Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 73
S
alan á jólabjór hefur aukist
ár frá ári og þó framleið-
endur séu sífellt að auka
framleiðsluna hefur íslenski
jólabjórinn jafnan selst upp og þá oft
nokkru fyrir jól. Sem dæmi um það
má nefna að á síðasta ári jókst salan
um rúman helming frá árinu á und-
an og margar tegundir seldust upp
um miðjan desember.
Jólabjór er alla jafna bragðmeiri
og dekkri en sá bjór sem landsmenn
drekka hversdags og eins er hann
frábrugðinn á milli ára, því þó menn
fylgi sömu uppskriftinni frá ári til
árs þá er bjórinn lifandi og því alltaf
einhver áherslumunur, aukinheldur
sem margir bruggmeistarar gera
smá áherslubreytingar milli ára, fín-
stilla bjórinn ef svo má segja. Fyrir
þessi jól senda fimm framleiðendur
frá sér jólabjór, Ölgerðin framleiðir
Jólabjór og Malt Jólabjór, Mjöður
Jólajökul, Víking Jóla Bock og Jóla-
bjór, Bruggsmiðjan Jóla Kalda og
Ölvisholt Jólabjór.
Jóla Malt og Jólabjór
Jólabjórinn frá Ölgerðinni er ann-
ars vegar Egils Jóla Malt og svo Eg-
ils Jólabjór, en einnig flytur Ölgerð-
in inn jólabjór frá Tuborg.
Bruggmeistari Ölgerðarinnar, Guð-
mundur Mar Magnússon, segir að í
grunninum sé uppskriftin að jóla-
bjórnum sú sama og síðustu ár, en
þó sé alltaf ákveðinn munur á milli
ára. „Við erum alltaf að fínpússa
uppskriftina þó hún sé sú sama í
grunnatriðum. Við breytum aðeins
til í humlamagni og karamellukorni,
en það er bara fínpússning, og gefur
ekki meira en blæbrigðamun.“ Guð-
mundur segir að mjög svipað magn
verði á boðstólum og í fyrra, um
100.000 lítrar af Egils jólabjórunum
og annað eins af Tuborg. Hann segir
að það verði sennilega ekki nóg,
enda sýnist sér salan verða meiri en
í fyrra og því líklegt að jólabjórinn
klárist fyrir jól.
Jólajökull frá Miði
Bruggverksmiðjan Mjöður fram-
leiðir Jökul bjór og Skriðjökul bjór
og líka jólabjórinn Jólajökul. Gissur
Tryggvason, framkvæmdastjóri
Mjaðar, segir að þetta sé í annað
sinn sem boðið sé upp á Jólajökul, en
verksmiðjan er ekki gömul, sendi frá
sér fyrsta bjórinn 1. október 2008.
Hann segir að bjórinn eigi að vera
nákvæmlega eins og fyrir ári og not-
uð sé nákvæmlega sama uppskrift.
„Hann heppnaðist það vel hjá okkur
í fyrra.“
Jólajökull er rauðleitur maltbjór
með sex mismunandi malttegundum
og þremur humlategundum að sögn
Gissurar. „Okkar hefð er þýsk enda
er bruggmeistarinn þýskur og upp-
setningin líka. Við fórum mjög var-
lega af stað með jólabjórinn í fyrra
og hann seldist upp, var því miður
búinn 5. desember, en núna erum
við með mörgum sinnum meira
magn.“
Jólakaldinn á oss blés
Bruggsmiðjan á Árskógsströnd
bruggar Kalda bjóra og þar á meðal
Jóla Kalda. Að sögn Agnesar
Sigurðardóttur er byggt á sömu
uppskrift og í fyrra, enda þótti hún
heppnast mjög vel. „Við bruggum þó
heldur meira en í fyrra, enda var
jólabjórinn orðinn uppseldur 10.
desember, enda fengum við mjög
góða dóma.“
Þetta er þriðja árið sem Brugg-
smiðjan framleiðir jólabjór og bæði
árin hefur hann selst upp um svipað
leyti í byrjun desember. Það verður
þó þar við að sitja, því að sögn
Agnesar verður framleiðslan ekki
aukin mikið meira að svo stöddu.
„Við erum að keyra allt í botn og þar
sem við notum ekki rotvarnarefni
getum við ekki unnið mikið fram fyr-
ir okkur.“
Ólafur Þ. Ólafsson framleiðslu-
stjóri tekur í sama streng með að
uppskriftin sé sú saman, en bendir á
að það sé alltaf smá munur á milli ár-
ganga eftir því hvernig uppskeran
er á korni og humlum. „Ég vil meina
að hann sé örlítið dekkri og maltaðri
en í fyrra, meira út í þýskt eða tékk-
neskt myndi ég segja, enda er
bruggmeistarinn tékkneskur og
bruggað eftir pilsnerhefð, enginn
sykur eða aukefni.“
Beðið eftir jólabjór
Jólabjórinn frá Ölvisholti er enn í
tönkunum og kemur ekki á markað
fyrr en í byrjun desember. Valgeir
Valgeirsson bruggmeistari segir að
hann sé tæknilega sá sami og á síð-
asta ári, bruggaður í sama stíl, bock-
bjór, en dálítið dekkri og maltmeiri
og meira kryddaður. „Ég hef aðeins
verið að fikta við uppskriftina og því
er þetta ekki sami bjórinn þó ég
leggi upp með sama grunn. Hann er
reyndar gjörólíkur og tölvuvert
sterkari.“ Valgeir segist vonast til
þess að bjórinn frá Ölvisholti eigi
orðið sinn fasta kúnnahóp sem hafi
beðið eftir því að prófa nýja bjórinn
frá Ölvisholti. „Við erum ekki með
sama árstíðarbjórinn tvisvar í röð,
en reynum að halda hlutunum
spennandi, ekki síst fyrir okkur
sjálfa. Bjórsölukerfið á Íslandi er
þannig sett upp að það býður ekki
upp á það að koma með mikið af nýj-
um tegundum og því er jólabjórinn
tækifæri sem maður hlakkar til allt
árið.“
Jólabjór og Jóla Bock
Vífilfell kynnir tvo jólabjóra að
þessu sinni, annars vegar hinn hefð-
bundna Viking jólabjór og svo Jóla
Bock, sem er bruggaður í fyrsta
sinn. Honum hefur verið vel tekið,
fékk til að mynda hæstu einkunn í
bragðprófun í DV fyrir stuttu, og
var uppseldur frá fyrirtækinu aðeins
nokkrum dögum eftir að hann kom á
markað. Baldur Kárason brugg-
meistari segir að vinsældirnar hafi
komið mönnum nokkuð a óvart, því
þó þeir hafi vitað að þeir væru með
góða vöru í höndunum áttu þeir ekki
von á svo góðum viðtökum. „Við
héldum að þetta væri bjór sem væri
frekar fyrir bjórsérvitringa eða
mikla bjóráhugamenn en almennan
kúnna, enda er hann sterkari og
bragðmeiri en venjulegur bjór og
líka dýrari. Við tókum því bara eitt
brugg af honum, og það kláraðist um
leið,“ segir Baldur og bætir við að
Jóla Bockinn taki svo langan tíma í
framleiðslu að ekki sé hægt að
brugga meira fyrir þessi jól.
Hvað varðar hefðbundinn Viking
jólabjór segir hann að sá sé óbreytt-
ur frá síðasta ári, enda uppskriftin
óbreytt og öll vinnsla nema að því
leyti að nú er mun meira bruggað.
„Það var svo gríðarleg aukning í sölu
í fyrra að hann kláraðist löngu fyrir
jól, en vonandi eigum við nóg af hon-
um núna.“
arnim@mbl.is
Íslenskur jólabjór
Á síðustu árum hefur skapast hefð fyrir íslenskum jóla-
bjór og margir bíða þess með eftirvæntingu að hann
berist í áfengisverslanir og öldurhús. Sala á honum hef-
ur aukist að sama skapi og er svo komið að margar teg-
undanna eru uppseldar löngu fyrir jól. Árni Matthías-
son kannaði framboð af íslenskum jólabjór.
60 Jólablað Morgunblaðsins 2010
Nýopnuð verslun H&M í Varsjá var
sveipuð rauðum borða í tilefni opn-
unarinnar á dögunum. Ekki er ólík-
legt að einhverjir heimamenn komi
til með að finna jólafötin sín í versl-
uninni góðu.
Reuters
Innpökkuð
verslun