Ný saga - 01.01.2001, Page 43

Ný saga - 01.01.2001, Page 43
Halldór Grönvold Hvíldar er þörf Vökulög í 80 ár er G BÝST VIÐ, að mörgum finnist það ótrú- legt, að einu sinni vakti ég á íslenzkum tog- ara í níutíu og sex klukkustundir í einni lotu. Þelta var á gamla Skalla. Á enskunr togara vakti ég lengst í sextíu klukkustundir, svo kom sex tíma hvíld og svo þrjálíu og sex klukkustunda vakt. Eftir slíkar vökur voru menn eins og vofur og vinnubrögðin einskis virði. Þá var stundum slóg- inu hent í kösina, en fisknum fyrir borð. Stundum sáust menn vera að snúa sundur smáfisk og þá var þá að dreyma, að þeir væru að vinda vetling- ana sína. Menn hjuggu með hnífum í hendur sér og slösuðu sig. Þetta var vitfirring. Togaravöku- lögin læknuðu hana. Jón Bach, fyrsti formaður Hásetafélags Reykjavíkur' Nýtt samfélag í mótun Fyrstu áratugir 20. aldarinnar voru miklir um- brotatímar hér á landi. A skömmum tíma breyttist íslenskt samfélag úr landbúnaðar- þjóðfélagi sem einkenndist öðru fremur af strjálbýli og sjálfsj^urftarbúskap í þjóðfélag sem bar öll helstu einkenni iðnaðarsamfélaga þess tíma með þéttbýlismyndun og aukinni samfélagslegri verkaskiptingu. Með nýjum at- vinnuháttum uxu fram stéttir verkalýðs og at- vinnurekenda sem hófu að skipuleggja sig og takast á um ólíka hagsmuni á vinnumarkaði og í samfélaginu öllu. Verkafólk stofnaði verkalýðsfélög og heildarsamtök og atvinnu- rekendur skipulögðu sig í samtök til að gæta sinna stéttarhagsmuna. Á pólitíska vettvang- inum leystu stéttastjórnmálin sjálfstæðis- stjórnmálin af hólmi. Þær pólitísku fylkingar sem fyrir voru riðluðust og nýir stjórnmála- flokkar voru stofnaðir. Vaxtabroddurinn í íslensku efnahagslífi og atvinnuþróun við upphaf 20. aldarinnar var í sjávarútvegi. Sjósókn, vinnsla sjávarafla og þjónusta við útgerð og fiskvinnslu voru helstu forsendur framþróunar þjóðfélagsins. Þar var hreyfiaflið í uppbyggingu atvinnulífsins og þar var að finna þær forsendur sem mótuðu öðru fremur félagsgerð íslensks samfélags langt fram eftir öldinni. Um aldamótin 1900 var sjósókn stunduð á opnum róðrarbátum og þilskipum. En sókn og vöxtur íslensks sjávarútvegs fólst í þeirri byltingu sem varð með tilkomu mótorbát- anna og enn frekar botnvörpuskipanna (tog- ara) með sínum afkastamiklu veiðarfærum og sem hægt var að halda að veiðum í misjöfnum veðrum allt árið. Útgerð botnvörpuskipa frá Islandi hófst um aldamótin 1900. Árið 1905 kom til lands- ins fyrsti togarinn sem var í eigu Islendinga og upp frá því fór togaraútgerð ört vaxandi. Árið 1916 voru yfir 20 botnvörpuskip í eigu íslend- inga, en árið eftir voru 10 þeirra seld úr landi til bandamanna í fyrri heimstyrjöldinni, Eng- lendinga og Frakka, auk þess sem skipskaðar tóku sinn toll.2 Samdrátturinn í togaraútgerð íslendinga stóð þó stutt. Strax árið 1919 hófst ný sókn og á næstu tveim árum nieira en tvö- faldaðist fjöldi botnvörpuskipa, auk þess sem skipin stækkuðu og urðu afkastameiri.3 Af- koma stöðugt stærri hóps verkafólks réðst með beinum og óbeinum hætti af útgerð botnvörpu- skipanna og sama gilti um samfélagið allt. Vökur og þrældómur Með aukinni þýðingu botnvörpuskipa á öðr- um áratug aldarinnar fór einnig að bera á gagnrýni á vinnuskilyrði hásetanna, erfiða vinnu en þó einkum miklar vökur, sem oft fylgdu starfinu. Þegar verkalýðsfélög og síðar jafnaðarmenn hófu blaðaútgáfu fundu þessar frásagnir sér farveg á síðum þeirra. Eftirfar- andi lýsing gefur raunsanna mynd af starfsskil- Afkoma stöðugt stærri hóps verkafólks réðst með beinum og óbeinum hætti af útgerð botn- vörpuskipanna og sama gilti um samfélagið allt 41
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.