Ný saga - 01.01.2001, Side 21
Við aldamót
Mynd 3.
Starfsmenn vélsmiðju
J.H. Jessens 1908.
Talið f.v.: Óskar Sigur-
geirsson, Þórður Þórð-
arson, A. Nyberg,
Frithiof Nielsen, J.H.
Jessen, Gfsli Jónsson,
Ingvar Gunnlaugsson,
Þorsteinn Thorsteins-
son, Hinrik Hjaltason,
Jón Þorbergsson,
Guðbrandur Jakobs-
son, og Alfred Jessen.
þau átök, sem þegar voru orðin milli sveil-
anna og ört vaxandi þéttbýlis í landinu. Þar
segir:
Djúpmenn hefðu sér að skaðlausu vel get-
að farið ögn hægar af stað í þessum mótor-
bátaútveg, það er enn með öllu óséð til
hvers hagnaðar hann verður fyrir útvegs-
mennina, en landbúnaðinum verður hann
óþarfur, á því er enginn vafi.
Það kann að vekja nokkra athygli, að þessi
þróun skyldi verða jafn hröð og raun bar vitni
og byrjunarerfiðleikarnir skyldu ekki reynast
meiri. í landinu var á þessum tíma lítil sem
engin þekking í sambandi við meðferð og við-
hald véla. Sú takmarkaða þekking, sem þá
var hér til staðar, var bundin meðferð og við-
haldi gufuvéla og tengdist að miklu leyti hval-
veiðistöðvunum í landinu. Þar fengu okkar
fyrstu vélstjórar sína skólun. Þegar vélin, sem
sett var í Stanley kom hingað til landsins,
sendi verksmiðjan ungan mann til landsins til
þess að setja vélina niður og kenna Arna
meðferð hennar og hirðingu. Þessi maður var
Jens Hansen Jessen, fæddur á Fan0 í Dan-
mörku. Hann átti síðar eftir að hafa mikil
áhrif á sínu sviði, sem lærifaðir fyrstu íslenzku
vélvirkjanna. Það kom ekki einasta í hans
hlut að setja vélina niður og kenna meðferð
hennar. Hann gerðist einnig brautryðjandi á
sviði kennslu í vélfræði hér á landi. J.H. Jessen
kom fljótlega aftur til íslands, kvæntist ís-
lenzkri konu, og setti á stofn fyrsta vélaverk-
stæði landsins í samvinnu við útgerðar- og
skipstjórnarmenn á ísafirði, Vélsmiðju J.H.
Jessen. Með þeirri starfsemi var lagður góður
grunnur að verkþekkingu á þessu sviði. Hjá
vélsmiðju J.H. Jessen lærðu margir af fyrstu
vélfræðingum landsins iðn sína. Sumir þeirra
héldu áfram námi. Gísli Jónsson, síðar alþing-
ismaður, og Hallgrímur Jónsson, síðar yfirvél-
stjóri hjá Eimskip, sem báðir voru nemendur
Jessens, luku prófi frá vélfræðideild Stýri-
mannaskólans í Reykjavík 1914, og áttu
drýgstan þátt í því, að Vélskóli Islands var
Mynd 4.
Þrír af námssveinum
J.H. Jessens: Gunn-
laugurj. Fossberg,
Hallgrímur Jónsson og
Þorsteinn Thorsteins-
son. Gunnlaugur
stofnaði vélaverslun
með Vald. Poulsen
1927 og síðar Véla-
verslun G.J. Fossberg.
Hailgrímur var lengi
vélstjórí hjá Eimskip,
en Þorsteinn var
vélstjórí um árabil,
en vann seinustu árin
hjá Vétsmiðjunni Hamrí
í Reykjavik.
19