Ný saga - 01.01.1990, Side 82

Ný saga - 01.01.1990, Side 82
GÍSLI GUNNARSSON Uppboö á þurfaling- um er dæmi um hefö sem haföi skapast án þess aö sérstök laga- ákvæöi væru um þau. En heföin var þaö sterk aö lagasetningu þurfti til aö brjóta hana. framhaldi af því var sveitfesti innleidd: Menn öðluðust sveitfesti eftir að hafa búið í sveitinni í 5 ár; ef þeir urðu ó- magar fyrir þann tíma skyldu menn fluttir á þá sveit, þar sem þeir höfðu sveitfesti. í mjög mörgum tilfellum var hér um fæðingarsveit viðkomandi að ræða. Því var það hrepp- stjórnum (og bæjarstjórnum) mikiö áhugamál að sem fæstir öðluðust sveitfesti með því að fæðast í hreppnum (eða bæn- um) og þess vegna ömuðust stjórnirnar mest við ungum, fá- tækum og „barnmiklum“ fjöi- skyldum.24 1848 var sveitfestin lengd í 10 ár. Árið 1887 voru samþykkt og staðfest lög um endurgreiðslu sveitastyrkja. Lögin settu við- takanda sveitastyrks í skuldaá- nauð hjá sveitinni þangað til styrkurinn hafði verið endur- greiddur. Þau voru síðboriö samkomulag milli Alþingis og stjórnarinnar í Kaupmanna- höfn um hert ákvæði í fram- færslumálum fátækra. Alþingi hafði þá lengi krafist strangari skilmála fyrir þá fátæku. Sveitastyrk skyldi skoða sem hverja aðra skuld, sem beri að endurgreiða. Leyfilegt var að svipta þurfaling fjárforræði og yfirvöld máttu þvinga hann til hlýðni við sig og ákveða vinnu hans.25 Árið 1905 voru sett ný lög um fátækraframfærslu, sem tóku gildi 1. janúar 1907. í meginatriðum voru lög þessi frekari útfærsla á lögunum frá 1887. Ákvæðin um fram- færsluskyldu hreppsins og endurgreiðsluskyldu þurfa- lingsins voru j;erð skýrari og ótviræðari. Óhlýðna þurfa- linga mátti setja í fangelsi en „hlýðnum“ þurfalingum var á ýmsan hátt veitt aukin vernd og ber þar hæst ákvæðið um að ekki mátti halda uppboð á þurfalingum á manntalsþing- um* Uppboð á þurfalingum er dæmi um hefð sem hafði skapast án þess að sérstök Fátækrahverfi í Rio de Janeiro í Brasilíufiar sem íbúarnir búa í ömurlegum vistarverum. Eru þessi hús e.t.v. sambærileg hýbýium fátækra Islendinga fyrrátimum? lagaákvæði væru um þau. En hefðin var það sterk að lagasetningu þurfti til að brjóta hana. Þar sem prestar voru æðstu umsjónarmenn fátæktar- hjálpar í sveitunum, einkum þegar i hlut áttu börn og ung- menni, gátu þeir stöðvað flutning á þurfamanni af heim- ili vegna undirboðs annars heimilis. Dæmi eru til um slík afskipti. Séra Árni Þórarinsson í Miklaholti sagði í ævisögu sinni að hann hefði úrskurðað 12 ára stúlkubarn kyrrt á bæ þótt annar bóndi hefði boðist til að taka við stúlkunni fyrir lægra verð og hreppsfundur hefði samþykkt flutning henn- ar. Þessi atburður hefur senni- lega gerst um aldamótin 1900, enda segir séra Árni: „Fáum árum síðar var uppboð á ó- mögum bannað á alþingi. Þau lög hefðu að visu verið óþörf, ef prestarnir hefðu verið þeir menn að gæta skyldu sinnar“. „Sams konar uppboð á mann- legum verum voru haldin í of- anverðri Árnessýslu i ungdæmi mínu, og fóru litlar sögur af, að þau röskuðu sálarró prest- anna þar i sveitum".27 (Árni fæddist árið 1864.) En prestastéttin var fram á 20. öld rótgróinn hluti íslenska bændasamfélgsins og hafði tekjur sínar minnst af prest- verkum en mest af landskuld og leigum kirkjujarða og af sinni eigin heimajörð. Venju- lega fóru því sjónarmið presta saman við sjónarmið efnaðra bænda.28 En hins vegar voru lögin frá 1824 þeim þyrnir í auga, þar sem það gat orðið presti þungt í skauti að fá á sig dæmda ómaga vegna þess að hann hafði ranglega gift ör- eiga. Prestar áttu því frum- kvæði að því að lög þessi voru afnumin árið 1917.® 1923 var sveitfestitíminn styttur úr 10 árum í 4 ár og 1932 var hann styttur i 2 ár.30 Fjölmörg frumvörp voru lögð fram á Alþingi 1917-1934 sem fjölluðu um bætta stöðu þurfalinga en ekkert af þeim 80
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.