Morgunblaðið - 27.11.2010, Page 106

Morgunblaðið - 27.11.2010, Page 106
Fátt jafnast á við að japla á góðum piparmintustaf í jólafríinu. Fátt jafnast heldur á við skemmtilegan jólagleðskap þar sem skálað er í góðum jólasnafs og kroppurinn skekinn í takt við jólasmellina. En skyldi vera hægt að sameina þetta tvennt? Jú, viti menn, netið bjargar mál- unum. Þar má finna þetta bráðsnið- uga snafsglas til sölu sem, eins og myndirnar sýnir glögglega, er gert úr einum samfelldum pipar- mintubræðingi. Næsta víst er að þetta bragðgóða glas getur bætt nýrri vídd við drykkjumenninguna um jól og ára- mót, og kannski að mintan bæti nýri bragðvídd í marga hefð- bundna og óhefðbundna partí- drykki. Svo þegar partíð er búið má auð- vitað japla á glasinu, og knúsa mannskapinn með piparmintuilm frá vitunum. Finna má þessi glös til sölu víða, m.a. á Incrediblethings.com (leita að „Candy Cane Shot Glass“) og kostar fjóra bandaríkjadali stykkið. ai@mbl.is Piparmintuglens í jólapartíið Jólaskraut sem stendur fyrir kær-leika og er selt til styrktar fötl-uðum börnum hlýtur að flokkastundir góð kaup. Undanfarin átta ár hefur ný Kær- leikskúla litið dagsins ljós ár hvert. Nýr listamaður er fenginn ár hvert til að hanna kúluna eftir sínu höfði og í ár er það listakonan Katrín Sigurðar- dóttir sem hannar Kærleikskúluna. Hún opnaði meðal annars einkasýn- ingu á verkum sínum í Metropolitan- safninu í New York á dögunum. Það er Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sem stendur að útgáfu kúl- unnar en allur ágóði af sölu hennar rennur til starfsemi félagsins í Reykjadal. Tilgangurinn er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna. Kúlan kemur í takmörkuðu upplagi ár hvert en hverri kúlu er pakkað inn af mikilli natni á vinnustofunni Ási, sem er verndaður vinnustaður. Jólakötturinn í kvæði Auk Kærleikskúlunnar kemur frá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra ár hvert jólaórói í jólasveinaseríu sem á endanum kemur til með að mynda alla liðsmenn jólasveinafjölskyld- unnar. Í ár er það Jólakötturinn sem er yrkisefni höfundarins Þórarins Eld- járn og efniviður hönnuðanna Snæ- fríðar og Hildigunnar. Þær síðast- nefndu hanna óróann sjálfan en Þórarinn yrkir um köttinn og fylgir kveðskapurinn með óróanum. Ágóðinn rennur, líkt og af Kærleikskúlunni, til góðra verka en það er æfingastöð SLF sem nýtur góðs af sölunni. Á æfingastöðinni fer fram endurhæfing og þjálfun hátt í þúsund íslenskra barna ár hvert. Sala Kærleikskúlunnar og jólaóró- ans hefst laugardaginn 4. desember og stendur til 18. desember. birta@mbl.is Jólakúlur Kærleikskúlurnar frá upphafi. Þær eru eins misjafnar og þær eru margar enda hönnuðirnir ólíkir. Kisi Jólakötturinn er heldur ófrýnilegur. Fjarlægð Þegar ég horfði inn í kúluna í fyrstu, þá sá ég fyrir mér þekkt minni; lítinn heim innan í kúl- unni, og endimörk hans, glerið sjálft eins og sjóndeildarhring þess sem horfir innan úr miðju hans. Kúlan er alheimur í sjálfum sér, en í hönd manns er þessi litla veröld bara ögn í stærri alheimi, lítill viðkvæmur hlutur í hönd einhvers sem starir inn í hann. Fjöllin sem prentuð eru á kúluna eru dregin upp af ljósmyndum sem ég tók eða safnaði af íslenskum fjöllum á árinu 2010. Katrín Sigurðardóttir Kærleikur í kúlu Kærleikskúlan og jólaóróinn eru framleidd til að styrkja stöðu fatlaðra barna hér á landi. Jólablað Morgunblaðsins 2010 93 Austfirsk vöruhönnun, gæðahandverk & myndlist Hreindýraleður, horn, bein og Hallormsstaðaviður Gjafakörfur með matarminjum frá Austfirskum Krásum Gjafabréf frá Húsi Handanna Mikið úrval af fallegri íslenskri gjafavöru H ér að sp re nt Miðvangi 1-3 - 700 Egilsstaðir Sími 471 2433 Netfang: Info@hushandanna.is Facebook: Hús Handanna art + design Opið 10:00-18:00 virka daga og 12:00 til 16:00 laugardaga Jólagjöfin í ár kemur að austan! 700 EGILSSTAÐIR Gleðileg jól Grímsbæ / Bústaðarvegi Vandaðar og fallegar vörur fyrir konur á öllum aldri. St. 36 – 56 Sími 588 8050 Erum á Facebook. Vertu vinur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.