Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 84
Jólakort
Á tækniöld mundi maður halda að
jólakort heyrðu sögunni til. Þvert á
móti er sá siður fastur í sessi og hlý-
leg og hjartnæm jólakveðja ávallt
kærkomin. Að fá jólakort er eins og
viðurkenning á mikilvægi tilveru
manns í lífi annars.
Jólaviðburðir
Ekkert er betur til þess fallið að
koma manni í jólaskapið en að fara
á hefðbundinn jólaviðburð. Sjá há-
tíðlegan svip barnanna og spenn-
inginn á jólaleikritum í skólum og
leikskólum. Ómetanleg er ferð með
góðum vinum á aðventutónleika.
Jólalög
Opinber dagsetning til að fara að
spila jólalög er 1. des. Flestir eru nú
farnir að stelast til að spila þau
strax í byrjun nóvember og syngja
hástöfum með laginu um Snæfinn
snjókarl. Í nútímasamfélagi þar
sem allir vinna fullan dag þá dugar
ekki að hafa einungis desember til
hreingerninga, föndurs, baksturs
og jólagjafakaupa. Flestir byrja að
einhverju leyti í nóvember og þá
verður auðvitað að hlusta á jólalög
með, annars mundi hreinlega eitt-
hvað vanta í jólakökurnar.
Jólaskraut
Sumir eru hógværir, aðrir fá útrás
fyrir jólabarnið í sér með óteljandi
marglitum og spilandi jólaseríum,
jólasveinum, snjókörlum og ýmsu
öðru. Gleðjandi og hlýlegt í skamm-
deginu og alltaf gaman að gera
músastiga.
Jólagott
Eitt það allra besta við jólin er
gotteríið sem maður finnur í skón-
um sínum í glugganum og makkin-
tossið sem flæðir úr skálunum um
hátíðirnar.
Jólamynd
The Grinch og National Lampoon’s
Christmas Vacation eru ómissandi
hluti af jólahátíðinni.
Jólatré
Lifandi eða gervi, það er ekki hægt
að hugsa sér að vera án þess. Marg-
ir halda ennþá þeirri hefð að
skreyta tréð á Þorláksmessukvöld
og hlusta á lestur jólakveðja á Guf-
unni með angan af kæstri skötu og
hangikjöti í loftinu.
Jólaboð
Stærsta jólahefðin er fjölskyldu-
boðin. Systkin, foreldrar, ömmur,
afar, frænkur, frændur. Oft á tíðum
er þetta eina skiptið á árinu sem
fólk hittist. Sumar fjölskyldur
halda jafnvel í þá hefð að dansa í
kringum jólatréð og einhver frænd-
inn bregður sér í rautt og útdeilir
gotteríi hrópandi „Hóhóhó“.
Jólagjafir
Sjálfgefið. Öllum finnst gaman að
fá pakka og allir njóta þess að sjá
brosviprur þess sem opnar pakka.
Spenningur í andlitum barnanna
yfir pökkunum er sérstök upplifun.
Allir verða barnslega einlægir í
gleði sinni og spenningi yfir að fá
nýja bók til að fara með inn í jóla-
nóttina.
Jólasveinn
Við erum svo heppin að eiga okkur
þrettán jólasveina sem létu af
hrekkjum og tóku upp gjafmildari
sið hins heilaga Nikulásar. Öfunduð
um allan heim af þessum forrétt-
indum. Þrettán jól á hverju ári!
Bandarísk kona sá mynd af ís-
lensku jólasveinunum, benti á einn
þeirra og sagði: „Þessi er alveg eins
og hundurinn minn.“ Það var
Gáttaþefur.
arndishuldu@gmail.com
Skrautlegt Fólk skreytir mis mikið í kringum sig eins og gengur.
Topp tíu jólahefðir
Jólablað Morgunblaðsins 2010 71