Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1987, Page 117
Flugur 115
það heldur ekki tilviljun, að leifar þess kæmu fram í vestfirsku orða-
safhi.
Frá 16. og allt fram á 20. öld er, að mati prófessors Halldórs Hall-
dórssonar, sem manna mest hefur rannsakað tökuorð í íslensku, ekki
um að ræða frekari áhrif úr ensku, nema ef til vill einstaka orð sem
fyrst hafa samlagast dönsku.
Þegar litið er á ensk áhrif á íslensku á þessari öld kemur greinilega í
ljós að um er að ræða mismunandi tímabil eftir eðli og umfangi þeirra
þátta sem málin tvö tengja. Hið fyrsta þessara tímabila tengist iðnvæð-
ingu íslendinga sem verður með togarakaupum og innflutningi ýmissa
tækninýjunga. Það varir frá aldamótum og allt til síðari heimsstyrj-
aldar. Þá verða svo greinileg kaflaskil með komu bresks og síðar banda-
rísks herliðs. Segja má að þetta annað tímabil nái framundir 1970, en
þá hafði tvennt gerst sem síðan hefúr valdið grundvallarbreytingum á
eðli enskrar tungu sem áhrifavalds á önnur tungumál. í fyrsta lagi er þá
enskan orðin að slíku alheimsmáli að hún er ekki lengur sambærileg við
önnur útbreidd tungumál, svo sem frönsku og spænsku. Hér olli mestu
að í fyrrverandi nýlendum Breta í Afríku og Asíu voru að jafhaði töluð
mörg og oft óskyld tungumál, og tókst heimamönnum víðast hvar ekki
að sættast á neitt eitt þeirra sem ríkismál, og því varð enskan ofan á. í
þessum fyrrverandi nýlendum er talið að milli fjögur og fimm hundruð
milljónir manna noti ensku sem sitt annað tungumál og að í heild hafi
nú fjórðungur jarðarbúa vald á enskri tungu. í öðru lagi hafði þá einnig
orðið slík bylting með tilkomu fjarskipta um gervihnetti og þess sjón-
varpsefnis sem um þá flæddi — mestmegnis á amerískri ensku — að
segja mátti að öll landamæri væm úr sögunni hvað viðkæmi áhrifum
ensku á önnur tungumál.
Frakkar kalla þessi menningaráhrif, ef menningu skyldi kalla, „kóka-
kólóníalisma“. Virðist hann vera einhver sá magnaðasti draugur sem
upp hefur verið vakinn, og höfum við íslendingar orðið hans varir líkt
og aðrir. Þó þótti mér taka út yfir allan þjófabálk þegar ég rakst á það
í frétt fyrir nokkru að afrískur hirðingjaættflokkur sem kallast Tuareg
hefði bmgðið út af aldagamalli hefð og frestað árlegri för sinni til betri
haga um heila 10 daga til að missa ekki af síðustu þáttunum af Dallas!