Vera - 01.04.2002, Blaðsíða 13
// n S
Mér finnst...
Þátttaka feöra í uppeldi barna
stuðlar aö jafnrétti
Steinhildur Siguröardóttir
félagsfræðingur
Mér finnst „nýju" fæðingarorlofslög-
in frábær!! Mér finnst þau frábær
af því að ég vona að sú breyting
sem gerð var á fæðingarorlofinu
verði til þess að allir feður grípi
tækifærið og taki þátt í umönnun barna sinna og
tengist þeim þegar þau eru kornung. Ég bind miklar
vonir við að það auki mjög á jafnrétti, hvort sem er
kvenna, karla eða barna. Með nýju fæðingaror-
lofslögunum erum við að hverfa frá þeirri ofurá-
herslu sem verið hefur á mikilvægi mæðra í uppeldi
barna. Ofuráherslu sem hefur leitt til þess að allir;
konur, karlar og börn, hafa búið við mikið misrétti að
minu mati. Áherslu sem leiddi til að konur töldu sig
bera höfðábyrgð á uppeldi barnanna. Mikilvægi
feöra i uppeldi var stórlega vanmetið og börn fóru
oft á tíðum á mis við það að tengjast feðrum sínum
í sama mæli og mæðrum.
Flest börn elska báða foreldra sína, sem betur fer,
og óska sér að eiga þá báða að ef þau eru ekki svo
lánsöm aö þeim hafi hlotnast það. íslenskt samfélag
í dag einkennist mjög af ýmis konar neyslu. Þeir
þjóðfélagsþegnar sem ekki hafa fjármagn í sama
mæli og aðrir til að taka þátt í því neyslukapphlaupi
sem hér ríkir upplifa oft að þeir búi ekki við sama rétt
og aðrir í samfélaginu. Fjárhagsleg staða í neyslu-
samfélaginu getur skipt miklu fyrir líðan og velferð
barna, sem annarra. Mikill fjöldi þeirra sem lægstar
hafa tekjurnar eru einstæðar mæöur - sem eiga börn
sem alast upp við lakari kjör heldur en almennt er.
Eins og tíðni sambúðarslita og launakjörum stórs
hóps kvenna er háttað í þjóðfélaginu er því ekki bara
tilfinningalega mikilvægt heldur einnig fjárhagslega
mjög mikilvægt fyrir mjög stóran hóp barna að
böndin milli þeirra og feðra þeirra séu styrkt. Feður
sem eru tilfinningalega tengdir börnum sínum ættu
að vera líklegri til að axla ábyrgð á velferð barna
sinna, hvort sem foreldrarnir eru í sambúð eða ekki.
Feður sem einnig fá þau skilaboð frá samfélaginu að
þeir skipti miklu máli, og alls ekki minna máli en
Sími 463 1424
netfang: stubbur@centrum.is
mæður fyrir velferð barna þeirra, hljóta einnig að
vera líklegri til að gefa sjálfum sér það svigrúm að
njóta þess að vera virkir uppalendur barna sinna.
Þess vegna fagna ég „nýja" fæðingarorlofinu.
Ef við bærum einnig gæfu til að styrkja lögin um
sameiginlegt forræði barna með því að veita foreldr-
um fræðslu og stuðning í rikari mæli en nú er gert til
að takast á við foreldrahlutverkið þegar til sambúð-
arslita kemur værum við virkilega að stuðla að jafn-
rétti allra aðila. Aukin þátttaka feðra og ábyrgð á
uppeldi barna, hvort sem um er að ræða sambúðar-
fólk eða ekki, stuðlar að rnínu viti að jafnrétti okkar
allra og ég sem jafnréttissinnuð manneskja gleðst því
yfir öllum skrefum sem við stígum i þá átt.
Ég skora á Kristinu Ólafsdóttur félagsfrœðing og
verðandi félagsráðgjafa að segja skoðun sína i
nœsta blaði.
Eiginleikar sem engin
önnur sólarvörn státar af
PRODERM er eina sólarvörnin sem
skróð er sem læknisfræðileg sólarvörn.
Efftir 6 klukkustundir
handklæðaþurrkanir
Ólíkt venjulegum sólkremum þó
myndar PRODERM rakafyllla varnar-
nimnu undir efstn logi húðarinnar!
Hómarksöryggi fyrir börn og fullorðna.
Meðmæli húðlækna.
Fæst i apótekum og Frihöfninni.
Dreifing CELSUS