heitir, þeir festast saman. Ef þið viljið hafa molana þríhyrnda er snúið upp á pylsuna á milli þess sem moli er klipptur frá. Þegar brjóst- sykurinn er orðinn kaldur er hann settur í poka eða plastk- rukku og lokað strax. Súrefni gerir brjóstsykurinn klístraðan. Salmíaklakkrís 2 dl arabískt gúmmí 4 msk. lakkrísduft 3⁄4 dl kalt vatn Þetta er hrært saman í skál þar til blandan verður kekkjalaus, lagt til hliðar 11⁄4 dl þrúgusykur 1⁄4 dl heitt vatn örlítill svartur litur Sett í ílát yfir vatnsbaði, þrúgusykurinn látinn bráðna, liturinn hrærður vel saman við. Arabíska gúmmíið og lakkrísduftið sett saman við sykurinn, haft yfir vatns- baði í u.þ.b. 20 mín. eða þar til blandan verður 80-90°C heit. ½ ml anísolíu og 1 tsk. salmíaki bland- að saman við. Blöndunni hellt á silikondúk eða smjörpappír, látið kólna, klippt í ten- inga eða hvað sem er eftir smekk. Brjóstsykurs- og lakk- rísgerð heima í stofu Hægt er að leggjast í framleiðslu á sínu eigin sælgæti heimavið fyrir jólin. 72 Jólablað Morgunblaðsins 2010 Framleiðsla á þessu undratæki hófst í Sviss fyrir meira en 50 árum og hefur verið í stöðugri þróun síðan. Bamix töfrasprotinn er nánast hljóðlaus, titrar varla og verður samstundir besti vinur þinn í eldhúsinu því hann leysir ólíkustu verkefni með stæl: þeytir, jafnar, saxar, hakkar, malar... Bamix minnir helst á svissneska vasahnífinn og dæmi eru um að hann endist áratugum saman. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Töfrasproti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.