Teningur - 01.10.1991, Side 5
ÞORUNN VALDIMARSDOTTIR
Allir cru orðnir leiðir á því að heyra
konur væla. Fólk hefur trúað því í
mörg þúsund ár að karlar séu hæfari
til hermennsku stjórnunaraðgerða,
það er komið inn í okkar genetíska
minni eins og í vöðvana. Það verður
að sætta sig við það sem er djúpt eins
og hafið með rætur upp í öll fjöll.
Þrjár bækur mínar eru ævisögur
karlmanna, ég hef unnið eins og tungl
sem tekur við ljósinu frá þeirra egói
og þeirra ævi og beini því í bók. Ég er
eins og konur og þjónar frá aldaöðli
að þjóna höfðingjum, þjóna karl-
mönnum með skrifum mínum. Allir
eru að verða svo leiðir á vangaveltum
um klofning skepnunnar í tvö kyn að
það fer að verða gaman að tala um
kynin. Hvort er betri appelsína eða
epli? Skrifa konur eins og epli og
karlar eins og appelsína? Konur sem
eru ekki síóléttar og ekki með brjóst
eins og Dolly Parton, geta þrátt fyrir
sáran skort á x-hormóni (karlar hafa
bæði x og y, ef ég man rétt) lukkulcga
oft gleymt því að þær séu dregnar í
dilk, dregnar í kvendilk. Þegar rétt
stendur á tungli er maður bara maður
fyrir sinn hatt.
Af hverju hef ég bara skrifað um
karla? Af því þeir hafa fengist við
hluti sem heilla hausinn á mér mcira
en bleiur og börn, ég fíla börn með
hjartanu og bleyjur nteð höndunum.
Ef maður hefur áhuga á hugmynda-
sögu og bókmenntasögu lendir maður
í heimi karlntanna. Ævisögur eru
bara skrifaðar um menn sem gegna
lykilhlutverki, og þannig hef ég lent í
félagi með karlmönnum. Égerennþá
of frumkvæðislaus til að skrifa út frá
mínu egói. Kannski er ég of mikill
kvenmaður í mér til að keyra á mínu
eigin fruntkvæði.
Ég fæ oft kvcnleg roluköst. Stund-
um ímynda ég mér að ég sé á valdi
þúsund ára gamallar eðlismótunar. í
mér búi genetískt minni um kúgun,
fruntkvæðisleysi og þægð. Dýr hafa
3