Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 91
Löberar og laufabrauð af list
78 Jólablað Morgunblaðsins 2010
Skór og töskur
í miklu úrvali
Sérverslun með
www.gabor.is
Fákafeni 9 • Sími 553 7060
Opið mánud.-föstud. kl. 11-18 og laugard. kl. 11-16
Í
slensku laufabrauði eru gerð verðug skil á sýningu
sem Hugrún Ívarsdóttir opnar í menningarhúsinu
Hofi á Akureyri nú um helgina. Þar verða sýnd
fimm skúlptúrverk unnin í plexígler og er hvert
verk hálfur annar metri í þvermál. Mynstrið í verk-
unum þekkjum við frá íslenska laufabrauðinu. Á síð-
ustu árum hefur Hugrún Ívarsdóttir unnið með ís-
lensku laufabrauðskökuna svo úr hefur orðið falleg
hönnunarvara.
Á miðum menningarhefðar
Laufabrauðsmenningin á sér traustar rætur á Norð-
urlandi. Hér áður fyrr gaf laufabrauðsskurður fólki
einstakt tækifæri til að reyna sig í hagleik og listfengi
og þegar sest var niður við að skera í kökurnar, jafnan
á fyrsta sunnudegi í aðventu, var hátíð í bæ. Kleinu-
járn voru notuð til að móta hringlaga form kökunnar,
oftast eftir diski. Skreytingin sjálf var aftur á móti
unnin með hníf. Á miðri 20. öld voru hagleiksmenn
farnir að smíða sérstök laufabrauðsjárn og urðu þau
fljótlega vinsæl.
„Ég byrjaði árið 2001 að safna saman ýmsum þeim
mynstrum sem í tímans rás hafa sést í íslenskum
laufabrauðskökum. Hef í gegnum tíðina nýtt þau með
ýmsu móti í hönnunarverki og öðru og þannig róið á
mið þeirrar menningarhefðar sem þjóðin þekkir. Marg-
ar fjölskyldur eiga til dæmis sitt sérstaka laufa-
brauðsmynstur,“ segir Hugrún sem hefur látið fram-
leiða vörulínu þar sem bjóðast dúkar, löberar,
viskustykki og margt fleira – allt með laufabrauðs-
mynstrum. Það nýjasta í þeim efnum eru dúkar, sem
eru hálfur annar metri á breidd, og eru þeir seldir eftir
máli.
Frekari þróun og hönnun
Að Strandgötu 43 á Akureyri starfrækir Hugrún
Laufabrauðssetrið og þar er öll vörulínan til sölu þar
má jafnframt skoða laufabrauð og ýmis mynstur.
„Þessu hefur verið vel tekið. Fólki finnst skemmtileg
upplifun að koma hingað. Viðtökurnar sem vörulínan
hefur fengið gefur tilefni til bjartsýni og ég stefni á
frekari þróun og hönnun,“ segir Hugrún sem kveðst
vera með ýmsar hugmyndir á teikniborðinu sem taki
sinn tíma að koma í framkvæmd. Hún lærði á sínum
tíma útstillingahönnun í Danmörku og hefur starfað
við það. Áhuginn á laufabrauðinu er hins vegar kominn
úr barnæskunni, en Hugrún er líkt og stór meirihluti
íslensku þjóðarinnar alin upp við þann sið að skera út
laufabrauð og steikja.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mynstur Hugrún við jólaborðið sem er skreytt með laufabrauðsmynstum rétt eins og falleg svuntan hennar. Gluggi Jólasveinninn Gluggagæir gerir sig efalaust heimakominn hér.
Kerti Margt fallegt má fá í Laufarbrauðssetrinu svo sem kerti með fallegu laufabrauðsskrauti.
Skúlptúrar af laufabrauðskökum sýndir í Hofi
á Akureyri. Fjölskyldurnar eiga sitt mynstur.
Sterk hefð fyrir laufabrauðsgerð á Norðurlandi.
Kökur Fjölbreytni í laufabrauðsmynstrum er mikil og sé
hugmyndaflugið í lagi eru í raun engin takmörk til.