Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 108
National Lampoon’s Christmas
Vacation (1989)
Þarf að hafa fleiri orð um þennan
gamla og eilíflega kærkomna jóla-
glaðning RÚV? Vísitölufjölskylda
Chase hyggst halda jólin hátíðleg
með því að bjóða frændgarðinum úr
hinu makalausa Grunwold-slekti til
jólafagnaðar. Slík samkunda getur
ekki annað en farið úrskeiðis. Hinir
léttgeggjuðu Chase og Randy Quaid,
sjá um að koma fólki í gott skap.
Jingle All The Way (1996)
Er jólasveinninn repúblikani?
Örugglega George W., varla Nixon
sálugi. En vöðvabúntið og harð-
hausinn Arnold Schwarzenegger
hefði betur aldrei komið nærri gam-
anleik, hér er hann þó vissulega
brattur í ágætri jólamynd og sýnir á
sér mjúku hliðina sem örvinglaður
faðir sem næstum gleymir að kaupa
jólagjöf handa syninum. Mjög sér-
stök mynd fyrir óharðnaða repú-
blikana, unga sem aldna. Upp með
fílinn!
Desember (2009)
Rúsínan í pylsuendanum er að
sjálfsögðu Desember, hin alíslenska
og ágæta jólamynd Hilmars Odds-
sonar. Poppari snýr aftur heim frá
Argentínu eftir nokkurra ára dvöl.
Komið er fram á jólaföstu og hann
langar til að hóa saman gömlu hljóm-
sveitinni og halda jól í faðmi fjöl-
skyldunnar. Hann uppgötvar eftir
heimkomuna að allt hefur breyst,
heimurinn sem hann þekkti áður
stendur á haus. Fjölskyldan glímir
við veikindi og fjárhagserfiðleika, ást-
in hans, söngkonan í hljómsveitinni,
hefur tekið saman við vel stæðan út-
fararstjóra. Nú er kominn tími til fyr-
ir popparann að axla ábyrgð. Myndin
átti skilið miklu betri aðsókn, kannski
var það þessi afleiti titill. Því fékk hún
ekki að heita Hátíð í bæ. Takið þessa
klassa-jólamynd endilega á leigu.
saebjorn@heimsnet.is
Hörkutól Fáir tengja Bruce Willis
við jólin, eða hvað?
Flott Eowyn mundar sverð og hygg-
ur á hefndir í Hringadróttinssögu.
nýjar og gamlar jólamyndir
Jólablað Morgunblaðsins 2010 95
Farðu á heimasíðu okkar www.samskipti.is
Persónuleg Persónuleg
Persónuleg Persónuleg
www.samskipti.is | Síðumúli 4 | 580 7820
Prentvefur okkar gerir þér kleift að
hanna og skapa þín eigin prentverk
Sími 568 5170
VARALITATILBOÐ
Verið
velkomin
20% afsláttur
af öllum varalitum og glossum
til 15. desember
SKÓLAVÖRUSTÍG 6B
SÍMI 562 6999
www.marialovisa.com
Nú verður farið hratt yfir sögu,
en hér getur að líta lista yfir þær
myndir sem frumsýndar verða í
kvikmyndahúsum á næstu vikum.
3.des Life as We Know It, Faster
og Paranormal Activity 2.
10.des Narnia 3 í 3D og The Last
Exorcism.
17.des Megamind – 3D
26.des Gauragangur, Meet the
Parents: Little Fockers og Tron
Legacy í 3D
1. janúar Saw 3D.
Og rúsínan í pysluendanum, ný-
ársmyndin, frumsýnd 1. janúar:
Klovn – The Movie. Tengdó Robert DeNiro og Ben Stiller takast á.
Frank Hvam Það bíða eflaust margir eftir því að sjá nýjustu ævintýri Franks og Caspers.
Jóla-
myndirn-
ar í ár