Ritmennt - 01.01.2000, Page 77
RITMENNT
PRENTNEMARNIR
prestur í nóvember 1887 (Vitae). Minning-
arnar eru í stærstum dráttum samhljóða.
Hinar fyrri eru þó nokkuð ítarlegri um
prentsmiðjuárin, og er í þeirn að finna lýs-
ingar hans á aðstæðum og verkefnum prent-
nemans sem eru uppistaðan í því æviágripi
sem hér er birt.
Fátt er hins vegar heimilda um ævi
Magnúsar. Til marks um það má hafa það
sem segir um Magnús í fjölrituðu Niðjatali
Gríms Steinólfssonar, afa þeirra, þar sem
Magnús er sagður hafa dáið „barn að
aldri''.12 Af hréfum sem hann ritaði móður
sinni um og eftir að hann hóf prentnám má
þó ráða ýmislegt, hann var opinskár og
skrifaði oft um það sem honum stóð hjarta
næst, prentsmiðjustörfin.
Prentneminn Jón Steingrímsson
Jón Jónsson landshöfðingjaritari var settur
lögreglustjóri í fjárldáðamálinu 1875. Vetur-
inn næsta var hann á ferð um Borgarfjörð og
gisti þá einhverju sinni í Reykholti hjá Þórði
Þórðarsyni Jónassen prófasti í Reykholti. Er
Jón fór þaðan ætlaði hann að borga nætur-
greiðann með 4 kr. Þórður tók sjaldan sem
aldrei borgun fyrir næturgreiða og aldrei af
innlendum mönnum og því ekki heldur að
þessu sinni. Jón ritari bað þá Þórð að lofa sér
að sjá kirkjuna, og þegar þeir lcomu inn að
altarinu og voru þar að tala saman sagði Jón
ritari allt í einu: „Gefðu þessar fjórar lcrónur
því harni sem þú ferrnir í vor er best stend-
ur sig og er að þínu áliti þeirra malclegast."
Fyrir þessu happi varð Jón Steingrímsson
sem fermdur var vorið 1876.
Jón fæddist að Grímsstöðum í Reykholts-
dal hinn 18. júní árið 1862. Voru foreldrar
Þjóðminjasafn íslands.
Jón Steingrímsson prentnemi og prestur (1862-91).
hans Steingrímur Grímsson bóndi, bróðir
Magnúsar Grímssonar prests og þjóðsagna-
safnara, og lcona hans Guðrún Jónsdóttir, og
var Jón elstur 13 barna þeirra. Frá Gríms-
stöðum fluttu þau sig að Kópareylcjum í
Reykholtsdal árið 1868.
Jón lærði dálítið að slcrifa tilsagnarlaust
eftir forskriftum innan fermingaraldurs.
Hann naut ágætrar kristindómsfræðslu
bæði í heimahúsum og við fermingarundir-
búning hjá Þórði prófasti í Reykholti sem
árið 1873 hafði fengið Reykholtsprestakall.
Veturinn 1876-77 var Jón urn tírna hjá séra
Þórði er hafði boðist til að taka hann og
segja honurn til í skrift og reikningi.
12 Stefán Bjarnason (1955), bls. 43.
73