Vera - 01.04.2002, Blaðsíða 12
Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir
Anarkisti, feministi
nti-rasisti
Sturla Vi2>ar Jakobsson er 10. bekkingur í Hjallaskóla.
Vera tók þennan unga dreng tali á dögunum og komst aö því
hvers vegna hann kýs aö kalla sig anarkista, feminista og anti-
rasista.
Mynd: Þórdís
Aðeins 11 ára gamall las hann bókina Falið vald og fór að velta fyrir sér jafn-
réttishugsjóninni og hvernig misréttið birtist okkur í samfélaginu. Hann hélt
áfram að lesa og uppgötvaði þá hugmyndafræði anarkismans sem leiddi til þess
að hann fór að velta fyrir sér feminisma. Sturla segir það óhjákvæmilega afleið-
ingu þess að vera anarkisti að vera feministi líka því að anarkismi gangi út á að
berjast fyrir jafnrétti á öllum sviðum. Hann segist hins vegar fá mjög ólík við-
brögð eftir þvi hvort hann lýsi því yfir að hann sé anarkisti eða feministi. í hug-
um flestra skólafélaga sinna þykir anarkisminn flott hugmyndafræði en femin-
isminn vekur aftur á móti upp neikvæðari viðbrögð, þá sérstaklega vegna hins
útbreidda misskilnings um að feministar vilji að konur fái meiri völd en karlar.
„Þaö væri vel hægt að uppræta þennan misskilning ef þetta væri gert að
kennsluefni í skólum," segir Sturla og bætir því við að honum þyki heldur leið-
inlegt að eina fræðslan sem krakkar fái um þessi málefni sé í samfélagsfræði en
þar er dregin upp mjög svart-hvít mynd af heiminum enda eingöngu talað um
kommúnisma og kapítalisma. Sturla hefur ekki setið við orðin tóm en auk þess
að reyna að útrýma karlrembu og kynþáttamisrétti með skoðunum sínum hefur
hann verið iðinn við að dreifa bæklingum um anarkisma sem meðal annars inni-
halda feminískan boðskap. Þess má geta að höfundur bæklinganna er Sigurður
Harðarson, betur þekktur sem Siggi Pönk, anarkisti, feministi og góðvinur VERU.
í framtíðinni stefnir Sturla á að beita sér fyrir sér fyrir því að efla kennslu í skól-
um um jafnréttismál af ýmsu tagi og að slík kennsla fari fram sem fyrst á skóla-
ferlinum, helst í 6 ára bekk. Þetta ungir krakkar eru þá þegar farin að velta því
fyrir sér hvort það ríki einhver grundvallarmunur á manneskjum eftir því af
hvaða kynþætti eða kynferði þær eru og ef þessum vangaveltum er ekki svarað
í skólum er hætta á að þau myndi sér skoðanir byggðar á ranghugmyndum. Slík-
ar ranghugmyndir orsaka fordóma og með því að uppræta þær nógu snemma
getum við hafist handa við aö uppræta ríkjandi fordóma.
Stulli hefur veriö iöinn
viö aö dreifa bæklingi
þar sem hvatt er til þess
aö útrýma karlrembu og
kynþáttamisrétti.
i
12