Birtingur - 01.01.1957, Side 94

Birtingur - 01.01.1957, Side 94
hann algerlega, sbr. hugmyndina um guð sem algeran skapara, eða komið á hann ákveðnu skipulagi, sett honum lög (sbr. þá hugmynd, að hlutur hlýði ákveðnum lögmálum). Hugtakið æðsta vera hefur jafnan legið bakvið heimsfræðibollaleggingar vestrænna hugsuða, og eru til frægar röksemdafærslur, sem sanna eiga tilvist hennar. Varð Immanuel Kant fyrstur til að benda á, hvers vegna ekki er mögulegt að sanna tilvist slíkrar veru. Yrði of langt mál að fara út í rök Kants hér. En víst er, að verundur dr. Helga er í sama báti og guð hinna gömlu heimspekinga hvað það snertir. Ekki get ég neitað, að æskilegt hefði verið að fá lengri og nákvæmari greinargerð fyrir heimshöfundinum og hlutverki hans í þróunarsögu heimsins og lífsins. En ég vil leggja áherzlu á, að við erum hér komin út á yztu þröm mannlegrar hugsunar og höfum engan reynslugrundvöll að byggja á, enda hafa heimspekingar deilt um nauðsyn tilgátunnar um æðstu veru í hvaða mynd, sem hún hefur komið fram. En nú má spyrja: Hvaða sannanir eru til um það, sem dr. Helgi kallar lífgeislan bioradiation og magnan eða líf sstarfsíleiðslu (bioinduktion) ? Hvaða ástæða er til að gera ráð fyrir, að allar lífverur (reyndar hver einasta efnisögn) leitast við að framleiða sjálfar sig í öðrum? Hvaða sannamir eru fyrir beinu vitundarsambandi milli manna hér á jörðu og hverjar fyrir vitundarsambandi milli hnatta? Þetta eru grundvallarspurningar, sem ég get ekki séð, að Nýall eigi fullgild svör við. Fyrst má geta þess, að höfundur Nýals er sannfærður um, að eðli lífsins sé geislan (radiation), sem streymir út frá hinni lifandi veru og hafi tilhneigingu til að framleiðast (inducerast) í annarri eða öðrum lífverum. Nú er að sjálfögðu sitt hvað að vera sannfærður um þetta og að geta fært rök fyrir því. Hvað færir dr. Helgi því til sönnunar? Að íleiðing lífsorkunnar sé staðreynd telur hann sannað með því, sem gerist í dáleiðslu, fjarhrifum, miðilsástandi og svefni. Einnig skýrir hann hinar sálrænu truflanir „hysteri" og „paranoia" með þessu lögmáli- Ég vil strax taka fram, hvers vegna ég álít frá heimspekilegu sjónarmiði vafasamt að leggja of mikið uppúr þessum tegundum fyrirbæra. Dáleiðsla, f jarhrif og miðilsástand eru ekki nógu almenn fyrirbæri til þess að heimilt sé að draga af þeim jafn altækar og algildar ályktanir um eðli lífs og meðvitundar og dr. Helgi gerir. Jafnvel þótt hér sé um einskonar beint vitundarsamband að ræða, er engan veginn augljóst hvers eðlis það er. Þeir sem lagt hafa stund á að rannsaka þessi fyrirbæri eru yfirleitt sammála um að viðurkenna þau sem staðreynd, en hafa enn sem komið er ekki getað fundið skýringu, sem fullnægir viðurkenndum vísindalegum mælikvörðum. Skýringartilgáta dr. Helga er að vísu athyglisverð, en mér virðist miklum erfiðleikum bundið að sannprófa, að þetta beina lífsamband — þessi lífsstarfsíleiðing — eigi sér stað, jafnvel þótt fyrirbærin gefi tilefni til að álíta tilgátuna mögulega skýringu. Mér finnst höfundur Nýals of djarfur, er hann byggir alla heimspeki sína á lögmáli, sem hefur ekki öruggari staðreyndagrundvöll en þetta. Enn vita líffræðingar og lífeðlisfræðingar harla lítið um eðli lífsins. Hvers vegna lífvera deyr, 80
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.