Ný saga - 01.01.2001, Qupperneq 47

Ný saga - 01.01.2001, Qupperneq 47
Hvíldar er þörf vinnu. Hitt mun og sönnu nær, að þessar miklu vökur munu ekki tíðkast nema í ein- staka tilfellum, þegar um það er að gera, að ná í sem mestan afla á sem stystum tíma, sem oft getur verið alveg sjálfsagt, eins og tíðarfari er háttað lijer á íslandi, og þá hafa bæði hásetar og útgerðarmenn gott af hin- urn langa vinnutíma.18 Ýmsir aðrir þingmenn tóku í sama streng. Auk flutningsmanns frumvarpsins töluðu Bjarni Jónsson frá Vogi, þingmaður Dala- manna, og Jón Magnússon, forsætisráðherra og þingmaður Reykvíkinga, fyrir þeim sjón- armiðum sem frumvarpið byggði á. Bjarni sagði í upphafi síns máls: „Jeg verð að segja, að mjer finst vægt farið í sakirnar með þess- um lögum, þar sem tiltekið er um 8 kl.tíma hvíld.“19 Jón Magnússon sagðist aðeins vilja „láta í ljós undrun mína yfir því, að svo hófleg tilmæli, sem hjer um ræða, skuli hafa getað sætt mótmælum.“20 Við aðra umræðu um málið kynnti Sveinn Olafsson, þingmaður Suður-Múlasýslu, til- lögu minnihluta sjávarútvegsnefndar urn breyt- ingu á frumvarpinu. Hann rökstuddi þar að þörf væri á löggjöf sem tryggði hásetum lág- markshvíld, en lagði til að lögboðin lágmarks- hvíld yrði ákveðin 6 stundir í stað 8. Þá lagði hann til að gildistökuákvæðið félli brott, enda lægju engin ósköp á að lögin öðluðust gildi. Ljóst er að með tillögu sinni var Sveinn að reyna að miðla málum og stuðla að samþykkt frumvarpsins. Tillagan var felld og sameinuð- ust helstu stuðningsmenn og andstæðingar frumvarpsins í andstöðu við hana. Um efni hennar sagði Jörundur Brynjólfsson meðal annars að niðurfærsla á hvíldartímanum væri óþörf: „En þó er þetta má ske betra en að ekkert væri að gert.“21 Hvað sem réði stöðu- mati Jörundar lagðist hann gegn tillögunni, þótt honum mætti vera ljóst að frumvarpið næði ekki óbreytt fram að ganga. í annarri umræðu um málið í neðri deild spannst nokkur umræða um það hvort með frumvarpinu væri gerð krafa um afdráttar- lausa 8 stunda hvíld á sólarhring, eða hvort víkja mætti frá 8 klst. lágmarkshvíldinni. Kveikja þessarar umræðu voru ummæli sem flutningsmaður lét falla við umræðuna og að það bannaði ekki samninga milli háseta og Mynd 2. Sigurður Stefáns- son frá Vigur var helsti andstæðing- ur frumvarpsins um hvíldartima togarasjómanna í umræðunum á þingi árið 1919. Mynd 3. Jóni Magnússyni forsætisráðherra þótti undarlegt að svo hóflegar kröfur sem fram komu i frumvarpinu mættu andstöðu. skipstjóra.22 í ljósi andstöðu hans við breytingatillögu minni- hlutans verður að ætla að samn- ingar yrðu að vera innan þess ramma sem frumvarpið kvæði á um, enda frumvarpið sjálft for- takslaust að þessu leyti. Löggjöf eða samningar um hvfldartíma Af umræðunum um frumvarpið rná sjá að andstæðingar þess héldu mjög á lofti þeim rökum að ákvæði um vinnutíma og hvíldartíma væru samningsat- riði á milli samtaka háseta og útgerðarmanna. Hefðu hásetar áhuga á að setja reglur unr lágmarkshvíld ættu þeir að taka slíkt upp í kjarasamningum. Meðan ekki hefði reynt á samninga væri ástæðulaust og óráðlegt að Alþingi væri að fjalla um málið ef það væri þá nokkurn tíma við hæfi. Sigurður Stefánsson sagði: „Það sem hér urn ræðir, er ekkert annað en samningamál milli háseta og útgerðarmanna, og það gefur að skilja, ef ekki gengur saman með þeim, að þá eru það út- gerðarmennirnir sem neyðast til að láta und- an, svo að atvinnuvegurinn stöðvist ekki.“23 Og Matthías Ólafsson, þingmaður Vestur-ísa- fjarðarsýslu, áréttaði þetta sjónarmið í um- ræðunum: „Mjer finst að það sem hjer ræðir um, sje samningsatriði".24 í rökstuðningi framsögumanns með frávísunartillögu meiri- hluta sjávarútvegsnefndar, sem fékk frum- varpið til meðferðar á milli umræðna var þessu sjónarmiði sérstaklega haldið á lofti. Af hálfu sjómanna lá alllaf fyrir að látið yrði reyna á málið á Alþingi. Við stofnun Há- setafélagsins einskorðuðust kröfurnar á hendur atvinnurekendum við launakjör. Jafn- framt er ljóst að í hvatningu Hásetafélagsins um „að kjósa alþýðumenn í bæjarstjórn og til þingsetu, en ekki höfðingja, svokallaða“ fólst sú hugsun að á Alþing veldust fulltrúar verka- manna sem gættu hagsmuna þeirra í löggjaf- arstarfinu. Þannig bæri að líta á frumvarpið urn 8 klst. lágmarkshvíldina sem tilraun til að lögbinda lágmarksréttindi, en ekki að slíkt ætti að koma í veg fyrir samninga félaga sjó- 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Ný saga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.