Vera - 01.04.2002, Blaðsíða 64
Mest pirrandi við pólitíkina í dag?
Rannveig er alveg með þetta á hreinu:
„Ég er mjög ósátt við hvaö Alþingi
virðist veikt gagnvart framkvæmda-
valdinu. Valdið í pólitíkinni hefur aldrei
verið sýnilegra. Það er staðreynd að ef
einhver gagnrýnir forsætisráðherra þá
fær sá hinn sami að finna fyrir því. For-
sætisráðherra hefur veist að grunn-
stofnunum samfélagsins með hætti
sem ekki hefur áður heyrst. Minna má
á viðbrögð gagnvart Biskupsstofu,
Hæstarétti, Þjóðhagsstofnun og hon-
um finnst held ég að hann hafi vald
yfir sjálfu Alþingi. Þetta nýja ástand
virkar afar ólýðræðislegt. í svona
valdastöðu veikist rödd stjórnarand-
stöðunnar".
Má bjóða þér ráðherraembætti?
„Já, takk," segir Rannveig, „mín hjart-
ans mál eru ennþá félagsmálin. Þar
byrjaði ég í pólitík í Kópavoginum, og í
félagsmálaráðuneytinu spreytti ég mig
sem ráðherra um stund. Þar er hægt að
móta umhverfi fjölskyldunnar á þann
veg sem Samfylkingin boðar. Hinsveg-
ar hef ég starfað í mörgum nefndum
Þingkonan að þessu sinni er Rannveig Guömundsdóttir samfylkingar-
kona og fyrrverandi félagsmálaróöherra. Rannveig hefur víötæka
reynslu af pólitíkinni. Hún hefur veriö þingflokksformaöur í þremur
stjórnmálahreyfingum og átt sæti í fjölda þingnefnda á ferli sínum á
Alþingi. Áöur en Rannveig tók sæti á Alþingi lét hún sveitarstjórnarmál
til sín taka í heimabæ sínum Kópavogi. Þar átti hún sæti í bæjarstjórn
í samfellt 10 ár og gegndi bæöi embætti forseta bæjarstjórnar og for-
manns bæjarráös.
þingsins og tekist á við ólík verkefni. Ég
slægi nú ekki hendi á móti stóli fjár-
málaráðherra sem hefur einna mest
völd í ríkisstjórn. Svo gæti ég vel hugs-
aö mér að vera iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra. Nefndin mín núna er utan-
ríkismálanefnd og þar er alþjóðapóli-
tíkin. Verst að maður þarf líklega að
vera flokksformaður til að eiga þann
möguleika."
Einlægni, skilningur og húmor í bíó
„Síðasta myndin sem ég sá í bíó var
norsk mynd sem heitir Elling. Hún var
alveg frábær. Fjallar um tvo náunga
sem útskrifast af geðsjúkrahúsi. Lýsir
leið þeirra út í lífið og þeim nýja veru-
leika sem þeir þurfa að takast á við.
Myndin geislar af einlægni, skilningi
og húmor. í lokin var manni farið að
þykja vænt um þessa stráka," sagði
Rannveig.
Bækurnar á náttboröinu
„Ég er að lesa Barn náttúrunnar og
fyllist undrun á hverri síðu yfir að Lax-
nes skuli hafa skrifað hana 16 ára
gamall. Á náttborðinu er einnig bók
sem fékk síðustu bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs og heitir Opdageren
eftir Jan Kjærstad, norskan höfund
sem hlotiö hefur athygli. Það tnerki-
lega við þetta verðlaunaritverk er að á
undan komu bækurnar Forföreren og
Erobreren og allar þrjár bækurnar eru
sama sagan sögð á nýjan hátt frá öðr-
um vinkli en sú á undan. Margar
spurningar vakna við lestur tveggja
fyrstu bókanna og þeim er ekki endan-
lega svarað fyrr en í þeirri síðustu,"
sagði Rannveig.
Stjórnmál og stefnur í framtíðinni
Um framtíðina sagði Rannveig: „Ég er
sannfærð um að viö í Samfylkingunni
eigum eftir að fá hljómgrunn hjá fólki
með okkar pólitík. Hana má draga
saman í orðunum „Jöfn tækifæri,
kröftug menntastefna, framsýni í
efnahagsmálum og góð velferðarþjón-
usta". En þaö er sveitarstjórnarpólitíkin
sem skiptir mestu máli núna. Um allt
land fer fólk okkar fram með festu og
heiðarleika, víðsýni og umburðarlyndi,
félagsleg viðhorf og jafnrétti að leiðar-
Ijósi. Öllu þessu góða fólki sendi ég
baráttukveöjur og óska þeim velfarn-
aðar og velgengni í sókninni framundan".
Jóhanna
- hvöss og beinskeytt
Eins og flestum er kunnugt er Jóhanna Sig-
urðardóttir samfylkingarþingkona vinnu-
þjarkur, og kemur þaö berlega í Ijós þegar
komið er inn á vefsíðuna hennar. Þar ritar
Jóhanna pistla um málefni líðandi stundar.
Og - ekki er að spyrja að kraftinum og at-
orkunni sem m.a. birtist í fyrirsögnum pistl-
anna. Lítum á nokkur dæmi.
9. apríl skrifar Jóhanna: Dýr reiöiköst, á
þar við ákvörðun rikisstjórnarinnar um að
leggja niður Þjóðhagstofnun.
7. april skrifar Jóhanna: Samkeppnis-
stofnun hunsuö. Þar gagnrýnir hún við-
skiptaráðherra fyrir seinagang i aö fram-
fylgja úrskuröi Samkeppnisstofnunar um
að koma á löggjöf um innheimtuaðgerðir.
2. apríl er fyrirsögnin: Brást embættis-
skyldu. Þar gagnrýnir Jóhanna enn við-
skiptaráðherrra og að þessu sinni fyrir
framgöngu hennar í málefnum Reyöaráls.
Jóhanna segir viðskiptaráðherra hafa
brugðist Alþingi meö því að halda leyndum
upplýsingum um frestun framkvæmda við
álver á Reyðarfirði og þar af leiðandi hafi
hún ekki getað beitt sér í málefnum stjórn-
arformanns Reyöaráls þegar hann varð
uppvís að óheilindum í samskiptum fyrir-
tækisins við opinbera aöila.
Þaö er meö vefinn hennar Jóhönnu
eins og flestra þingkvenna, að tengingar á
aöra vefi eru frekar óspennandi. Jóhanna
tengir inn á vefi stjórnmálaflokkanna og
örfáar pólitískar vefsíöur. Ég leyfi mér aö
kalla eftir frumlegri tengingum með
skírskotun til ferskleika og skapandi hug-
mynda í pólitíkinni. En - vefurinn hennar
Jóhönnu er stílhreinn og „einfaldur",
kannski of einfaldur, aðalliturinn er fjólu-
blár í mismunandi tónum, uppiýsingarnar á
vefnum eru aðgengilegar og auðvelt að
rata um hann.
Slóðin er www.althingi.is/johanna