Vera - 01.04.2002, Síða 10
Þorgerður Þorvaldsdóttir
Didda, eins og hún er
alltaf kölluð. er búin að
alltgf kölluð, er búin að
vihna í ReykjavíkurAka-
demíunni í rúmt ár og á
þeim tíma hefur hún unn-
ið hug og hjörtu allra sem
í Akademíunni starfa. Hún
sér um að útbúa k
halda öllu hrein
snyrtilegu. Diddu I
ijl WŒW:
Didda sér um kaffiS í ReykjavíkurAkademíunni.
MeS sönghópnum Plútó aö taka upp geisladiskinn.
Heima viS tölvuna en Didda skrifar mikiS í blaSiS Perlufestina.
Myndir: Þórdís
Hún mætir til vinnu klukkan 9 á morgnana og er til
hálf eitt. En dagurinn er svo sannarlega ekki búinn hjá
Diddu þegar vinnudeginum lýkur. Hún er nýbúin að
Ijúka tölvunámskeiði þar sem hún lærði meðal annars
að senda tölvupóst og nota netið og i námskeiðslok
fékk hún hæstu einkunn, enda er hún nú þegar búin
að skrá sig á framhaldsnámskeið. Didda á sína eigin
tölvu heima og það kemur sér vel því hún er í Perlu-
festinni, en það er félagsskapur tengdur leikhópnum
Perlunni. Didda leikur þó ekki heldur vinnur ásamt
öðrum að útgáfu blaðins Perlufestin. Hún á sæti í
þriggja manna ritnefnd en þótt ritnefndin reyni auð-
vitað að virkja sem flesta til að skrifa í blaöið, er raun-
in samt sú að Didda endar á því að skrifa mest af efn-
inu sjálf, enda hefur hún óskaplega gaman af að skrifa
sögur og margar þeirra hafa birst í blaðinu.
En hæfileikar Diddu liggja víðar. Síðastliðin fjögur
ár hefur hún sungið með sönghópnum Plútó sem
starfar og æfir innan Fullorðinsfræðslunnar. í söng-
hópnum eru tíu konur og tveir karlar, og þau æfa sam-
an einu sinni í viku. Fyrsti geisladiskur hópsins er
væntanlegur I maí og þegar ég spjallaði viö Diddu voru
upptökur í fullum gangi. Aðspurð sagöi Didda að hóp-
urinn syngi allskonar lög, en meðal þekktra smella sem
verða á geilsadisknum eru Tvær úr tungunum og Stína
var lítil. Plútó kemur jafnan fram á tvennum tónleik-
um, jólatónleikum og vortónleikum, en að auki hefur
sögnhópurinn farið í tónleikaferöir, bæði til Akureyrar
og Danmerkur. Næstu tónleikar Plútó, sem jafnframt
eru útgáfutónleikar, verða núna í maí. Þá gefst al-
menningi tækifæri til að berja sönghópinn augum og
þau sem hrífast með geta keypt geisladiskinn og hald-
ið áfram að hlusta heima.
Auk alls þessa er Didda dugleg að stunda íþóttir,
útivist og hreyfingu. Hún gengur mikið, fer reglulega í
sund, og hjólar þegar veður og færð leyfa. Þannig lét
hún sér ekki muna um að hjóla i og úr vinnu frá Breið-
holtinu og vestur í bæ síðasta sumar og hún stefnir á
að taka þann siö upp aftur með hækkandi sól. Á laug-
ardögum æfir Didda svo botsía, hún hefur farið í
keppnisferður víða um land og kynnst mikið af
skemmtilegu fólki í gegnum það. Didda situr því sjald-
an auðum höndum en á kvöldin þegar um hægist fer
hún gjarnan og heimsækir vinkonur sínar, eða situr í
rólegheitum heima og saumar út.
10