Ritmennt - 01.01.2000, Side 82
STEINGRÍMUR JÓNSSON
RITMENNT
fyrir tímann. Sagðist Sigmundur taka 10
aura um tímann fyrir þá bræður en vildi
gjarnan taka hann fyrir eitthvað minna.
Magnús var jafnframt í söngtímum tvisvar í
viku hjá fónasi Helgasyni og þótti það
skemmtilegt.17
Hinn 30. mars 1881 skrifar Magnús móð-
ur sinni og segir frá slysinu er póstskipið
Phönix strandaði hinn 31. jan. 1881 fram
undan Skógarnesi í Miklaholtshreppi. Urðu
margir fyrir tjóni, þar á meðal Isafoldar-
prentsmiðja sem missti mikinn pappír. Var
varla hægt aó prenta fyrir pappírsleysi, og
þurfti Torfi prentari að ganga iðjulaus til
þess aó prentnemarnir hefðu nóg að gera því
að prentsmiðjan var skuldbundin að sjá
þeim fyrir fæði og öðrum þurftum meðan á
námstímanum stóð, hvort heldur nóg væri
að gera eða eklci. Menn vonuðust eftir papp-
ír með næsta póstskipi, Arcturusi, en ef
hann kæmi ekki yrðu þeir allir verklausir
og ekkert prentað fyrr en Arcturus kæmi
þarnæst.18
Prentsmiðiuhúsið
í mars 1881 segir Magnús Ingvarsson móður
sinni að Sigmundur prentari ætli að fara að
byggja steinhús í vor og hafi nóg að gera
með aö hugsa um það. Húsið eigi að standa
á túninu við Bakarastíginn, „milli Lands-
höfðingjans og Amtmannsins", og þangað
eigi að flytja prentsmiójuna. Hlakkar Magn-
ús til því að honum finnst þetta skemmti-
legur staður.19 Húsið sem hér um ræðir er í
dag Bankastræti 3.
Jafnframt segir Magnús að Sigmundur
ætli að flytjast úr Torfahúsi á krossmess-
unni (3. maí). Hann sé búinn að fá nóg af því
að vera þar og þylci fólkið vilja ráða yfir sér
og einkum Guðbjörgu, lconu sinni. Einlcan-
lega sé samkomulagið erfitt við Þóru, elstu
systurina, því að hann geri ekki mikið úr
þeim systrum og það líti út sem honum
þyki skömm að því fólki.20
í ódagsettu bréfi frá því um sumarið 1881
þegar farið er „að þinga í Alþingishúsinu
hinu nýja" slcrifar Magnús og segir að „Jón
frændi [sé] kominn í prentsmiðjuna til olclc-
ar, og verður hann þar í sumar, mikið stóð
hann sig vel við prófið þegar slcólanum var
sagt upp, hann fór upp í þriðja beldc, og varð
efstur af 26". Það séu „óslcupinn [!] öll að
gjöra hjá olclcur í prentsmiðjunni, það er ver-
ið að prenta tvær lcvæðabælcur lijá oldcur,
eptir Steingrím Tliorsteinsson önnur, en
hin eptir Sigvalda Jónsson einhvern fyrir
norðan, sem nú er dáinn, þú lcannast
lcannslce við hann".21 Kvæðabólcin eftir
Steingrím er að því leyti merlcileg að þetta
er ein fyrsta bólcin prentuð á íslandi sem
bundin er í forlagsband með blindþrylclctum
slcreytingum á frernra og aftara spjaldi.
í byrjun septemher slcrifar Magnús og seg-
ir að Sigmundur sé nærri því búinn að lcoma
húsinu upp og sé það „gróflega stórt og fal-
legt hús". Magnús segist hafa hitt Einar Ás-
mundsson í Nesi og talað oft við hann. Á
meðan Einar sat á alþingi um sumarið lét
hann prenta tvö tölublöð af Fróða í ísafold-
arprentsmiðju svo að hann lcom oft í prent-
smiðjuna til að vitja um blaðið.22 Þessi tvö
17 Lbs 5224 4to (MI til SvG, 28.11. 1880).
18 Lbs 5224 4to (MI til SvG, 30.3. 1881).
19 Lbs 5224 4to (MI til SvG, 30.3. 1881).
20 Lbs 5224 4to (MI til SvG, 30.3. 1881).
21 Lbs 5224 4to (MI til SvG, ódagsett, sumarið 1881).
22 Lbs 5224 4to (MI til SvG, 2.9. 1881).
78