Morgunblaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 86
Jólablað Morgunblaðsins 2010 73
sjampó, hárnæring, mótunarefni og hárbursti
Toni&Guy hárvörur fást í apótekum og stórmörkuðum
GJAFATÖSKUR FYRIR FLOTT HÁR
LYFTING SLÉTT KRULLUR
Jólaskinka er hluti af matseðlimargra um jólin og starfsfólkKjöthallarinnar er meðal þeirrasem framleiða sína eigin skinku
fyrir hver jól.
„Sagan segir að upphaflega hafi
Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur
og eldfjallasérfræðingur, sem var
giftur sænskri konu sem hann vildi
gleðja með ekta sænskri jólaskinku,
talað við föður þeirra Björns og
Sveins, sem nú reka Kjöthöllina, og
Christian Christensen, danska kjöt-
kaupmanninn sem stofnaði Kjöthöll-
ina á stríðsárunum. Christensen bjó
og verslaði á Klömbrum á miðju
Klambratúni þar sem Kjarvalsstaðir
eru nú og útbjó hann sænska jóla-
skinku eftir forskrift Sigurðar,“ upp-
lýsir Sigríður Björnsdóttir hjá Kjöt-
höllinni um forsögu skinkunnar góðu.
Hér fylgir svo með uppskrift af
jólaskinkunni.
Soðin jólaskinka
Skolið skinkuna og setjið hana í
pott og látið puruna snúa upp. Látið
vatnið fljóta yfir skinkuna. Lyftið
skinkunni öðru hverju upp á meðan
suðan er að koma upp, svo hún
brenni ekki við botninn á pottinum.
Látið suðuna vera jafna í pottinum,
passið að sjóða ekki of skarpt. Sjóði
skinkan við mikinn hita getur hún
orðið þurr. Suðutími er ca. 50 mín-
útur fyrir hvert kg af kjöti. Látið
skinkuna síðan kólna í soðinu og tak-
ið lokið af pottinum. Takið steikina úr
pottinum og kælið hana. Breiðið ekki
yfir hana. Takið puruna varlega af
þegar hún er orðin köld og snyrtið
steikina til. Áður en steikin verður
sinnepsgrilluð eða pensluð (glasser-
uð): sjóðið upp soð úr pottinum og
búið til sósu.
Sinnepsgrilluð
jólaskinka
1 stk. köld, soðin eða ofnsteikt,
léttsöltuð skinka.
3 msk. sinnep
1 msk. síróp.
1 msk. kartöflumjöl.
1 stk. eggjarauða.
2-3 msk. brauðrasp.
Takið puruna af og snyrtið skink-
una til. Látið steikina í eldfast mót
eða ofnskúffu. Hrærið sinnepi, sír-
ópi, kartöflumjöli og eggjarauðu
saman og smyrjið því ofan á skink-
una. Stráið svolitlu raspi yfir og grill-
ið síðan skinkuna við 200-225°C þar
til hún verður fallega ljósbrún. Berið
skinkuna fram með brúnuðum kart-
öflum, rauðkáli, brúnkáli eða rósa-
káli.
birta@mbl.is
Jólaskinka
með sögu
Kjöthöllin býður meðal annars upp á jólaskinku
fyrir hver jól og hana má matreiða á ýmsa vegu.
Morgunblaðið/Eggert
Jólamatur Sigríður Björnsdóttir í Kjöthöllinni með jólaskinkuna góðu.
Það er viturlegt að hamra járnið á
meðan það er heitt. Það vita versl-
unarmenn um víða veröld.
Þegar fregnir bárust af því að
Vilhjálmur Bretaprins hygðist
ganga að eiga heitkonu sína, Kate
Middleton, í Westminster Abbey í
apríl á næsta ári ruku versl-
unarmenn í London til og létu
framleiða þetta forláta jólaskraut.
Gyllt kóróna merkt Westminster
er sem sagt nýjasta jólaskrautið á
markaðnum í London.
birta@mbl.is
Konunglegt
jólaskraut