Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 109
96 Jólablað Morgunblaðsins 2010
V
elflestir Íslendingar eiga
jólaminningar sem tengj-
ast miðborginni í Reykja-
vík, sem helst í hendur við
þá staðreynd að hjarta höfuðborg-
arinnar og mannlífið þar er okkur
flestum afar kært,“ segir Jakob Frí-
mann Magnússon, framkvæmda-
stjóri Miðborgarinnar okkar.
Jólabær á Hljómalindarreit
„Þetta umhverfi er hlýlegt um-
hverfi og notalegt, á sér helst líka í
Georgetown í Washington eða elsta
hluta Stokkhólms. Fólk sækir í svona
staði. Á síðustu misserum hefur mið-
borgin verið í sókn og nú er setið um
hvert rými sem losnar á svæðinu frá
Kvos upp að Hlemmi. Nýjar versl-
anir eða annar rekstur fylla oftast
nær samstundis þau skörð sem
kunna að myndast,“ segir miðborg-
arstjórinn glaður í bragði.
Þessa dagana er verið að færa
miðborgina í jólabúning ljósa og
skreytinga, eins og vera ber. Skipu-
lögð jóladagskrá hefst 9. desember
og stendur fram til Þorláksmessu-
kvölds. Af mörgu markverðu sem
fyrirhugað er ber líkast til hæst
Jólabæinn á Hljómalindarreitnum en
það svæði markast af Laugavegi og
Hverfisgötu annars vegar og
Klapparstíg og Smiðjustíg hins veg-
ar.
„Þessi reitur er vel rammaður inn
og skjólsæll. Hann hentar því vel fyr-
ir margvíslega viðburði. Það hefur
líka sýnt sig að fólk hefur mikinn
áhuga á að vera þarna með sölutjöld,
bása, bjálkahús og uppákomur fyrir
jólin,“ segir Jakob Frímann.
„Þarna ætlum við að bjóða upp á
glæsilega jóladagskrá með Grýlu,
Leppalúða og Jólasveinum auk fjöl-
margra sönghópa , hljóðfæraleikara
og annarra skemmtikrafta. Við
ákváðum nýverið að stækka Jóla-
þorpið upp í að vera Jólabær vegna
aukinnar ásóknar og getum nú boðið
nokkrum aðilum til viðbótar að slást í
hópinn. Sama gildir um áhugasama
listamenn sem geta sent okkur línu á
midborgin@midborgin.is hafi þeir
áhuga á að vera með í Jólahúsi mið-
borgarinnar.“
Gjafakort og vefsíða
Miðborgin okkar er vettvangur
miðborgarmála kostaður af þeim
sem eru með rekstur í miðbænum,
Ráðhúsinu og Bílastæðasjóði. Á sl.
ári tók Miðborgin okkar svo við þeim
hlutverkum og skyldum sem Þróun-
arfélag miðborgarinnar og Miðborg
Reykjavíkur gegndu áður.
Jakob hefur verið í forsvari fyrir
miðborgarmál og annast skipulagn-
ingu þeirra undanfarin ár. Eru ýmis
járn í eldi um þessar mundir, svo sem
í markaðsmálum og má þar nefna
Gjafakort miðborgarinnar. Það er
gjafakort sem verslanir, veitinga-
staðir og fleiri í miðborginni hafa
þróað í samvinnu við Landsbankann
og getur innistæða kortsins, sem
gildir á velflestum stöðum í miðborg-
inni, verið að vali hvers og eins.
Þá er ný vefsíða Miðborgarinnar
okkar komin í loftið og er þar áhersla
lögð á gagnvirk samskipti.
Sífelld gerjun
„Áhugi á rekstri í miðborginni er
mikill og þar er sífelld gerjun. Nú er
til að mynda tískuverslunardrottn-
ingin Svava Johansen að opna nýja
glæsiverslun á Laugavegi 26 þar sem
Skífan var til skamms tíma, en Skíf-
an opnaði aftur nýverið verslun á
horni Laugavegar og Frakkastígs.
Hönnunar- og skartgripaverslunin
Aurum sem er neðst í Bankastrætinu
hefur nýlega stækkað verulega við
sig, Cintamani er að opna í Banka-
stræti og margir bíða eftir að fá inni í
nýbyggingu á horni Lækjargötu og
Austurstrætis og í nýuppgerðum
húsum á Laugavegi 4 og 6. Þá er at-
hafnaskáldið Friðrik Weisshappel að
undirbúa skemmtilega starfsemi í
Austurstræti þar sem þvottahús og
kaffihús eru undir einu sama þaki og
svona gæti ég lengi haldið áfram,“
segir Jakob Frímann.
„Skólavörðustígurinn nýtur þess
svo að vera nýuppgerður og heil-
steyptur. Athafnafólkið þar er líka
áberandi samstiga og félagslega
þroskað eins og vígorð þeirra ber
merki um: Skólavörðustígurinn –
alltaf brattur!“
Skýr vilji borgaryfirvalda
Jakob Frímann segir að vilji borg-
aryfirvalda til uppbyggingar í mið-
borginni sé skýr og bendir m.a. á
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörp-
una, nýuppbyggt horn Austurstrætis
og Lækjargötu, Laugaveg 4 og 6 og
fleiri staði.
„Skýr miðborgarstefna hefur unn-
ið með okkur og eins ýmsir ytri þætt-
ir. Fólk fer minna til útlanda en áður
og ferðamönnum sem hingað koma
hefur stórfjölgað. Engum blöðum er
um það að fletta að hér er eldgosið í
Eyjafjallajökli áhrifaþáttur. Elds-
umbrotin ollu vitundarvakningu um
Ísland sem skyndilega öðlaðist ríf-
andi heimsfrægð sem við njótum um
ókomin ár,“ segir miðborgarstjórinn.
„Lífleg verslun í miðborginni í dag
virkar hvetjandi fyrir þá sem þar
starfa til að vinna að frekari upp-
byggingu og endurreisn. Í dag skynj-
um við sterkan vilja til að styrkja
Laugaveginn frá Hlemmi niður að
Vitastíg sem í eina tíð var raunar
sterkasta svæði miðborgarinnar
meðan þar voru verslanir á borð við
Karnabæ. Mikilvægt sé að gera
bragarbót á Hlemmtorgi og uppi eru
hugmyndir um að gera staðinn að
fjölskylduvænni og iðgrænni gróð-
urmiðstöð, einskonar Blóma-
Hlemmi, en í dag skortir nokkuð á að
ímynd og orðspor staðarins geri
hann að nægilega aðlaðandi horn-
steini miðborgarinnar. Þá hefur ver-
ið varpað fram hugmyndum um að
endurvekja tenginguna við náttúru
og dýralíf í húsinu við hliðina á
Hlemmi, en þar var áður til húsa
Náttúrugripasafn Íslands. Þar væri
tilvalinn staður fyrir náttúrugripa-
kaffihús með uppstoppuðum dýrum
og fræðsluefni,“
Tækifærin brosa við okkur
Jakob finnst þetta ríma vel við þá
staðreynd að handan götunnar, við
horn Laugavegar og Rauðarárstígs
var nýverið opnuð hin vinsæla heilsu-
vöruverslun Yggdrasill og einnig eru
uppi áform hjá Strætó að innleiða
græna rafmagnsvagna sem tvímæla-
laust gætu þjónað eins konar upplif-
unarhlutverki fyrir börn og fullorðna
ekki síður en að sinna almanna-
samgöngum.
„Ég sé fyrir mér nýstárlega troð-
fulla vagna af innlendum og erlend-
um farþegum sem gætu fengið líf-
lega leiðsögn í útsýnisferðum um
borgina með ljóða- og söngvaskáld-
um um borð í vögnum knúðum ís-
lenskri grænorku. Með þessu móti
gæti Græni-Hlemmur orðið fyrsti
áfangastaður farþega úr skemmti-
ferðaskipunum sem leggja að
Skarfabakka. Þetta fólk er í dag allt
flutt í Kvosina og þarf síðan að ganga
upp í móti – upp í miðborgina – í stað
þess að byrja við Hlemm eða Hall-
grímskirkju og ganga niður í móti.
Verkefnin og tækifærin brosa alltént
við okkur, hvert sem litið er í mið-
borginni,“ segir miðborgarstjórinn.
sbs@mbl.is
midborginokkar.is
Morgunblaðið/Eggert
Miðborgarstjórinn Jakob Frímann Magnússon er framkvæmdastjóri Mið-
borgarinnar okkar sem vinnur að ýmsum góðum framfaramálum í miðborginni.
Morgunblaðið/Kristinn
Friður Friðargangan frá Hlemmi niður í Kvos á Þorláksmessukvöld er meðal dagskrárliða í miðborg Reykjavíkur sem
mörgum finnast ómissandi enda er fyrir góðum málstað barist. Kertin tákna kærleik sem skal ríkja um veröld víða.
Morgunblaðið/Golli
Þorpið Jólaþorp Reykjvíkinga er á Hljómalindarreitnum sem er fyrir miðjum Laugaveginum. Dagskráin þar er fjölbreytt
og við opnun þorpsins í fyrra söng Flugfreyjukórinn undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar fyrir gesti og gangandi.
Viðburðaglað-
ur Jólabær í
miðborginni
Miðborgin er færð í búning ljósa og skreytinga.
Jólaminningar úr miðborg. Hátíð við Hljóma-
lind. Margar hugmyndir eru í deiglunni.
Laugavegi 59, 2. hæð | 101 Reykjavík | Sími 551 8258
storkurinn@storkurinn.is | www.storkurinn.is
Jólagjafir
prjónakonunnar