Ritmennt - 01.01.2000, Qupperneq 33
RITMENNT
EGGERT Ó. GUNNARSSON
son.124 Gekk hann þá út með mér. Svo fór ég þaðan og til
Möllers skrifara, þá var hann ekki heima svo að ég fór aftur
þaðan. Fór ég að vita um skipið og svo heim að borða. Var ég
svo hjá amtm(anni) lengi þangað til hann fór út og geklc ég þá
út líka á Vesturbrú og baðaði mig og svo heim og fór að sofa.
12. Fór amtmaður heim í bæ en ég fór þá hann var farinn
út á kalkbrenniríið125 og baðaði mig og fékk um leið loforð
um sundkennslu. Svo fór ég heim í bæinn og fann Möller og
var hjá honum eina kl(ukkustund), kom inn til photograffans
og sá myndina mína, svo fór ég aftur heim og borðaði. Svo sat
ég hjá amtm(anni) upp á lofti æði lengi þangað til að hann
kom út aftur, fór ég þá með honum til bæjarins og upp á Reg-
ens og kom til stúdenta þar, en tafði þar lítið því svo fór ég
þaðan upp á Nýhöfn að vita um skipið hvert að það væri
komið og var það eklci komið. Fékk ég svo lánað hjá manni
3Vi rd. og borgaði þá Möller, svo fór ég heim að sofa.
13. Fór ég með amtm(anni) heim í bæ og sá skírnarfont-
inn,126svo fórum við þaðan, hann til Casse127 en ég til Hastr-
upp128 og var hann þá ekki heima, svo beið ég þangað til að
hún var 1 kl(uklcan), þá fann ég Kristensen129 og fékk hjá hon-
um dropa sem ég átti að taka inn þrisvar á dag. Svo fór ég það-
an aftur til Hastrupp og talaði við hann um lasleika bræðra
m(inna), og leist honum ekkert illa á hann [þ.e. lasleikann],
hélt hann að það myndi ekki vera annað að Tryggva en að það
hafi slegið einhvorntíma inn á hann lculda í köldu veðri og
svo hafi hann reynt á sig líka. Mér ráðlagði hann að taka pill-
ur Jóns130 4 s(innum) á dag og jafnframt dropa Kristensens, en
á morgnana að taka sinnep, fara snemma á fætur, snemma að
124 Líklega Þorvaldur Bjarnarson f. 19. júní 1840, d. 7. maí 1906. Prestur á
Reynivöllum í Kjós og síðar á Melstað í Miðfirði. Var við nám í Kaupmanna-
höfn 1859-65.
125 Kalkbrennsla þar sem kalk er unnið úr kalksteini með því að hita hann í
900-1000 gráður.
126 Trúlega er þarna átt við skírnarfontinn í Frúarkirkju sem Bertel Thorvaldsen
gerði um 1828.
127 Líklega Andreas L. Casse þingmaður. Dómsmálaráðherra 1860-64.
128 í félagatali hins íslenska bókmenntafélags 1862 er skráður Joh. Georg Jul.
Hastrupp, cand. med. &. chir. í Kaupmannahöfn.
129 Prófessor Mads Christensen f. 16. ágúst 1805, d. 27. apríl 1864. Læknir í
Kaupmannahöfn.
130 Jón Finsen var skipaður læknir í Austurhéraði Norðuramtsins 31. maí 1856.
29