Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 97

Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 97
T ólf ungmenni sem hafa verið hér á landi síðan í vor og unnið fyrir samtökin SEEDS munu dveljast hér á landi fram yfir jól og sinna á að- ventunni ýmsum félagslegum verk- efnum í sjálfboðnu starfi. Þau munu aðstoða Rauða krossinn á aðvent- unni og gefa gangandi vegfarendum í miðbænum heitt súkkulaði og einn- ig aðstoða Hjálpræðisherinn, Hjálp- arstofnun kirkjunnar, Rauða kross- inn og Mæðrastyrksnefnd við matarúthlutun fyrir jólin. Jól í Bjarkarhlíð Á þessu ári hafa samtökin tekið á mót um átta hundruð ungmennum sem sinnt hafa ýmsum verkefnum, einkum á sviði umhverfisverndar; svo sem hreinsun stranda, gróð- ursetningu og fleira. Þeir krakkar sem hér munu dveljast yfir hátíð- arnar hafa verið flokksstjórar í því starfi. Flokksstjórarnir ungu eru frá Þýskalandi, Ítalíu, Frakklandi, Spáni, Ísrael, Lettlandi og Bret- landi. Þau ætla að halda jólin í Bjarkarhlíð við Bústaðaveg, fallegu gömlu húsi sem var áður skóli. Stemning og andi Öll eiga krakkarnir það sameig- inlegt að hafa aldrei eytt jólunum fjarri heimahögunum og er stemn- ingin því blandin spennu og kvíða. Ieva frá Lettlandi er 23 ára há- skólanemi, aðspurð segist hún munu eyða jólunum á Íslandi til að ná sér í reynslu. „Ég vil prófa að eyða jól- unum í nýju umhverfi, með nýjum siðum, fjarri skyldmennum en með nýju fjölskyldunni, sjálfboðaliðunum á Íslandi,“ segir hún. James er 27 ára frá Englandi: „Ég hef aldrei eytt jólunum fjarri fjölskyldunni. Nú langar mig að vera einn um jólin og upplifa jólamenningu annarra landa, stemninguna og andann. Þetta er allt hluti af sjálfboðastarfinu, reynsl- unni, upplifuninni,“ segir James. Panettone – ítölsk jólakaka Panettone er hefð á jólum á Ítalíu. Hún er svampkennd, full af ávöxtum og bragðast dásamlega. Best er að fá sér sneið af nýrri Panettone með glasi af sætu víni, eins og Vin Santo. Kökuna má borða eina sér eða nota hana í fjölda eftirrétta. 1 tsk sykur 1 msk þurrger 4 msk mjólk (eða súrmjólk) 100 g smjör 50 g sykur 1 tsk vanilluextrakt 3 brúnegg fínraspaður börkur af ½ sítrónu fínraspaður börkur af ½ appelsínu 400 g hveiti, sigtað 1 tsk salt 100 g rúsínur (ljósar eða dökkar) 75 g saxaður sultaður börkur 1 Setjið mjólk (súrmjólk) í skál og sáldrið sykri og geri yfir. Látið standa í u.þ.b. 10 mín. – blandan á að freyða. 2 Hrærið smjör og sykur þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum einu í einu saman við og svo rifna berk- inum og vanillunni. 3 Setjið hveiti og salt í stóra skál. Blandið mjólkurblöndunni varlega saman við og svo eggjablöndunni. Blandið varlega þar til þið hafið mjúkt deig. 4 Hnoðið deigið með örlitlu hveiti í 5 mín., þar til það er slétt. 5 Setjið deigið í olíuborinn plast- poka eða leggið yfir það visku- stykki og látið það hefast á hlýjum stað í u.þ.b. klst, eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð. 6 Dreifið rúsínunum og sultaða berkinum yfir deigið og hnoðið þar til ávextirnir hafa blandast í deigið. 7 Smyrjið 20 cm smelluform með háum köntum og fóðrið formið að innan með smurðum bökunar- pappír, látið pappírinn ná vel upp úr forminu því kakan lyftir sér mikið. 8 Setjið deigið núna í smelluformið og látið hefast á hlýjum stað þar til það hefur tvöfaldast að stærð, eða í u.þ.b. 45 mín. 9 Bakið við 200°C í 10 mín., lækkið þá hitann í 180°C og bakið áfram í 30 mín. Kakan er tilbúin þegar hún er gullinbrún og þétt við- komu. 10 Kælið og sigtið flórsykur yfir. Hakk Polpette Ítalskar kjötbollur – algjört lostæti 500 g nautahakk 40 g rifinn parmigiano 1 egg 100 g mjúkt brauð (ekki skorpa) 11⁄4 dl mjólk steinselja safi úr einni sítrónu ólífuolía, salt, rauðvínsedik Leggið brauðið í mjólkina, bætið hakki, osti og salti saman við. Fín- saxið steinseljuna og bætið henni og egginu saman við kjötið. Blandið varlega með höndunum. Bleytið hendurnar með edikinu og mótið bollur sem eru u.þ.b. 4 cm, þrýstið svolítið á þær. Bollurnar má steikja á pönnu eða í ofni. Kreistið sítr- ónusafa yfir. Bollurnar eru borðaðar heitar eða kaldar, með kartöflumús og grænmeti. Buche de Noël – Jólalurkur 230 g dökkt súkkulaði, 70% 320 g mjúkt ósalt smjör, í teningum 200 g sykur 12 egg 160 g hveiti Súkkulaðikrem: Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði, bætið smjörinu saman við. Þeytið eggin og hellið saman við súkku- laðiblönduna. Takið blönduna af hit- anum og látið hana kólna í ísskáp í 3 klst. Genoese-svampbotn Hitið ofninn í 180°C. Þeytið saman eggjarauður og sykur. Bætið hveit- inu saman við. Stífþeytið eggjahvít- ur og blandið þeim varlega saman við. Setjið blönduna á bökunar- pappír í plötu eða ofnskúffu og bakið í 10-15 mín. þar til kakan er gullin. Takið úr ofninum og rúllið upp með röku stykki. Þegar kakan hefur kólnað er henni rúllað út aftur og bleytt í botn- inum með einhverju góðu, t.d. rommi. Svo er 3⁄4 af súkkulaðikrem- inu smurt á botninn og honum rúllað upp. Smyrjið afganginum af súkku- laðikreminu ofan á drumbinn og á hliðarnar. Frakkar nota gaffal til að líkja eftir trjáberki og skreyta hana oft með ávöxtum. sbs@mbl.is Jólalurkur Súkkulaði er uppistaðan í uppskriftinni og bakstur ekki flókinn. Ítalskt Kjötbollurnar má borða heitar sem kaldar og með ýmsu meðlæti. Aðstoða á aðventunni Hópur krakka frá fjölmörgum löndum sinnir verkefnum á Íslandi. Hjálparstarf með líknar- félögum fyrir jólin. Góðum málum er lagt lið. Hópurinn Kátir krakkar frá ýmsum Evrópulöndum sem halda jól hér á landi við aðstæður sem eru þeim framandi. 84 Jólablað Morgunblaðsins 2010 Við erum með til sölu laufabrauðsbretti þar sem laufabrauðskökurnar festast ekki við brettið! Fer vel með bit á skurðarverkfærum. Þeir sem hafa verið að nota svona bretti segja þau algjöra snilld. Köllunarklettsvegi 4, 104 Reykjavík, sími 587 6677. Opnunartími frá kl. 8.00-17.00. Ert þú að skera út laufabrauð? Verð: 1 stk. kr. 1.500 3 stk. kr. 4.050 5 stk. kr. 6.250
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.