Vera - 01.04.2002, Blaðsíða 60
tegund brjósta er leyfileg. En þótt gagnrýni á sílikonaðgerð-
ir og þá samfélagsgerð sem hrekur konur undir hnífinn sé
þörf, er mikilvægt að gera ekki lítið úr upplifun og reynslu
þeirra kvenna sem kosið hafa að gangast undir slíkar að-
gerðir. Sú lamandi vanmáttarkennd og örvænting sem get-
ur fylgt brjóstaleysi eða litlum brjóstum í samfélagi „ofur"
brjósta er bæði sönn og raunveruleg og hún getur yfirtekið
alla tilveru þeirra stúlkna og kvenna sem svo er ástatt fyrir.
Okkur sem horfum á úr fjaska, brynjuð samfélagslega viður-
kenndum brjóstum (eða karllegum lim) hættir til að líta á
slíka vanmáttarkennd sem hégóma eða bábilju og mýtan um
„heimsku Ijóskuna" er skammt undan. En um leið erum við
að þagga og hunsa mjög raunverulegar tilfinningar. Það að
geta ekki horfst í augu við sína eigin spegilmynd, að bera sig
sífellt saman við
jafnöldrur sínar og
kynsystur og kikna
við hvern saman-
burð, það að reyna
stööugt að klæða af
sér líkamann og
láta sem minnst á
sér bera þangað til
brjóstaleysið tekur yfir og skapar allsherjar tilvistarleysi.
Brjóstastækkun er í flestum tilfellum feimnismál, því þótt
samfélagið vilji stór brjóst þá verða þau að vera ekta. Kona
með sílikonbrjóst er samkvæmt ríkjandi orðræðu „feik", ó-
ekta, ekki náttúruleg kona. Femínistar hampa öllum gerðum
brjósta, lítil brjóst, stór brjóst, slitin brjóst, ung brjóst og
gömul brjóst, margsogin og reynd brjóst. Öll brjóst eru jafn-
gild, fegurðin liggur í fjölbreyttninni... svo lengi sem þau eru
ekki sílikonfyllt. „Óekta brjóst" eru tákn um undirgefni við
feðraveldið og kröfur ímyndaiðnaðarins. Því eru raddir
kvenna sem farið hafa I sílikonaðgerðir þaggaðar. Við viljum
helst ekki heyra sögur um brjóstastækkanir sem þrátt fyrir
allt gengu vel og skiluðu konum nýrri og bættri sjálfsmynd.
Konum sem myndu fara aftur I svona aðgerð vegna þess að
hún þrátt fyrir allt breytti lífi þeirra.
Konur og stúlkur veröa aö öölast fullt vald
yfir eigin líkömum. Læra aö meta sjálfar sig
sem manneskjur, þekkja og víöurkenna eigin
styrk og trúa á sjálfar sig, þrátt fyriren ekki
vegna útlitsins.
Tíska dagsins í dag úreld á morgun
Það að samfélagið „neyði" konur til að gangast undir sárs-
aukafulla skurðaðgerð til þess aö öðlast sterkari sjálfsmynd
og lifa „góðu" lífi er hinsvegar óásættanlegt menningar-
ástand. Vandinn er sá að gallalaus líkami og útfyllt brjóst
dagsins I dag geta verið tímaskekkja og ógn viö ríkjandi út-
listskröfur morgundagsins. Tískan gengur I bylgjum, hátíska
dagsins i dag verður úrelt og hallærisleg á
morgun. Og blikur eru á lofti um að flatur
barmur sé aftur að koma I tísku. Sjálfs-
traust sem byggir fyrst og fremst á brjósta-
stærð eða öðrum útlitseinkunnum stendur
ekki á sterkum grunni og lítið þarf til að
slik sjálfsmynd hrapi aftur á núllpunkt.
Konur og stúlkur verða að öðlast fullt vald
yfir eigin líkömum. Læra að meta sjálfar sig
sem manneskjur, þekkja og viðurkenna eigin styrk og trúa á
sjálfar sig, þrótt fyrir en ekki vegna útlitsins. Höldum því
uppi róttækri samfélagsgagnrýni, segjum einsleitum kvení-
myndum fegurðariðnaðarins stríð á hendur en þöggum ekki
með „upplýstum fordómum"raddir þeirra kvenna sem
treysta sér ekki til að há kvennabaráttuna á sínum eigin lík-
ama.
I
p— lA/ýr ocf nota J * . ^
team v eitinaostac hix i
É> kjaria. ssbœjar é
Einn ódýrasti
VÍNSEÐILL
á Sudurlandi
aimas
Tryggvagötu 8a • 800 Selfoss • S: 482-3435
Fjölbreyttur matseðill
Forréttir
Salöt
Súpur
Pasta
Smáréttir
Fiskur
Kjöt
Barnaseðill
w