Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 82
Jana Gajic,
5 ára
Hvað langar þig í í jólagjöf?
Ég veit það ekki.
Hvað borðarðu á jólunum?
Piparkökur.
Hefurðu fengið kartöflu í skóinn?
Nei, maður fær bara svoleiðis þegar
maður er óþekkur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
E
kki er auðvelt að lifa og hrærast í
neyslusamfélaginu, og hvað þá um
jólin. Því sem mann langar í eina
stundina missir maður áhuga á þá
næstu, og alltaf er eitthvað nýtt og spennandi sem
birtist í hillunum.
Alhliða óskalisti Amazon er hjálpartæki sem vert er að
gefa gaum þessi jólin, sérstaklega ef fólk brennir sig á því ár
eftir ár að fá ekki neitt sem það langar sérstaklega í.
Flestir ættu að þekkja þá óskalista sem margar betri vefverslanir
leyfa fólki að setja saman, og síðan dreifa svo lítið beri á á tölvupóstföng ætt-
ingja og vina. Þess þekkjast meira að segja dæmi hér á landi að búðir séu komnar
með svo fullkomna netverslun og t.d. vinsælt hjá tilvonandi brúðhjónum að velja sér
þar á gjafalista það sem gott væri að fá til heimilisins.
En vandinn er einmitt þessi, að óskalistarnir ná yf-
irleitt ekki út fyrir viðkomandi vefverslun. Slíkt
gengur ekki í dag, þegar netið er ein alls-
herjarverslunarmiðstöð. Þar kemur „Al-
hliða óskalistinn“ eða „Universal Wishlist“
frá netbúðinni Amazon.com til sögunnar.
Um er að ræða lítið forrit, að kalla má, sem
auðvelt er að stilla inn í allar helstu vafrateg-
undir. Lítill takki er þá alltaf til taks í sjálfum
vafraglugganum, og þegar fólk rekst á áhuga-
verðan hlut er einfaldlega smellt á hnappinn
og birtist þá lítið skema til að fylla inn nánari
upplýsingar áður en bætt er við óskalistann.
Hnappurinn skimar eftir verði og myndum af
því sem verið er að skoða og fyllir oft sjálfkrafa út
helstu upplýsingar. Stundum verður þó að fletta upp
réttu myndinni til að tengja við hlutinn, og eins slá inn
handvirkt heiti, verð eða lýsingu.
Öllu er svo safnað saman í einn heildar-óskalista sem haldið er
utan um gegnum vef Amazon. Þar má síðan forgangsraða, flokka og
sortera í aðskilda lista eftir þörfum og tilefni, og deila með þeim sem þurfa
endilega að vita hvaða gjafir myndu gera mesta lukku þessi jól.
ai@mbl.is
Haldið utan um allar mögulegar
netverslanir á einum lista
Óskalistinn sem
nær yfir allt
Kjartan Hugi
Rúnarsson, 5 ára.
Hvað langar þig að fá í jólagjöf?
Star Wars-legó og Star Wars-mynd.
Hver er uppáhaldsjólasveinninn
þinn?
Hvað heitir hann aftur þessi litli, já
Stúfur.
Hefurðu fengið kartöflu í skólinn?
Ég hef fengið tígrisdýr og gíraffa og
kassa sem er með sandi og svo finn-
ur maður risaeðlu í kassanum.
Hvað borðarðu á jólunum?
Ég borða flatköku og hangikjöt og
brauð og pasta.
Hver á afmæli á jólunum?
Ég á allavega ekki afmæli á jólunum
en ég á gildru fyrir Grýlu. Hún getur
étið þig.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólablað Morgunblaðsins 2010 69
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
A
C
TA
V
IS
0
1
1
1
4
2
Af litlum neista…
Omeprazol Actavis
- öflugt lyf við brjóstsviða og súru bakflæði
20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki
Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur ómeprazól sem hemur seytingu á magasýru. Omeprazol Actavis er notað við tilfallandi
brjóstsviða og súru bakflæði. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum, samtímis notkun lyfja sem innihalda claritrómýcín hjá
sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi, samtímis notkun lyfja sem innihalda atazanavír. Varúð: Gæta skal sérstakrar varúðar: Ef verulegt
og óvænt þyngdartap verður, við endurtekin uppköst, ef erfiðleikar eru við að kyngja, við blóðuppköst eða blóð í hægðum, ef lifrar-
eða nýrnastarfsemi er skert, ef þú færð niðurgang eða ef þú hefur fengið fylgikvilla (blæðingar eða sár í meltingarfærum) vegna
bólgueyðandi verkjalyfja. Láta skal lækni/lyfjafræðing vita ef bólgueyðandi verkjalyf eru notuð. Börn og unglingar undir 18 ára aldri
eiga ekki að nota lyfið nema að ráði læknis. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa. Meðganga/brjóstagjöf: Leitið ráða hjá lækni áður
en lyfið er notað. Akstur og notkun véla: Aukaverkanir, svo sem þreyta, svimi og sjón- og heyrnartruflanir, geta komið fram og geta
haft áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Algengar aukaverkanir eru niðurgangur, hægðatregða, vindgangur,
ógleði, uppköst, svefntruflanir, sundl, höfuðverkur eða þreyta. Þessar aukaverkanir verða yfirleitt vægari við áframhaldandi meðferð.
Skammtastærðir: Fullorðnir: 1 sýruþolið hylki eftir þörfum. Ekki má nota meira en 20 mg á sólarhring. Ef einkennin hverfa ekki eftir að
Omeprazol Actavis hefur verið notað í 14 daga skal hafa samband við lækninn vegna þess að einkennin gætu verið af öðrum orsökum.
Gleypa á sýruþolnu hylkin með glasi af vökva. Sýruþolnu hylkin ætti að taka fyrir máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi
maga. Hvorki má tyggja né mylja sýruþolnu hylkin. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið lyfið þar sem börn
hvorki ná til né sjá. Júlí 2010.