Vera - 01.04.2002, Blaðsíða 31
Á tímabili vorum við orðnar alveg geðveikar, við fylltumst þvílíku
keppnisskapi. Ég fór í megrun og var að hugsa um að spandéra á
mig cellulite-rassanuddi þó að ég ætti engan pening. Mig langaði
allt í einu að gera allt til þess að auka sigurmöguleika mína."
það var auðvitað búist viö því að ég væri kvenleg og
sæt. Ég fann að ég var ekki að fá prik fyrir að vera öðru-
vísi keppandi, þó að það hefði verið yfirlýst markmið
keppninnar frá upphafi. Þarna kom í Ijós að þær meintu
ekki það sem þær sögðu.
Þegar þær uppgötvuðu að kannski var ekki ætlun
mín að halda á lofti þessari glansmynd af keppninni, þá
urðu þær hræddar og fóru að banna mér að mynda. Þær
vildu líka hafa puttana i myndinni og ráða því hvernig
hún yrði. Kjarninn er ekki að ég hafi verið að mynda
einkalíf annarra i leyfisleysi og rífa einhver komment úr
samhengi. Ég var ekki að því. Myndin er einfaldlega min
stúdía á fegurðarsamkeppni. Ef það er einhver sem er
sýndur í alls konar óþægilegum aðstæðum, þá er það ég
sjálf. Ég ákvað strax að vera ekki að passa mig á mynda-
vélinni og ekki falla í þá gryfju að fara að ritskoða sjálfa
mig."
Sigrún: „Það sem ég kvíði mest á frumsýningu er að
sitja undir allri vitleysunnni sem datt upp úr okkur. Svo
er ég nú komin á þennan aldur og oft mjög illa til höfð
í myndatökunum. En skítt með það! Ef það er heimilda-
mynd verður hún að vera sönn."
„Fegurðarbransinn hefur alltaf notið friðhelgi," seg-
ir Hrönn. „Almenningur hefur aldrei séð neitt annað en
þessa opinberu glansmynd. Mér fannst bara þjóðráð að
þetta lið fengi að finna óbragð eigin vitleysu. Enda voru
lokaorðin i lögbannskröfunni hið „ófyrirsjáanlega tap"
vegna styrktaraðila sem kannski drægju sig út úr keppn-
inni og minnkuð þátttaka í svona keppnum í framtíð-
inni. i rauninni var lögbannskrafan sett fram vegna þess
að myndin gæti fengið fólk til þess að fara að hugsa!"
Hrönn er á lista hjá Frjálslyndum og óháðum til
borgarstjórnarkosninga. Koni pólitikin í beinu framhaldi
af fegurðarsamkeppninni?
„Nei, alls ekki," segir Hrönn. „Pabbi minn, Sveinn Að-
alsteinsson, stofnaði Umhverfisvini ásamt Olafi F.
Magnússyni og ég hef verið virk í þeim frá upphafi, enda
hef ég mjög ákveðnar skoðanir á umhverfismálum."
Mæðgurnar segja frá því að fjölskyldan hafi lengi verið
mikið baráttufólk á þessum vettvangi og meira að segja
verið hent út af Rex og Astro vegna þess að þau voru þar
að safna undirskriftum gegn virkjunum á Eyjabökkum.
„Nú eru það vitaskuld Kárahnjúkarnir. Pabbi minn er
með þetta mál á heilanum. Hann dreymir það á nótt-
unni og hann reiknar dæmið aftur og aftur en fær aldrei
út annað en að þetta sé bölvuð aulafjárfesting. Hann
fær aldrei út annað en núll. Það eru líka engin lönd í
heiminum sem standa í svona framkvæmdum nema
Kina og einhver lönd í Afríku. Allir aðrir vilja þetta burt
úr sínum löndum.
Mig hefur líka lengi langað að vera stjórnmálamað-
ur. Það sem mér hefur fundist fráhrindandi við það er
að fólk virðist breytast þegar það fer í stjórnmál. Ég veit
ekki hvað það er sem gerist, en allt í einu snýst allt um
það að halda sætinu sínu og falla að flokkslínum. Þegar
mér bauðst að vera með á lista án þess að vera flokks-
bundin þáði ég það. Eg hef fullt af hugmyndum um
hvernig má hafa pólitísk áhrif til hins betra. Ég er í átt-
unda sætinu, eins og vinkonur mínar Ingibjörg Sólrún
og Inga Jóna," segir Hrönn og hlær. „Munurinn á okkur
er hins vegar að ég tilheyri ekki einhverju flokksbatteríi
sem berst við að halda stöðu sinni. Ég er þarna til þess
að hafa áhrif og ég hef enga aðra hagsmuni."
Gæsluleikvellir Reykjavíkurborgar
eru 15 að tölu víðsvegar um borgina
og eru fyrir 2-6 ára börn
Örugg útivera fyrir börnin.
Frjáls leikur í skapandi umhverfi.
Góöur félagsskapur meö jafnöldrum
undir traustu eftirliti starfsfólks.
ÞROSKANDI OG ÖRUGG ÚTIVIST FYRIR BÖRNIN OKKAR
Arnarbakki 8
Brekkuhús 3
Fróðengi 2
Njálsgata 89
Rauðilækur 21A
Rofabær 13
Safamýri 30
Vesturberg 76 A
www.leikskolar.is
Upplýsingasími: 563 5800
Fannafold 56
Fífusel 38
Frostaskjól 24
Hamravík 12
Hlaðhamrar 52
Ljósheimar 13
Malarás 17